Nacira skrifaði:
Magnifique, il sera dans mes projets futurs
11.12.2013 - 11:20
Irmi skrifaði:
Sehr schön!
11.12.2013 - 08:02Martyna skrifaði:
This is just beautiful! Definitely my favourite :)
11.12.2013 - 00:16
Mona skrifaði:
FANTASTISK!!! :D
10.12.2013 - 23:31
Svenja skrifaði:
LOCHMUSTER!!!Ja, ja, ja.
10.12.2013 - 23:21
MirNah skrifaði:
I like it very much
10.12.2013 - 22:27
Amber#ambersweater |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Cotton Light með gatamynstri og stuðlum. Stærð S - XXXL.
DROPS 152-17 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á nýrri umf er 1 st skipt út fyrir 3 ll. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.5. HEKLLEIÐBEININGAR: Það er byrjað og endað á ör í miðju mynstri af A.x ÚRTAKA: Fækkið um 1 st með því að hekla næstu 2 st saman þannig: Heklið 1 st, en bíðið með því að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka. BAKSTYKKI: Heklið 83-90-100-107-121-132 lausar ll með heklunál nr 4,5 með Cotton Light. UMFERÐ 1: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, (= 2 st), síðan er heklaður 1 st í hverja af næstu 2-2-5-5-5-2 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 st í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* 10-11-12-13-15-17 sinnum til viðbótar = 70-76-85-91-103-112 st. Heklið nú 5-5-5-4-5-5 umf til viðbótar með 1 st í hvern st (= alls 6-6-6-5-6-6 umf með st) – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Haldið síðan áfram með MYNSTUR þannig: Heklið A.1 yfir 4 st, A.2 þar til 3 st eru eftir, A.3 yfir þær 3 l sem eftir eru frá fyrri umf. Haldið áfram með mynstur A.1-A.3 fram og til baka í 8 umf, nú eru 8 göt á ská á hæðina (fyrsta rönd með gatamynstri) og 1 röð með st. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Nú er haldið áfram með rendur í st og gatamynstur á sama hátt, en nú er heklað eftir A.x, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-32-32-40-41-41 cm og hekluð er ein mynstureining með st er sett eitt prjónamerki í hvora hlið fyrir handveg. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 49-50-51-60-62-63 cm byrjar úrtaka fyrir hálsmáli og hvor öxl er hekluð til loka fyrir sig frá réttu: Heklið 1 umf með st yfir fyrstu 21-24-27-30-36-39 st, snúið við og fækkið um 1 st – LESIÐ ÚRTAKA! Heklið út umf. Þegar stykkið mælist 51-52-53-62-64-65 cm er bakstykkið klárt. Klippið frá. Heklið hina öxlina á sama hátt, nema gagnstætt! FRAMSTYKKI: Heklið eins og bakstykki. Þegar stykkið mælist 43-43-43-53-54-54 cm byrjar úrtaka fyrir hálsmáli og hvor öxl er hekluð fyrir sig. Heklið vinstri öxl frá réttu þannig: Heklið ll-boga eins og áður (með 2 st á milli hverra fl í fyrstu umf með ll-bogum) yfir fyrstu 27-30-33-36-42-45 st, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli með því að fækka um 1 ll-boga í gatamynstri eftir mynstri A.4. Haldið svona áfram fram og til baka þar til A.4 hefur verið heklað 1 sinni á hæðina. Í næstu umf eru heklaðir 4 st í fyrsta ll-boga, 3 st í hvern og einn af næstu ll-bogum þar til 1 ll-bogi er eftir og 4 st í síðasta ll-boga í umf = 20-23-26-29-35-38 st eftir á öxl. Haldið síðan áfram með stykki með 1 st í hvern st. Þegar stykkið mælist alls 51-52-53-62-64-65 cm er framstykkið klárt. Klippið frá. Heklið hina öxlina á sama hátt, nema gagnstætt og notið mynsturteikningu A.5 í stað A.4. Saumið axlasauma. ERMI: Ermar eru heklaðar frá handveg og niður. UMFERÐ 1: Byrjið neðst niðri við annað prjónamerki fyrir handveg og heklið upp ll-boga yfir handveg þannig: 1 fl, * 5 ll, 1 fl *, endurtakið frá *-* þar til þú hefur 20-21-23-23-25-26 ll-boga (hver ll-bogi nær yfir 1½-2 cm). Haldið síðan áfram fram og til baka með mynstur A.x þar til heklaðar hafa verið alls 3 mynstureiningar á hæðina – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hverri mynstureiningu með st þannig: 1. og 2. skipti sem A.x er heklað er fækkað um 1 st í hvorri hlið á stykki í 1., 3. og 5. umf með st í A.x = 6 st færri í hvorri hlið. Nú eru 48-51-57-57-63-66 st eftir. Í 3. skiptið sem A.x er heklað er lykkjum fækkað þannig: Fækkið um 1 st í hvorri hlið á stykki í 4-5-5-5-5-5 fyrstu umf með st = 40-41-47-47-53-56 st eftir. Haldið síðan áfram með 4-3-2-2-1-0 umf með st. Ermin mælist nú ca 36-35-34-34-33-32 cm. Klippið frá og festið enda. HÁLSMÁL: Heklið kant í kringum hálsmál frá miðju að ofan uppi á öxl þannig: Heklið 1 fl, * 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* umf í kringum allt hálsmálið og endið á 1 kl í 1 fl í umf. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma og sauma undir ermum í eitt yst í lykkju í umferð. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ambersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 4 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 152-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.