Beatrice skrifaði:
Bonjour auriez vous un diagramme plutot que des explications ou j'ai un peu de mal a saisir merci de votre comprehension
13.11.2018 - 16:29DROPS Design svaraði:
Bonjour Béatrice, nous n'avons pas de diagramme pour ce modèle, suivez attentivement les indications écrites pas à pas, rang après rang. Bon crochet!
14.11.2018 - 07:55
Daria skrifaði:
Co oznacza skrót 1sł2, 2sł2, 2sł3 itd. ?
09.12.2016 - 18:28DROPS Design svaraði:
Witam. Skrót sł2 oznacza słupek podwójny inaczej zwany też słupkiem podwójnie nawijanym. 2 sł2 = 2 słupki podwójne. POWODZENIA
12.12.2016 - 09:03
Mary-Ann Smith skrifaði:
Christmas star is called "poinsettia" in English 😊
07.10.2015 - 19:51
Dixie Merritt skrifaði:
I was trying to print the pattern for Crochet Summer Jacket in Safran but when I click on Get This Free Pattern it brings up Christmas Star pattern. I would like the pattern for the Summer Jacket. Thank you, Dixie
27.07.2015 - 22:12DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Merritt, please check the site where you click on the link to, or have a look on our crochet patterns in Safran. Happy crocheting!
28.07.2015 - 11:10
Maria skrifaði:
Nej, undskyld.. Jeg mener OMG: 4
15.10.2014 - 18:05DROPS Design svaraði:
Omgang 4 beskriver hvordan du hækler rundt om hver blad som blev dannet på 3.omgang. God fornøjelse!
28.10.2014 - 09:22
Maria skrifaði:
Hej Jeg forstår ikke helt OMG 5. Hvad gør man i mellem bladene??
13.10.2014 - 19:53DROPS Design svaraði:
Hej Maria, Du hækler nu imellem bladene bagved de første blade du hæklede. Der findes også flere hæklede blomster videoer at se på. God fornøjelse!
22.10.2014 - 10:57
Julia skrifaði:
Hej! Mönster med högre nr än 999 kan ej sökas via "Direkt mönstersök" då sifferrutan är för liten!
11.01.2014 - 11:44Marilia Rizzi Fermoselli skrifaði:
Bom dia, Gostaria que os modelos fossem disponibilizados para download em pdf. Obrigada, Marilia
30.12.2013 - 14:29
Francien skrifaði:
Er staat haaknaald 1,5 mm, met 3,5 mm gaat dit makkelijker.
22.12.2013 - 15:21Bettina skrifaði:
BRAVISSIMO!!!!!!!!!!!!!!!
15.12.2013 - 05:03
Christmas Star#christmasstarpotholder |
|
![]() |
![]() |
Heklaður pottaleppur úr DROPS Paris og blóm til skrauts úr DROPS Cotton Viscose. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-1000 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Leggið blöðin sem eiga að festast saman niður og sjáið hvernig þau passa best, stillið þeim saman ef þörf er á. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- POTTALEPPUR OG BLÓM - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Pottaleppurinn og blómið er heklað eftir sama mynstri. POTTALEPPUR OG BLÓM: Notið heklunál nr 4 með Paris fyrir pottaleppinn og notið heklunál nr 1,5 með Cotton Viscose fyrir blómið. Sleppið lykkjunni ef blómið þarf hana ekki. Heklið 4 ll með litnum skærgulur / sinnepsgulur og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 1 ll, * 1 fl, 4 ll *, endurtakið frá *-* 7 sinnum til viðbótar. Skiptið yfir í litinn rauður og endið á 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 2: Heklið 3 ll (= koma í stað fyrsta st), 2 st í 1. fl, 3 st í hverja fl hringinn, endið á 1 kl í 3. ll = 24 st. UMFERÐ 3: Í fyrstu l eru heklaðar 10 ll, í 2. ll frá heklunálinni er hekluð 1 fl, heklið nú í næstu 8 ll þannig: Heklið 1 hst, 1 st, 1 tbst, 1 þbst, 1 tbst, 1 st, 1 hst, 1 fl (= fyrsta blaðið), hoppið yfir 3 l, * í næstu l er hekluð 1 kl, 10 ll, í 2. ll frá heklunálinni er hekluð 1 fl, síðan er heklað í næstu 8 ll þannig: Heklið 1 hst, 1 st, 1 tbst, 1 þbst, 1 tbst, 1 st, 1 hst, 1 fl, hoppið yfir 3 l *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar. Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf = 6 blöð. UMFERÐ 4: Heklið nú í kringum blöðin þannig: * Heklið 1 ll + 1 fl, í hverja af næstu 8 l, 2 ll, 1 fl í hverja af næstu 9 l, 1 kl í fyrstu ll í næsta blaði *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar. UMFERÐ 5: Brjótið nú blöðin fram og heklið aftan við blöðin þannig: Heklið 3 ll, 6 st í 3. l frá umf 2 (nú er heklað fyrir aftan blöðin), * hoppið yfir 3 l og í 4. l á milli 2 næstu blaða eru heklaðir 6 st í sömu l *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar. Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf = 36 st. UMFERÐ 6: Heklið 13 ll, í 2. ll frá heklunálinni er hekluð 1 fl, heklið nú í næstu 11 ll þannig: Heklið 1 hst, 1 st, 2 tbst, 2 þbst, 2 tbst, 1 st, 1 hst, 1 fl (= fyrsta blað), hoppið yfir 2 l, * í næstu l er hekluð 1 kl, 13 ll, í 2. ll frá heklunálinni er hekluð 1 fl, heklið nú í næstu 11 ll þannig: Heklið 1 hst, 1 st, 2 tbst, 2 þbst, 2 tbst, 1 st, 1 hst, 1 fl, hoppið yfir 2 l *, endurtakið frá *-* 10 sinnum til viðbótar. Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf = 12 blöð. UMFERÐ 7: Heklið nú í kringum blöðin þannig: * Heklið 1 ll, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= alls 2 sinnum), * 1 ll, 1 hst í næstu l *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= alls 2 sinnum). * 1 ll, 1 st í næstu l *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 sinnum). Heklið 1 ll, 1 hst í næstu l, * 1 ll, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar (= alls 3 sinnum). Heklið 2 ll (oddurinn á blaðinu), 1 fl í hverja af næstu 3 l, 1 hst, 1 st í hverja af næstu 4 l, 1 hst, 1 fl í hverja af næstu 3 l, 1 kl í fyrstu ll á næsta blaði. Heklið nú * 1 ll og 1 fl í 2 næstu l, festið nú saman blöðin – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR – þannig: Heklið 1 kl aftan í lykkjubogann af hst frá fyrra blaði og oddurinn á blaðinu í umf 4. Heklið nú 1 hst, 1 ll og 1 st í 4 næstu l, 1 ll, 1 hst, 1 ll og 1 fl í 3 næstu l, 2 ll, 1 fl í hverja af næstu 3 l, 1 hst, 1 st í hverja af næstu 4 l, 1 hst, 1 fl í hverja af næstu 3 l, 1 kl í fyrstu ll á næsta blaði. Heklið nú 1 ll og 1 fl í 2 næstu l, festið nú blöðin saman þannig: Heklið 1 kl aftan í lykkjubogann af hst frá fyrra blaði. Heklið nú 1 hst, 1 ll og 1 st í 4 næstu l, 1 ll, 1 hst, 1 ll og 1 fl í 3 næstu l, 2 ll, 1 fl í hverja af næstu 3 l, 1 hst, 1 st í hverja af næstu 4 l, 1 hst, 1 fl í hverja af næstu 3 l, 1 kl í fyrstu ll á næsta blaði *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar. Heklið nú 1 ll og 1 fl í 2 næstu l, festið nú blaðið saman við fyrsta blaðið þannig: Heklið 1 kl aftan í lykkjubogann á hst frá fyrra blaði og oddinn á blaði í umf 4. Heklið nú 1 hst, 1 ll og 1 st í 4 næstu l, 1 ll, 1 hst, 1 ll og 1 fl í 3 næstu l, 2 ll, 1 fl í hverja af næstu 3 l, 1 hst, 1 st í hverja af næstu 4 l, 1 hst, 1 fl í hverja af næstu 3 l. Skiptið um yfir í litinn grænn / mosagrænn og heklið 1 kl í fyrstu ll í umf. UMFERÐ 8: Brjótið nú blaðið fram og heklið aftan við blaðið þannig: Heklið 3 ll (koma í stað 1. st), 4 st í 3. l frá umf 5, hoppið yfir 2 l og í 3. l eru heklaðir 4 st. Heklið nú * 5 st í 3. l í umf 5, hoppið yfir 2 l og í 3. l eru heklaðir 4 st *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar. Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf = 54 st. UMFERÐ 9: Heklið 1 ll, 3 fl, 1 kl í næstu l, 13 ll, í 2. ll frá heklunálinni er hekluð 1 fl, heklið síðan í næstu 11 ll þannig: Heklið 1 hst, 1 st, 2 tbst, 2 þbst, 2 tbst, 1 st, 1 hst, 1 fl. * Heklið 4 fl, í 5. l eru heklaðar 13 ll, í 2. ll frá heklunálinni er hekluð 1 fl, heklið nú í næstu 11 ll þannig: Heklið 1 hst, 1 st, 2 tbst, 2 þbst, 2 tbst, 1 st, 1 hst, 1 fl, 1 fl í hverja af næstu 3 l. Heklið nú 1 kl í næstu l, 13 ll, í 2. ll frá heklunálinni er hekluð 1 fl, heklið nú í næstu 11 ll þannig: Heklið 1 hst, 1 st, 2 tbst, 2 þbst, 2 tbst, 1 st, 1 hst, 1 fl *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar. Heklið nú 4 fl. Heklið nú blað með lykkju þannig: Heklið 1 kl í næstu l, heklið 24 ll, í 14. ll frá heklunálinni er hekluð 1 kl, heklið nú í næstu ll þannig: Heklið 1 fl, 1 hst, 1 tbst, 1 þbst, 1 tbst, 1 st, 1 hst, 1 fl. Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf = 12 blöð. UMFERÐ 10: Heklið 1 ll, 3 fl. Heklið nú í kringum blaðið þannig: Heklið 1 fl í 6 næstu l, festið nú blaðið saman við blað í umf 7 – MUNIÐ EFTIR HEKLLEIÐBEININGAR- þannig: Heklið 1 kl aftan í lykkjubogann í efsta hst á blaði til hægri í umf 7. Heklið nú 1 ll og 1 fl í 6 næstu l, 2 ll, 1 fl í 6 næstu l, festið nú blaðið saman við blað í umf 7 þannig: Heklið 1 kl aftan í lykkjubogann í efsta hst áblaði til vinstri í umf 7. Heklið nú 1 fl í hverja af næstu 6 fl. * Heklið 1 fl í hverja af næstu 4 l. Heklið nú í kringum næsta blað þannig: Heklið 1 kl í næstu l, 1 ll og 1 fl í 5 næstu l, festið nú blaðið saman við blað í umf 7 þannig. Heklið 1 kl aftan í lykkjubogann í efsta hst á blaði til hægri í umf 7. Heklið nú 1 ll o g1 fl í 6 næstu l, 2 ll, 1 fl í 6 næstu l, festið nú blaðið saman við blað í umf 7 þannig: Heklið 1 kl aftan í lykkjubogann í efsta hst á blaði til vinstri í umf 7, 1 fl í hverja af næstu 3 fl. Heklið nú í kringum næsta blað þannig: Heklið 1 kl í næstu l, 1 ll og 1 fl í 5 næstu l, festið nú blaði saman við blað í umf 7 þannig: Heklið 1 kl aftan í lykkjubogann í efsta hst á blaði til hægri í umf 7. Heklið nú 1 ll og 1 fl í 6 næstu l, 2 ll, 1 fl í 6 næstu l, festið nú blaðið við blað í umf 7 þannig: Heklið 1 kl aftan í lykkjubogann í efsta hst á blaði til vinstri í umf 7, 1 fl í hverja af næstu 6 l *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar. Heklið 4 fl. Heklið nú í kringum síðasta blaðið þannig. Heklið 1 kl í næstu l, 1 ll og 1 fl í 5 næstu l, festið nú blaðið saman við blað í umf 7 þannig: Heklið 1 kl aftan í lykkjubogann í efsta hst á blaði til hægri í umf 7. Heklið nú 1 ll og 1 fl í 6 næstu l, 1 kl í hverja af 14 ll fyrir lykkju, 1 fl í 6 næstu l, festið nú blaðið saman við blað í umf 7 þannig. Heklið 1 kl aftan í lykkjubogann í efsta hst á blaði til vinstri í umf 7, 1 fl í hverja og eina af 6 næstu l. Endið á 1 kl í fyrstu ll í umf. Heklið annan pottalepp til viðbótar á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #christmasstarpotholder eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1000
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.