Danygarson skrifaði:
J'ai tout compris mais dans l’énoncé et non dans la réalisation des points a quoi correspond la case blanche qui n'ai pas marquée en ligne en explication et non en dessin dans l' exclusion vous marquez la noire =pas de maille 1 jeté entre 2 m 2 m ens à end glisse etc... ou est la case blanche? merci de votre réponse
09.02.2020 - 17:13DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Garson, je suis désolée, je ne vois pas de quel rang du diagramme vous parlez, pouvez-vous préciser votre question? A.1 se tricote d'abord sur 38 m, mais on va diminuer (= les cases noires correspondent aux mailles diminuées) et il reste 34 m quand A.1 est terminé. Sur les rangs avec une case noire, lisez le diagramme de droite à gauche comme avant, et passez la case noire comme si elle n'existait pas. Bon tricot!
10.02.2020 - 09:39
Danygarson skrifaði:
Re -bonjour incidemment je pense que c'est un oubli la case blanche absente dans le diagramme correspond toujours a une m end merci a vous
05.02.2020 - 16:34DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Garçon, la case noire correspond à une maille qui a été diminuée = cette maille n'existe donc plus: au 6ème rang de A.1, on diminue 2 mailles (les 2 cases en noir) = il reste 36 m dans chaque A.1. Puis à l'avant-dernier rang, on diminue de nouveau 2 mailles (= 4 cases noires au total) = on a 34 m dans chaque A.1. Bon tricot!
06.02.2020 - 09:28
Marjo skrifaði:
Hei, tarkoittaako mallikerrassa "jätä tämä ruutu väliin", että kyseinen silmukka nostetaan neulomatta?
28.11.2017 - 16:20DROPS Design svaraði:
Hei, tämä ruutu jätetään kokonaan huomioimatta, eli se ei enää ole mukan neuletyössä.
28.11.2017 - 17:31
Loly Aguilar skrifaði:
Porque es tan pequeño el talón en este modelo de calcetín?
21.06.2017 - 17:57DROPS Design svaraði:
Hola Loly, No hay ningún error en las explicaciones, si es eso a lo que te refieres, el tamaño del talón depende del modelo. En este caso, es pequeño.
24.06.2017 - 12:13
Loly Aguilar skrifaði:
Porque parece en la foto que hay más disminuciones en el empeine de las que dais en las Explicaciones?
19.06.2017 - 00:07DROPS Design svaraði:
Hola Loly. El patrón está correcto. En la foto puedes ver aprox 18 filas trabajadas en la parte de las disminuciones para el empeine, que es igual a 9 disminuciones cada 2ª vuelta.
24.06.2017 - 12:48
Gerrie skrifaði:
Hallo, een telpatroon, begin je met de eerste regel of met de laatste regel? mvg, Gerrie
24.02.2014 - 21:08DROPS Design svaraði:
Hoi Gerrie. Je begint onderaan met de eerste regel. Lees ook hier hoe je onze telpatronen moet lezen.
26.02.2014 - 17:20Madeleine skrifaði:
Que veux dire pas de maille dans un diagramme. Mercy de me respondre
30.01.2014 - 07:52DROPS Design svaraði:
Bonjour Madeleine, quand il n'y a pas de mailles dans un diagramme, c'est que celle-ci a été diminuée au rang précédent mais n'a pas été compensée, vous aurez donc 1 m en moins par case noire (soit pour A.1 2 puis 4 m en moins par motif) Bon tricot!
30.01.2014 - 10:53Madeleine skrifaði:
Que veux dire pas de maille dans un diagramme. Mercy de me respondre
30.01.2014 - 07:51
Fru Pettersen skrifaði:
Disse må bare strikkes!
29.12.2013 - 19:29
Monica skrifaði:
Utrolig vakre.
27.12.2013 - 08:24
Think Pink#thinkpinksocks |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónaðir sokkar með gatamynstri úr DROPS Fabel. Stærð 35-43.
DROPS 154-30 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu. ATH: Mynstur er prjónað í HVERRI UMFERÐ. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sl þar til 5-6-7 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br þar til 5-6-7 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sl þar til 4-5-6 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eina og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið br þar til 4-5-6 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 10-12-14 l eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 68-68-72 l á sokkaprjóna nr 2,5 með Fabel. Prjónið GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan – í 1 cm. Prjónið nú þannig: Prjónið 6 l br, stroffprjón 2 l sl, 2 l br yfir næstu 18-18-22 (þær 2 fyrstu og 2 síðustu l eiga að vera sl), 6 l br, A.1 (= 38 l). Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við stroffprjón þannig: Prjónið 4 l br, 2 l br saman, stroffprjón yfir 18-18-22 l eins og áður, 2 l br saman, 4 l br (= 2 l færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverjum cm 3 sinnum til viðbótar (= 8 l færri). JAFNFRAMT þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með A.2 (= 34 l) yfir A.1 = 56-56-60 l á prjóni eftir úrtöku. Þegar stykkið mælist 19-20-21 cm er prjónað sléttprjón yfir brugðnar lykkjur og yfir stroffprjóns lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 4-0-0 l jafnt yfir þessar l = 52-56-60 l = 18-22-26 hællykkjur í sléttprjóni. Haldið eftir fyrstu 18-22-26 l á prjóni fyrir hæl og hinar 34 l (= A.2) eru settar á þráð (= miðja ofan á fæti). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hæl-l í 5-5½-6 cm. Setjið prjónamerki – héðan er stykkið nú mælt! Prjónið HÆLÚRTAKA! Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 12-15-16 l hvoru megin við hæl og 34 l af þræði eru settar aftur á prjóninn = 68-76-80 l. Haldið áfram með A.2 yfir l ofan á fæti eins og áður og sléttprjón yfir þær l sem eftir eru. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu l á undan 34 ofan á fæti snúnar sl saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) og þær 2 fyrstu l á eftir miðju 34 l ofan á fæti slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 7-9-9 sinnum = 54-58-62 l. Prjónið þar til stykkið mælist 18-19-22 cm frá prjónamerki á hæl (= ca 4-5-5 cm að loka máli). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið svo að það verða 24-26-28 l undir fæti og 30-32-34 l ofan á fæti. Haldið áfram með sléttprjón yfir allar l – JAFNFRAMT er fækkað um 6 l jafnt yfir lykkjur ofan á fæti = 24-26-28 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Fækkið nú lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin – byrjið 2 l á undan l með prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl (prjónamerki er staðsett í þessari l), 2 l snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum í hvorri hlið í annarri hverri umf alls 4-7-6 sinnum og síðan í hverri umf 6-4-6 sinnum = 8 l eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #thinkpinksocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 154-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.