DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3432.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-739
DROPS Design: Mynstur nr R-577
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Í 2 stykki pottaleppa þarf:

GARN:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
100 gr litur nr 12, rauður
100 gr litur nr 41, vínrauður
50 gr litur nr 06, ljós bleikur
50 gr litur nr 08, natur

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 3.

HEKLFESTA:
22 stuðlar á breidd og 11 umferðir á hæðina = 10 x 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3432.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

POTTALEPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Hekluð er fram- og bakhlið sem síðan er hekluð saman í pottalepp með blúndukanti yst.

FRAMHLIÐ:
HEKLAÐUR FERNINGUR MEÐ BLÓMI:
Heklið 8 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum ljós bleikur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 1: 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), 2 stuðlar um hringinn, * 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja efst í síðasta stuðul sem var heklaður, 3 stuðlar um hringinn *, endurtakið frá *-* alls 7 sinnum og endið með 6 loftlykkjur, 1 fastalykkja í síðasta stuðul sem var heklaður og 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 8 loftlykkjubogar með 3 stuðlum á milli hverra. Klippið þráðinn.
UMFERÐ 2: Skiptið yfir í litinn natur. 1 fastalykkja í næsta stuðul (miðju af 3 stuðlum), * 12 stuðlar um loftlykkjuboga (= 1 blað), hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í miðju af næstu 3 stuðlum *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar. Klippið þráðinn (= 8 blöð með 1 fastalykkju á mill hverra).
UMFERÐ 3: Skiptið yfir í litinn rauður. Brjóttu blaðið að þér og heklaðu frá bakhlið á blómi þannig: 1 loftlykkja, * 5 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu fastalykkju á milli 2 blaða, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næstu fastalykkju á milli 2 blaða *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar (í stað 1 fastalykkju um næstu fastalykkju).
UMFERÐ 4. 1 keðjulykkja um fyrsta 5-loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), 2 stuðlar + 3 loftlykkjur + 3 stuðlar um sama loftlykkjuboga, 3 stuðlar um 3-loftlykkjuboga, * 3 stuðlar + 3 loftlykkjur + 3 stuðlar um 5-loftlykkjuboga, 3 stuðlar um 3-loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið með 1 keðjulykkju í byrjun umferðar (= 9 stuðlar í hliðum og 3 loftlykkjur í horni).
UMFERÐ 5: 4 loftlykkjur (= 1 stuðull + 1 loftlykkja), hoppið yfir 1 stuðul (2. af 3), 1 stuðull í næsta stuðul (3. af 3), 1 loftlykkja, * um loftlykkjuboga í horni er heklað 1 stuðull + 3 loftlykkjur + 1 stuðull, (1 loftlykkja, 1 stuðull í næsta stuðul, hoppið yfir 1 stuðul), endurtakið frá (-) alls 5 sinnum, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, um loftlykkjuboga í horni er heklað 1 stuðull + 3 loftlykkjur + 1 stuðull, endurtakið frá (-) alls 3 sinnum og endið með 1 loftlykkju og 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar (= 3 loftlykkjur í hverju horni + 7 stuðlar með 1 keðjulykkju á milli).
UMFERÐ 6: 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið síðan 1 stuðul um hverja loftlykkju og 1 stuðul í hvern stuðul og um 3-loftlykkjuboga í hverju horni er heklaður 1 stuðull + 3 loftlykkjur + 1 stuðull, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 15 stuðlar meðfram hverri hlið og 3 loftlykkjur í hverju horni.
UMFERÐ 7: 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðul + 3 loftlykkju + 1 stuðul um 3-loftlykkjuboga í hverju horni, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 17 stuðlar meðfram hvorri hlið og 3 loftlykkjur í hverju horni. Klippið þráðinn.
UMFERÐ 8: Skiptið yfir í litinn vínrauður og á sama hátt og umferð 7 = 19 stuðlar meðfram hverri hlið og 3 loftlykkjur í hverju horni. Klippið þráðinn.
UMFERÐ 9: Skiptið yfir í litinn rauður og byrjið með 1 keðjulykkju um loftlykkjuboga í einu horninu. 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í næsta stuðul, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* alls 9 sinnum, en í síðasta skipti er endað með 1 fastalykkju um loftlykkjuboga í horni (í stað 1 fastalykkju í næsta stuðul). Endurtakið frá *-* meðfram næstu hlið á ferningi. Klippið þráðinn og festið, nú er blúndukantur meðfram 2 hliðum á ferningi.

HJARTABOGAR.
UMFERÐ 1: Byrjið frá röngu meðfram annarri hliðinni með blúndukanti og heklið með litnum ljós bleikur þannig: 1 fastalykkja í 7. stuðul frá kanti (þ.e.a.s. í stuðul frá umferð 8 á ferningi), 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í næsta stuðul, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í næsta stuðul, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðul, 1 fastalykkja í næsta stuðul, snúið stykkinu (nú eru 6 stuðlar eftir í umferð á undan horni).
UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið 10 stuðla um 3-loftlykkjuboga og endið með 1 fastalykkju í næsta stuðul frá umferð 8 á ferningi (nú eru 5 stuðlar eftir í umferð á undan horni). Klippið þráðinn og snúið stykkinu.
UMFERÐ 3: Skiptið yfir í litinn natur, 1 loftlykkja, 1 fastalykkja í hvern af 10 stuðlum, 1 fastalykkja í fastalykkju frá umferð 1 (= 1 loftlykkja + 11 fastalykkjur), 1 fastalykkja í næsta stuðul frá umferð 8 á ferningi. Skiptið yfir í litinn rauður, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðul frá umferð 8 á ferningi, 1 fastalykkja í næsta stuðul (nú eru 3 stuðlar eftir í umferð á undan horni, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= rétta): * 1 stuðull í næstu fastalykkju, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* alls 11 sinnum og endið með 1 stuðul í síðustu fastalykkju, hoppið yfir 1 stuðul frá umferð 8 á ferningi, 1 fastalykkja í næsta stuðul, 1 keðjulykkja í næsta stuðul frá umferð 8 á ferningi (nú eru 3 stuðlar eftir í umferð á undan horni, snúið stykkinu.
UMFERÐ 5: 1 fastalykkja í 1. stuðul í boga, heklið síðan þannig: * 1 fastalykkja um loftlykkju, 1 fastalykkja í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* alls 11 sinnum, endið með 1 fastalykkju í síðasta boga og 1 keðjulykkju í næsta stuðul frá UMFERÐ 8 á ferningi (nú eru 2 stuðlar eftir í umferð á undan horni). Klippið þráðinn. Skiptið yfir í litinn vínrauður, 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðul frá umferð 8 á ferningi, 1 fastalykkja í síðasta stuðul og snúið stykkinu.
UMFERÐ 6: Heklið síðan meðfram boganum þannig: 1 stuðull í fyrstu fastalykkju, * 2 stuðlar í næstu fastalykkju, 1 stuðul í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* alls 11 sinnum = 34 stuðlar, 1 loftlykkja, hoppið yfir 2 stuðla, 1 keðjulykkja í síðasta stuðul frá umferð 8 á ferningi. Heklið 2 loftlykkjur, 1 keðjulykkja um loftlykkjuboga í horni á ferningi og snúið stykkinu.
UMFERÐ 7: Heklið 1 stuðul í hvern af 34 stuðlum meðfram boganum, 1 stuðull í síðustu fastalykkju, endið með 1 keðjulykkju í loftlykkjuboga í horni. Klippið þráðinn og festið alla þræði.

Heklið annan hjartaboga á sama hátt meðfram hinni hliðinni á ferningi með blúndukanti – munið eftir að 1. umferð er hekluð frá röngu.

HEKLAÐUR FERNINGUR EKKI MEÐ BLÓMI:
Heklið 8 loftlykkjur með heklunál 3 með litnum rauður og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 1: 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið síðan 23 stuðla um hringinn, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar = 24 stuðlar.
UMFERÐ 2: 1 loftlykkja (= 1 fastalykkja), * 5 loftlykkjur, hoppið yfir 2 stuðla, 1 fastalykkja í næsta stuðul, 3 loftlykkjur, hoppið yfir 2 stuðla, 1 fastalykkja í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, en endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar (í stað 1 fastalykkju í næsta stuðul).
UMFERÐ 3: 1 keðjulykkja um fyrsta 5-loftlykkjubogann, 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), 2 stuðlar + 3 loftlykkjur + 3 stuðlar um sama loftlykkjuboga, 3 stuðlar um 3-loftlykkjuboga, * 3 stuðlar + 3 loftlykkjur + 3 stuðlar um 5-loftlykkjuboga, 3 stuðlar um 3-loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun umferðar.
UMFERÐ 4: 4 loftlykkjur (= 1 stuðull + 1 loftlykkja), hoppið yfir 1 stuðul, 1 stuðull í næsta stuðul, 1 loftlykkja, * um loftlykkjubogann í horni er heklað 1 stuðull + 3 loftlykkjur + 1 stuðull, (1 loftlykkja, 1 stuðull í næsta stuðul, hoppið yfir 1 stuðul), endurtakið frá (-) alls 5 sinnum, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, um loftlykkjubogann í horni er heklað 1 stuðull + 3 loftlykkjur + 1 stuðull, endurtakið frá (-) alls 3 sinnum og endið með 1 loftlykkju og 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar.
UMFERÐ 5: 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið síðan 1 stuðul um hverja loftlykkju og 1 stuðul í hvern stuðul og um 3-loftlykkjuboga í hverju horni er heklað 1 stuðull + 3 loftlykkjur + 1 stuðull, endið með 1 keðjulykkju í 3. Loftlykkju í byrjun umferðar = 15 stuðlar meðfram hverri hlið og 3 loftlykkjur í hvert horn.
UMFERÐ 6: 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið síðan 1 stuðul í hvern stuðul og 1 stuðull + 3 loftlykkjur + 1 stuðull um 3-loftlykkjuboga í hverju horni, endið með 1 keðjulykkju í 3. Loftlykkju í byrjun umferðar = 17 stuðlar meðfram hverri hlið og 3 loftlykkjur í hverju horni. Klippið þráðinn.
UMFERÐ 7: Skiptið yfir í litinn vínrauður og heklið á sama hátt og umferð 7 = 19 stuðlar meðfram hverri hlið og 3 loftlykkjur í hverju horni. Klippið þráðinn og festið.

HJARTABOGAR:
Heklið á sama hátt og á framhlið, en fyrstu 5 umferðir eru heklaðar með litnum rauður og síðustu 2 umferðir eru heklaðar með litnum vínrauður. Klippið og festið alla enda.

FRAM- OG BAKHLIÐ HEKLAÐ SAMAN.
Leggið 2 pottaleppana ofan á hvorn annan með röngu á móti röngu. Heklið með heklunál 3 með litnum rauður þannig – byrjið frá réttu í loftlykkjubogann í horni á milli 2 hjartaboga (og heklið á bakhlið á blúndukanti) þannig:
UMFERÐ 1: 1 keðjulykkja um loftlykkjuboga í horni, 16 loftlykkjur (= lykkja), 1 keðjulykkja um sama loftlykkjuboga. Heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju alla umferðina hringinn – ATH. Heklað er í gegnum heila lykkju og í gegnum bæði lögin samtímis, endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í byrjun umferðar.
UMFERÐ 2: Skiptið yfir í litinn natur og heklið 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í 1. fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu keðjulykkju (sú sem keðjulykkjan var fest með), * 2 loftlykkju, 1 fastalykkja í 1. loftlykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 fastalykkja í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun umferðar (í stað 1 fastalykkju í næstu lykkju). Klippið og festið þræðina.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-739

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Dani wrote:

Vielen Dank für Ihre Antwort. Hab`s beim 2.ten Versuch rausgekriegt: In Reihe 4 muss man gut aufpassen, dass man sich nicht verzählt. Den Farbwechsel hab ich auch gefunden :) Alles gut ! Vielen Dank für diese tolle Anleitung, bin absoluter Drops-Design-Fan :)

13.12.2019 - 13:52

country flag Dani wrote:

Liebes Drops-Team, leider entsteht nach der Beschreibung bei der Vorder- und Rückseite ein 5-Eck, anstatt ein 4-Eck, so gelingt das Herz nicht. Auch ist beim Bogen ein Farbwechsel nicht beschrieben und die Reihe 5 sehr unverständlich. Bitte helfen Sie mir :) wollte den Topflappen zu Weihachten verschenken, Danke Schön :)

12.12.2019 - 20:13

DROPS Design answered:

Liebe Dani, Gerne helfen wir Ihnen; sagen Sie uns bitte mehr :) Ab welche Runde (und Vorder- oder Rückenteil) bekommen Sie ein 5-Eck? Farbwechsel sollten alle beschrieben werden, welche Reihe 5 verstehen Sie nicht? Vorder- oder Rückenteil? :)

13.12.2019 - 08:03

country flag Elena wrote:

Stupenda! Abbastanza grande, spessa, molto bella da vedere.

16.04.2019 - 09:56

country flag Maiken wrote:

Hei,ser at denne flotte heklede grytekut er sortert under strikke teknikk.Håper det kan endres på,slik at de som søker etter heklet gryteklut IKKE går glipp av den ?

18.12.2016 - 01:35

DROPS Design answered:

Hej Maiken. Vi har rettet, tak for beskeden

21.12.2016 - 14:39

country flag Diane wrote:

Just beautiful and the completed project can be found in my store under, Copper Creek Crochet!

22.02.2013 - 23:55

country flag Eschenbacher wrote:

Hey, ich wollte dieses tolle Projekt häkeln, aber bereits am Anfang mit der rosafarbenen Wolle (dem Inneren der Blume) hänge ich fest. Wenn man jedesmal 6 Luftmachen häkeln soll nach den Stäbchen hat man doch 7 weitere kleine Ringe. Wie soll das gehn. War das ein Versehen??

17.11.2012 - 20:51

DROPS Design answered:

Hallo Frau Eschenbacher. Die rosa Luftmaschenbögen sind die Basis für die weißen Blätter, die in der nächsten Rd gehäkelt werden. Viel Spaß beim Häkeln!

20.11.2012 - 09:09

country flag Jeanne wrote:

Beste mevrouw,ik wilde graag de pannelap haken,maar de hartjesboog wil maar niet lukken.Ik heb de foto van de pannelap al vergroot zodat ik misschien de steken beter kon zien, maar helaas ik heb het werk al diverse keren uitgehaald.Mijn vraag is nu heeft U misschien een teltekening van de hartjesboog.Bij voorbaat hartelijk dank Mevr.Maas Lossez

20.07.2012 - 19:15

DROPS Design answered:

Hoi. We hebben hier helaas geen teltekening van en de vertaling zou moeten kloppen. De werkwijze van het patroon is helemaal uitgeschreven en het is voor mij moeilijk om dit nog verder uit te schrijven. Maar u haakt eers een rij van v in toer 1 en pas in toer 2 haakt u de eerste roze boog zoals te zien is op de foto. Misschien kunt u uw haakwerk meenemen naar uw DROPS winkel voor persoonlijke ondersteuning.

26.07.2012 - 15:49

Nicole wrote:

Bonjour, J'aimerais offrir cette magnifique manique à ma nièce pour son anniversaire mais malheureusement, je suis bloquée pour les arrondis du coeur. Je ne comprend pas la façon de commencer l'arrondi tout en l'attachant au carré. Avez-vous un vidéo sur la-dessus? Merci de me répondre N. Larose

19.03.2012 - 19:02

DROPS Design answered:

Bonjour Nicole, les 2 arrondis se font séparément, l'un après l'autre, en commençant sur l'envers, le long d'un des 2 côtés où vous avez crocheté le tour 9, mais en piquant dans les mailles du 8ème tour du carré. Bon crochet !

20.03.2012 - 08:46