DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6204.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sandy

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca Bouclé í garðaprjóni með löngum lykkjum. Stærð S - XXXL.

DROPS 153-18
DROPS Design: Mynstur nr ab-043
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA BOUCLÉ frá Garnstudio
300-300-350-350-400-450 gr litur nr 2020, ljós beige

DROPS HRINGPRJÓNAR (80 og 40 cm) NR 7 – eða þá stærð sem þarf til að 14 l og 17 umf með sléttprjóni eða 14 l og 26 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6204.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
* 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*

MÆLING:
Vegna mynsturs verður öll mæling að gerast þegar stykkinu er haldið uppi annars verður stykkið of langt.

MYNSTUR:
UMFERÐ 1- 6: Prjónið slétt.
UMFERÐ 7: Prjónið * 1 l sl, sláið 2 sinnum uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið á 1 l sl.
UMFERÐ 8: Prjónið * 1 l sl, sleppið niður uppslættinum *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið á 1 l sl.
Endurtakið umf 1-8 til loka.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar l. Allt fram- og bakstykkið er prjónað með MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. Ermar eru prjónaðar í sléttprjóni með 12 umf í garðaprjóni neðst niðri.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 72-78-84-90-98-108 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 7 með Alpaca Bouclé. Prjónið mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm – LESIÐ MÆLING – fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið fyrir handveg í byrjun á 2 næstu umf = 70-76-82-88-96-106 l. Prjónið þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, stillið af að næsta umf sé umf 1 í mynstri. Fellið af miðju 20-22-24-26-26-28 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsi= 24-26-28-30-34-38 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki. Prjónið þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, stillið af að næsta umf sé umf 1 í mynstri, setjið miðju 20-22-24-26-26-28 l á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsi = 24-26-28-30-34-38 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 38-40-42-44-46-48 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 7 með Alpaca Bouclé. Prjónið 12 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í hvorri hlið í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 8 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 6 -5-5-4-4-3 cm millibili 5-6-6-7-7-8 sinnum til viðbótar (alls 6-7-7-8-8-9 útaukningar) = 50-54-56-60-62-66 l. Þegar stykkið mælist 44-43-42-41-39-36 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af allar l.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt innan við kantlykkju.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp í kringum hálsmál frá réttu 76 til 94 l (meðtaldar l af þræði) með Alpaca Bouclé á hringprjóna nr 7. Prjónið 4 umf garðaprjón fram og til baka. Fellið af.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (30)

country flag Marit Tvervåg wrote:

Kan dette mønsteret strikkes rundt opp til armene?

18.02.2023 - 13:56

DROPS Design answered:

Hej Marit, mønsteret er forklaret for at strikke frem og tilbage... hvis du vælger at strikket rundt, så skal hver 2.pind strikkes vrang fra retsiden :)

23.02.2023 - 15:05

country flag Carina Swanström wrote:

Hej, har kommit fram till att det inte stämmer när det gäller maskantalet på ärmarna på mönster ab-043. Spelar ingen roll vilka stickor jag använder. Har prövat rundsticka 7 80cm och rundsticka 7 40cm. Även prövat med vanliga raka men ärmen blir alldeles för stor runt handled. Om jag skulle minska antalet maskor så kommer den ju inte att passa vid axeln. Så hur skall jag göra? Tacksam för svar. MVH// Carina

01.09.2019 - 16:45

DROPS Design answered:

Hei Carina. Om du syns den blir for vidd rundt håndleddet, kan du f.eks legg opp mindre masker, og da øke disse maskene når det skal økes frem til ferdig mål (øke oftere). Bare husk å ha samme maskeantall ved slutt som det står i oppskriften. God Fornøyelse!

02.09.2019 - 11:49

country flag Ingeborg Mortensen wrote:

Har lavet strikkeprøve. Men når jeg strikker mønsteret bliver arbejdet ca 30 cm for bred. Øv. Har pillet op ,hvad nu?

12.07.2017 - 11:42

DROPS Design answered:

Hej Ingeborg, hvis du har 14 m på 10 cm i bredden, så stemmer målene med dem som står i måleskitsen. Husk at hulmønsteret gør tøjet elastisk, det vil sige at jo mere du strikker i højden, jo mere vil det også vokse i højden og samtidig trække sig lidt sammen i bredden. Hvis det bliver for bredt så kan du prøve med et pindenummer mindre. God fornøjelse!

12.07.2017 - 12:02

country flag Helle Petersen wrote:

Lys søgrøn Jeg har købt garn til denne trøje med 50 % rabat i en netshop. Valgte lys søgrøn, lidt efter udelukkelses metoden da jeg ikke havde lyst til at strikke noget i beige eller brund. Hold da op det er en flot farve og rigtigt lækkert at strikke i lige nu hvor det er 27 grader i skyggen på min terasse. Jeg strikker faktisk kun Drops modeller da de findes i str. 3XL, dejligt når man er en fyldig kvinde.

06.06.2016 - 11:53

Wendy French wrote:

By mistake I started this sweater on US 7 needles...so it should have been way too small...but it was about three times wider than it should have been for the size I was knitting. Disappointing, frustrating, and a waste of time!

21.02.2016 - 14:10

DROPS Design answered:

Dear Mrs French, remember to check and keep correct tension, ie 14 sts x 17 rows in stockinette st = 10 x 10 cm - this jumper has an oversized shape - see measurements for each size in measurement chart. Happy knitting!

22.02.2016 - 11:30

Shirley wrote:

I have done three swatches with this pattern using the required wool and gauge. However the number of rows on each one is too long. Using 6.5 mm gives me the nearest width for the gauge but the length is more than the required 10 cm. Do you have any suggestions.

08.11.2015 - 22:48

DROPS Design answered:

Dear Shirley, you can try another technique for your K/P sts - see videos under video tab - remember your DROPS store will also have tips & advices for a personnal assistance. Happy knitting!

02.12.2015 - 17:10

country flag Marianne Hansen wrote:

Har fundet glittergarnet . tak for hjælpen Hilsen Marianne

21.01.2015 - 17:38

country flag Marianne Kjær Hansen wrote:

Hej Igen Tak for dit svar jeg har prøvet og søge på Drops glitter , men der kommer ikke noget frem ,kan du hjælpe ? Hilsen Marianne

21.01.2015 - 17:32

country flag Marianne Kjær Hansen wrote:

Hej :) jeg er igang med denne Sandy bluse. Kunne godt tænke mig måske at strikke noget sølv/glimmer /glinsende effekt ind i glatstrikken på ærmerne. Vi det kunne lade sig gøre og har i eventuelt noget Matriale/produkt i kunne anbefale ? På forhånd mange tak Venlig hilsen Marianne

21.01.2015 - 14:16

DROPS Design answered:

Hej Marianne. Det lyder som en sjov idé. Hvad med at pröve med vores DROPS Glitter? Den traad kan du strikke med og det paavirker ikke strikkefastheden. Det bliver sikkert rigtig flot!

21.01.2015 - 14:40

Barbara McLennan wrote:

I knitted most of this pattern only to fine it looked terrible, really messy and the drop stitches look twice as long as those in the photo. My tension seems right though as the garment measures the same in width as my chosen size. I am considering starting all over, but don't want the same result. The only thing I did differently is knitted the pattern in the round to the armholes. Maybe I am just not good with big needles. Any ideas? Or do I make a scarf :)

05.12.2014 - 01:54

DROPS Design answered:

Dear Mrs McLennan, working in the round maybe the reason that it didn't work - you make double yos, so that the drop is longer than normal, but if your tension is correct, it should work. What about make a swatch and wash it (to make the pattern "settle" more). For any individual help, remember you can contact your DROPS store. Happy knitting!

05.12.2014 - 11:33