DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5280.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweetheart

Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino og DROPS Brushed Alpaca Silk í garðaprjóni og gatamynstri. Stærð S-XXXL.

DROPS 152-2
DROPS Design: Mynstur nr as-011
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
150-200-200-200-250-250 gr litur nr 02, natur
Og einnig:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
75-75-100-100-100-125 gr litur nr 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l og 19 umf verði 10 x 10 cm með mynsturprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5280.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka)
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
* 1 umf slétt og 1 umf brugðið *, endurtakið frá *-*,

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Skipt er á milli Baby Merino og Brushed Alpaca Silk.

MÆLING:
Öll mæling er gerð þegar stykkið liggur flatt, mikilvægt er að strekkja ekki á stykkinu þegar mæling er gerð.

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 70-78-82-90-100-108 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 6 með Baby Merino. Prjónið 10 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Lesið MÆLING. Þegar stykkið mælist ca 42-43-44-45-46-47 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið á stykki þannig. Fellið af 4-4-4-6-8-8 l 1 sinni = 62-70-74-78-84-92 l. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm – stillið af eftir 4 umf slétt með Baby Merino. Setjið nú miðju 16-16-16-16-18-18 l á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð fyrir sig. Fellið af lykkjur í hverri umf frá hálsmáli þannig: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 1 sinni = 18-22-24-26-28-32 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 l – stillið af eftir 4 umf slétt með Baby Merino.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist ca 49-51-53-54-56-58 cm – stillið af eftir 4 umf slétt með Baby Merino. Setjið nú miðju 10-10-10-10-12-12 l á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af í hverri umf frá hálsmáli þannig: 3 l 1 sinni, 2 l 2 sinnum, 1 l 1 sinni = 18-22-24-26-28-32 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm – stillið af eftir 4 umf með slétt með Baby Merino.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 36-36-38-40-42-42 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) með Baby Merino. Prjónið 10 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5-5½–5–5½–5–5½ cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið innan við 1 kantlykkju – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 7½-6-5½-5-4½-3½ cm millibili 6-7-8-8-9-11 til viðbótar = 50-52-56-58-62-66 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca. 53-52-51-50-49-48 cm – stillið af eftir 4 umf slétt með Baby Merino, fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma yst í lykkjubogann, saumið ermar í, saumið hliðarsauma og ermi í eitt.

HÁLSMÁL:
Prjónað er í hring á stutta hringprjóna.
Prjónið upp 65-72 l (meðtaldar l af þræði) með Baby Merino á stutta hringprjóna. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fellið af.

Mynstur

symbols = slétt með Brushed Alpaca Silk
symbols = slétt með Baby Merino
symbols = br frá röngu, sl frá réttu með Brushed Alpaca Silk
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir með Brushed Alpaca Silk
symbols = 2 l slétt saman með Brushed Alpaca Silk
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 152-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (37)

country flag Helle Pederse wrote:

Hej! Kan blusen strikkes rundt på rundpind i stedet for at strikke frem og tilbage og for- og bagstykke hver for sig?

27.03.2024 - 20:32

DROPS Design answered:

Hej Helle, ja det kan du gøre, men sørg for at få de 2 mønsterpinde på retsiden :)

05.04.2024 - 09:18

country flag Ine Feijen - Franssen wrote:

Hallo, vraag. Ongeveer om de 4 naalden wordt er gewisseld van merino naar brushed of omgekeerd. Hoe doe ik dat met de draden. Kan ik die mee laten “liften” of moet ik die afknippen en later weer toevoegen?

25.03.2022 - 16:28

DROPS Design answered:

Dag Ine,

Je kan beide doen. meenemen of afknippen. Als je de draden afknipt, moet je ze later wegwerken. Een voordeel van meenemen is dat je de draden eigenlijk gelijk al tijdens het breien hebt weggewerkt.

29.03.2022 - 10:19

country flag Bea Kolvoort wrote:

Klopt het dat de naalddikte afwijkt van de aanbevolen naalddikte op de labels van Brushed Alpaca Silk en Baby Merino? Tevens kom ik met geen mogelijkheid met het genoemde aantal steken en naalden tot een proeflap van 10x10 cm. Dan heb ik wel naald 9 nodig. Dit kan ik uiteraard aanpassen, maar ik vind het erg afwijken van de maattabel. Ik hoor het graag, Mooi patroon trouwens!

09.01.2020 - 16:55

DROPS Design answered:

Dag Bea,

De naalddikte wijkt inderdaad af, maar zou wel moeten kloppen voor de aangegeven stekenverhouding. Het is de bedoeling dat je het proeflapje in patroon breit (dus niet bijvoorbeeld in tricotsteek.

14.01.2020 - 20:30

country flag Mellany wrote:

Ik wil graag van de drops baby merino een trui/jurk maken tot de scheen. Ik neem dan dit patroon, alleen wordt hij dus langer in de lengte. Ik ben 170 en ik draag maat L (hij moet losjes vallen). Hoeveel bolletjes moet ik dan kopen? Mvg, Mellany

10.05.2019 - 17:42

DROPS Design answered:

Dag Mellany,

Mijn inschatting is dat je dan ongeveer het dubbele aan garen nodig hebt wat in het patroon staat. Je kunt meestal overgebleven bollen terugbrengen bij de winkel waar je het garen gekocht hebt. Vraag even naar hun voorwaarden, zodat je evt. wat extra bollen kunt kopen.

11.05.2019 - 17:58

country flag Elke wrote:

In einer Antwort von Drops steht, dass im Diagramm immer Hin- und Rückreihe angegeben ist. In der 5. Reihe wird erklärt "li in der Rück-R, re in der Hin-R". Für mich ist das aber immer nur die Hinreihe? Wo mache ich den Fehler?

09.01.2019 - 19:57

DROPS Design answered:

Liebe Elke, das Diagram zeigt alle Reihen, dh die Hin- sowie die Rückreihen. Lesen Sie die Hinreihen von dem unteren rechten Ecke rechts nach links und die Rückreihen links nach rechts = die ersten 4 Reihen sind rechts mit Brushed Alpaca Silk gestrickt (Krausrippen), die nächsten so wie die nächsten 4 Reihe mit Baby Merino, Die 10. und 12. Reihen sind Rückreihen und werden links mit Brushed Alpaca Silk gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

10.01.2019 - 09:16

country flag Jeanne Malone wrote:

Drops Nepal is in Yarn Group C. Would it be an apppropriate substitute for the Baby Merino in Yarn Group A.

18.08.2018 - 01:28

DROPS Design answered:

Hi Jeanne, Instead of 2 threads in yarn group A you can use DROPS Nepal (yarn group C) You have to keep the knitting tension like in this pattern, but you will not get the thick/thin effect like in this pattern.

20.08.2018 - 09:31

country flag Ana Maria wrote:

Hi..I have a question regarding the end of the back and front parts..when it says: adjust after 4 K rounds then bind off..what does it mean? Thank you in advance. Love this sweater.

14.10.2016 - 10:49

DROPS Design answered:

Dear Ana Maria, you have to adjust length so that you have worked 4 rows K with Baby Merino, work some less/more rows if needed, so that last rows worked are these 4 rows worked K with Baby Merino in diagram. Happy knitting!

14.10.2016 - 11:24

country flag Marité wrote:

Un pull superbe, facile à faire et à porter, un vrai plaisir !! Merci beaucoup !

13.10.2015 - 19:14

country flag Maria Bednarek wrote:

Die Zeichenerklärung für die 10.Reihe in dem Diagramm ist mir nicht klar: Sollen hier eine Hin- und eine Rückreihe gestrickt werden? Danke und Gruß aus Wien

06.06.2015 - 09:12

DROPS Design answered:

Jede R im Diagramm bedeutet auch nur 1 gestrickte R. Die 10. R ist eine Rück-R und wird links gestrickt. Die ersten 8 R werden kraus re gestr, die letzten 4 R auch. Die Zeichenerklärung ist da vielleicht etwas zweideutig, ich werde das mal an die Designerinnen weiterleiten. Viel Spaß beim Weiterstricken!

08.06.2015 - 09:50

country flag Anja wrote:

I "afsnittet" hvor der står materialer, står at der skal anvendes Drops Alpaca Silk, jeg leder længe efter denne garnkvalitet, hvor jeg til sidst finder ud af at der mangler ´brushed´foran alpaca...

31.05.2015 - 22:23

DROPS Design answered:

Hej Anja. Ja, det har du ret i. Vi har rettet til.

01.06.2015 - 13:12