Jemai skrifaði:
Bonsoir pour faire la souris je bloque au rang 8 que je comprend pas car je tombe pas a 28 mail les autres tours de 1 a 7 c est super bien ensuite non rien fonctionne sois il y a une erreur ou je comprend pas trop faut faire 2 diminution ensuite 1 maille serré et 2 maille serré dans une meme mail sachant qu on peu pas le faire 7 fois je comprend pas aidez moi merci beaucoup
23.05.2017 - 21:17DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Jenai, au tour 8, on commence par diminuer 2 fois en crochetant 2 fois 2 ms écoulées ensemble, puis on augmente 8 fois au total en crochetant ainsi: (1 ms dans la ms suiv, 2 ms dans la ms suiv), il reste 4 ms avant la fin du tour, on crochète 2 fois 2 ms écoulées ensemble = 2 diminutions. On va avoir ainsi: 2 m (= les 2 diminutions + (8 x 3 = 24 m ) soit les augmentations et on 2 x 1 m (les 2 dernières diminutions) = 28 ms. Bon crochet!
24.05.2017 - 08:49
Tarja Vellamo skrifaði:
Hei! Virkattu hiiri Big Merino langasta ohjeessa. jalan ohjeessa on virhe. 18:sta silmukasta ei voi vähentää: "1s. jokaiseen 5 seuraavaan silmukkaan",-toista vielä kolme kertaa ja virkkaa jäljelle jääviin 5 silmukkaan 1s, Työssä 14s.
06.03.2015 - 00:17Oana skrifaði:
Can you please make a tutorial video for this? I think I've followed the pattern exactly and yet the head looks very weird, not at all rounded like in your pictures, but more prolongued and pointy.
09.12.2014 - 01:20DROPS Design svaraði:
Dear Oana, your request has been registered. Filling the head may help to give it a more rounded shape. Happy crocheting!
10.12.2014 - 09:53
Hanne skrifaði:
Die Anleitung für die Beine ist falsch und zwar soll ich in der 5. Runde 18 feste Maschen haben. Dann kann die 6. Runde nicht richtig sein. Würde ich sie nach der Angabe häkeln, müßte ich 28 Maschen haben.
23.04.2014 - 16:01DROPS Design svaraði:
Liebe Hanne, in der 6. Runde nehmen Sie ab, nicht zu. In Rd 5 haben Sie 18 fM und nehmen in der 6. Rd 4 fM ab, indem Sie 4 x 2 fM zusammenhäkeln. Dann kommen Sie auf 14 fM, so, wie es in der Anleitung steht.
23.04.2014 - 16:17
Maite Nicolas Criado skrifaði:
Hola, yo creo que la cabeza esta mal explicada, los aumentos a partir de la vuelta 5 creo que esta mal no se.....
30.12.2013 - 20:47
Tara skrifaði:
Super lief ik ben er al aan begonnen bedankt
14.12.2013 - 16:30Bettina skrifaði:
So cute, I like it!
05.12.2013 - 21:46
Stuart Little |
|
![]() |
![]() |
Hekluð mús úr DROPS Big Merino í buxum með axlaböndum. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-990 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er heklað með þessari aðferð. Haldið í endann með vinstri hendi og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri að hægri). Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingri. Heklunálinni er stungið inn í hringinn, þræðinum er brugðið um hana og þráðurinn dreginn upp úr hringnum, heklið 1 ll, heklið nú fl utan um galdrahringinn. Þegar sá fjöldi fl er kominn sem þú óskar eftir, dragið í endann á þræðinum þannig að lykkjan dragist saman og gatið hverfi. Festið endann á bakhlið. Haldið áfram að hekla í hring. HEKLAÐ Í HRING: Eftir síðustu fl í umf, haldið áfram að næstu umf með 1 fl í næstu fl (= fyrsta fl frá fyrri umf). ATH: Merkið byrjun umf með prjónamerki á milli síðustu fl í umf og fyrstu fl í næstu umf, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. HEKLAÐ SAMAN: Heklið 1 fl, bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), hekli síðan næstu fl (eða næstu 2 fl alveg eins), þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni. LITASKIPTI: Til þess að ná fram fallegum litaskiptum er síðasta fl í umf hekluð þannig: Stingið heklunálinni í síðustu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum með nýja litnum um heklunálina og dragið í gegnum l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- MÚS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er höfuðið og búkurinn heklað, síðan fætur og hendur. HÖFUÐ: Stykkið er heklað í hring með heklunál nr 4. Byrjið neðst á nefinu með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – með litnum grár. UMFERÐ 1: Heklið 4 fl um galdrahringinn. Lesið HEKLAÐ Í HRING. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 8 fl. UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 16 fl. UMFERÐ 5: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 20 fl. UMFERÐ 6: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 4 fl, 2 fl í næst fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl. UMFERÐ 8: Heklið fyrstu 2 fl saman – LESIÐ HEKLAÐ SAMAN, heklið næstu 2 fl saman, 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* 7 sinnum til viðbótar (alls 8 útaukningar), heklið síðan 4 síðustu fl 2 og 2 saman = 28 fl. UMFERÐ 9: Heklið 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, * 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* 7 sinnum til viðbótar (alls 8 útaukninga), síðan 1 fl í hvora af síðustu 2 fl = 36 fl. UMFERÐ 10: Heklið 1 fl í hverja fl = 36 fl. UMFERÐ 11: Heklið 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, * 1 fl í hverja af næstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* 7 sinnum til viðbótar (alls 8 útaukningar), heklið nú 1 fl í hvora af síðust 2 fl = 44 fl. UMFERÐ 12: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 18 fl, * 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar (alls 4 útaukningar), heklið nú 1 fl í hverja af þeim 18 fl sem eftir eru = 48 fl. Setjið 1 prjónamerki á milli miðju 2 útaukninga = miðja að framan (þetta er fyrir frágang). UMFERÐ 13-15: Heklið 1 fl í hverja fl = 48 fl í umf. UMFERÐ 16: * Heklið 1 fl í hverja af 6 næstu fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 42 fl. UMFERÐ 17: Heklið 1 fl í hverja fl = 42 fl í umf. UMFERÐ 18: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 5 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl. UMFERÐ 19: Heklið 1 fl í hverja fl = 36 fl. UMFERÐ 20: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 4 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. UMFERÐ 21: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 3 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 22: * Heklið 1 fl í hverja af 2 næstu fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 23: * Heklið 1 fl í næstu fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. Klippið ekki frá. Saumið út með litnum svartur fyrir augu og munn á höfuðið, gerið 1 hnút með litnum rauður fyrir nef. Fyllið höfuðið með vatti. Haldið áfram að hekla höfuðið til loka þannig: UMFERÐ 24: Heklið allar fl 2 og 2 saman = 6 fl. Klippið frá og dragið þráðinn í gegnum allar l, herðið að. EYRA: Stykkið er heklað fram og til baka. UMFERÐ 1: Með byrjun neðst á eyra, heklið 5 ll með litnum grár, síðan 2 fl í 2. ll frá heklunálinni, 1 fl í hvora af næstu 2 ll, 2 fl í síðustu ll = 6 fl, snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, 2 fl í 1. fl , 1 fl í hverja fl þar til 1 fl er eftir, 2 fl í síðustu fl = 8 fl, snúið við. UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, 1 fl í hverja fl = 8 fl. UMFERÐ 4: Heklið 1 ll, heklið fyrstu 2 fl saman, 1 fl í hverja fl þar til 2 fl eru eftir, heklið síðustu 2 fl saman = 6 fl. Endurtakið umf 4 2 sinnum til viðbótar = 2 l eftir í umf, klippið frá og festið enda. Heklið annað eyra til viðbótar á sama hátt. Brjótið eyrun saman tvöföld neðst niðri og saumið þau niður hvoru megin við höfuðið. BÚKUR: Stykkið er heklað í hring með heklunál nr 4. Byrjið með því að gera galdrahring neðst á búk með litnum rauður. UMFERÐ 1: Heklið 8 fl um galdrahringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 16 fl. UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í hvora af næstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 32 fl. UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja fl = 32 fl. UMFERÐ 6: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 40 fl. UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja fl = 40 fl. UMFERÐ 8: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 9 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 44 fl. UMFERÐ 9-14: Heklið 1 fl í hverja fl = 44 fl í umf – en í lok síðustu umf er skipt yfir í litinn grár – LESIÐ LITASKIPTI. UMFERÐ 15: Heklið 1 fl í hverja fl = 44 fl. UMFERÐ 16: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 9 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 40 fl. UMFERÐ 17-18: Heklið 1 fl í hverja fl = 40 fl. UMFERÐ 19: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 3 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 32 fl. UMFERÐ 20-21: Heklið 1 fl í hverja fl = 32 fl í umf. UMFERÐ 22: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 2 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 23-24: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl í umf. UMFERÐ 25: * Heklið 1 fl í hverja af næstu 2 fl, heklið nú 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 26-27: Heklið 1 fl í hverja fl = 18 fl í umf. Klippið frá og haldið eftir 30 cm fyrir frágang. Fyllið búkinn með vatti. FÓTUR: Stykkið er heklað í hring með heklunál nr 4. Byrjið lengst niðri á fæti með því að gera galdrahring með litnum rauður. UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um galdrahringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12 fl. UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 4 og 5: Heklið 1 fl í hverja fl = 18 fl í umf. UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 5 fl, * heklið 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar (alls 4 úrtökur), síðan 1 fl í hverja af síðustu 5 fl í umf = 14 fl. UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, * heklið 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar (alls 4 úrtökur), síðan 1 fl í hverja af síðustu 3 fl í umf = 10 fl. UMFERÐ 8 og 9: Heklið 1 fl í hverja fl = 10 fl í umf – en í lok síðustu umf er skipt yfir í grár – LESIÐ LITASKIPTI. Heklið nú 1 fl í hverja fl þannig: * Heklið 2 umf með litnum grár, 2 umf með litnum rauðum *, endurtakið frá *-* þar til það verða alls 3 rendur með litnum rauður, heklið nú 2 umf til viðbótar með litnum rauður (fóturinn mælist ca 10 cm). Klippið frá og haldið eftir 20 cm fyrir frágang. Heklið hinn fótinn á sama hátt. Fyllið fótinn með vatti. HANDLEGGUR: Stykkið er heklað í hring með heklunál nr 4. Byrjið lengst niðri á handlegg með því að gera galdrahring með litnum rauður. UMFERÐ 1: Heklið 4 fl um galdrahringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 8 fl. UMFERÐ 3: * Heklið 1 fl í næstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. UMFERÐ 4 og 5: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl í umf. UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í næstu fl, heklið 2 næstu fl saman, endurtakið frá *-* umf hringinn = 8 fl – skiptið yfir í litinn grár í lok umf. Heklið nú 1 fl í hverja fl með litnum grár þar til handleggurinn mælist ca 9 cm. Klippið frá og haldið eftir 20 cm fyrir frágang. Heklið annan handlegg á sama hátt. Fyllið með vatti. SKOTT: Heklið ll í ca 22 cm með litnum grár með heklunál nr 4 (fjöldi l á að vera jafn), snúið við og heklið 1 kl í 2. ll frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 ll, 1 kl í næstu ll *, endurtakið frá *-* meðfram allri ll-umf, klippið frá og haldið eftir 20 cm fyrir frágang. FRÁGANGUR: Saumið niður höfuðið á búkinn með fínu spori. Saumið fæturna og hendurnar í hvorri hlið á búk, saumið skottið aftan á búk. AXLABÖND: Heklið 3 ll með litnum rauður með heklunál nr 4. Heklið 1 fl í 2. ll og 1 fl í næstu ll. Byrjið hverja umf með 1 ll og heklið fl fram og til baka þar til stykkið mælist 14 cm. Endið á 8 ll og 1 kl í síðustu fl í umf. Klippið frá. Heklið annað band til viðbótar. Saumið niður í byrjun á síðustu umf með litnum rauður, (buxur) aftan á músinni með ca 4 cm millibili. Saumið tvær tölur í síðustu umf með litnum rauður á músinni ca 3,5 cm frá miðju að framan og festið í ll-hringinn á axlaböndunum í kringum tölur. Axlaböndin eiga að vera í kross aftan á baki. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-990
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.