Colomo skrifaði:
Peut tricoter ce modele en grosseur de la laine 3 merci de me donner les explication pour le realiser ,je suis debutante encore merciiiiiii
20.03.2016 - 16:13DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Colomo, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande individuelle. Vous pouvez rechercher dans notre base de données un modèle correspondant à votre tension ou demander conseil au magasin où vous avez acheté votre fil. Bon tricot!
21.03.2016 - 10:21
Liliana Bisognin skrifaði:
Realizzato,bellissimo grazie,Liliana
07.01.2016 - 15:20
Minger skrifaði:
J'ai fait 2 fois ce modèle; 1 fois pour ma petite fille, une fois pour moi... Très agréable à tricoter et à porter. Cordialement. FM
17.10.2014 - 15:13
Kristin skrifaði:
Hallo nochmal :-) die Jacke ist wirklich sehr schön geworden! Und die Wolle war gut bemessen - in Gr. S sind ca. 10g übrig geblieben. Daraus habe ich eine Häkelblume gemacht, gefilzt und auf den Kragen aufgenäht :-)
12.05.2014 - 10:22DROPS Design svaraði:
Liebe Kristin, eine wunderschöne Idee! Viel Spaß beim Tragen und bei den nächsten Strickprojekten! :-)
12.05.2014 - 16:52
Minger skrifaði:
Je l'ai fait avec le coloris 7139. Superbe. Par contre j'ai pris une taille de moins. C'est suffisant.
11.05.2014 - 17:35
Kristin skrifaði:
Danke für den Tipp :-) hat gut geklappt!
08.05.2014 - 08:14
Kristin skrifaði:
Hallo! Ich stricke dieses Model gerade in dunkellila, wird sehr schön. Anders als auf dem Foto rollen sich die Krausrippen zu Beginn der Arbeit aber unschön nach außen - gibt es neben Dämpfen eine andere Möglichkeit, das zu glätten?
06.05.2014 - 09:04DROPS Design svaraði:
Liebe Kristin, Sie können Teile nach dem Stricken mit Stecknadeln auf einer geeigneten Unterlage (Teppich, Styroporplatte o.Ä.) feststecken (dabei die richtigen Maße der Teile einhalten), anfeuchten, z.B. mit einer Sprühflasche für Blumen, und vollständig trocknen lassen. Oder Sie legen feuchte Tücher auf die aufgespannten Teile und lassen alles trocknen. Danach sollte sich der Rand nicht mehr eindrehen.
06.05.2014 - 14:40Eva skrifaði:
Love this jacket,it is baggy for size,but i knit 2 sizes smaller.will be ok,lovely.
01.03.2014 - 14:11Елена skrifaði:
Очень симпатичная и стильная модель. Обязательно свяжу такую.
30.12.2013 - 19:38
Hector skrifaði:
Qu est ce que des rangs racourcis
21.12.2013 - 18:54DROPS Design svaraði:
Bonjour Hector, les rangs raccourcis sont des rangs que l'on tricote partiellement pour donner la forme voulue (ici pour le col). La vidéo ci-dessous vous montre comment procéder. Bon tricot!
27.12.2013 - 14:23
Uptown Girl#uptowngirlcardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Lima með tvöföldu perluprjóni og sjalkraga. Stærð S - XXXL
DROPS 151-12 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. TVÖFALT PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir sl og br yfir br. UMFERÐ 3: * Prjónið 1 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 4: Prjónið br yfir br og sl yfir sl. Endurtakið umf 1 til 4. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti br saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S - XXXL: 1, 7, 13 og 19 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar l. Stykkið er fyrst prjónað í sléttprjóni og síðar í TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. BAKSTYKKI: Fitjið upp 88-96-104-112-124-136 l á hringprjóna nr 4 með Lima. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið nú áfram í sléttprjóni. Prjónið 0-0-0-0-0-2 umf sléttprjón. Aukið síðan út í hvorri hlið á stykkinu í hverri umf frá réttu þannig: Prjónið 1 l 8-12-14-16-20-20 sinnum, fitjið síðan upp 2 l í lok hverrar umf alls 13-10-8-6-2-0 sinnum í hvorri hlið = 156-160-164-168-172-176 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 0-0-0-0-0-2 umf sléttprjón. Stykkið mælist nú ca 18 cm í öllum stærðum. Fitjið síðan upp 6 l í hvorri hlið á stykkinu í lok 2 næstu umf = 168-172-176-180-184-188 l. Þær 6 útauknu l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni, JAFNFRAMT er prjónað TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, yfir miðju 156-160-164-168-172-176 l. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm fellið af 6 l garðaprjón í hvorri hlið (fellið af í byrjun á næstu 2 umf) = 156-160-164-168-172-176 l. Prjónið síðan tvöfalt perluprjón JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: 4 lykkjur 6-4-1-1-0-0 sinnum og 2 lykkjur 12-17-22-23-25-26 sinnum. JAFNFRAMT þegar eftir eru 2 l til að fækka í hvorri hlið eru felldar af miðju 18-18-20-20-22-22 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 20-20-23-23-24-24 l eftir á öxl. Í næstu umf á eftir síðustu úrtöku í hlið eru allar l felldar af, stykkið mælist ca 48-51-54-56-57-59 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 48-52-56-60-66-72 l (meðtaldar 4 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjóna nr 4 með Lima. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Stykkið er prjónað áfram í sléttprjóni með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni – kanturinn er prjónaður í garðaprjóni til loka. Prjónið 0-0-0-0-0-2 umf sléttprjón. Síðan eru fitjaðar upp nýjar l í lok hverrar umf frá röngu (þ.e.a.s. í hlið) á sama hátt og á bakstykki = 82-84-86-88-90-92 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 0-0-0-0-0-2 umf sléttprjón. Stykkið mælist nú ca 18 cm í öllum stærðum. Fitjið nú upp 6 l í lok næstu umf frá röngu = 88-90-92-94-96-98 l. Þessar 6 útauknu l eru prjónaðar í garðaprjóni, JAFNFRAMT er prjónað tvöfalt perluprjón yfir næstu 78-80-82-84-86-88 l. Þegar stykkið mælist 24-24-25-26-27-28 cm, fitjið upp 12-12-16-16-18-18 nýjar l fyrir kraga í lok umf frá réttu = 100-102-108-110-114-116 l (= 16-16-20-20-22-22 kantlykkjur að framan). ATH: Kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka JAFNFRAMT er prjónuð 1 l í perluprjóni inn á kantinn að framan, þ.e.a.s. að fjöldi l í garðaprjóni í kanti að framan eykst og fjöldi l með perluprjóni á framstykki fækkar (samanlagður fjöldi l er sá sami), endurtakið tilfærsluna annan hvern cm 9-9-10-10-11-12 sinnum til viðbótar (= alls 10-10-11-11-12-13 sinnum) = 26-26-31-31-34-34 lykkjur í garðaprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm fellið af 6 kantlykkjur í garðaprjóni í byrjun næstu umf frá réttu = 94-96-102-104-108-110 l. Fellið síðan af í byrjun á hverri umf frá réttu eins og á bakstykki = 46-46-54-54-58-58 l eftir á prjóni. Í næstu umf frá réttu eftir síðustu úrtöku í hlið eru felldar af fyrstu 20-20-23-23-24-24 l fyrir öxl = 26-26-31-31-34-34 l í garðaprjóni eftir á prjóni fyrir kraga. Eftir síðustu úrtöku á öxl mælist stykkið ca 48-51-54-56-57-59 cm. Prjónið garðaprjón yfir þær l sem eftir eru með stuttum umf með byrjun frá röngu: * Prjónið 2 umf fram og til baka yfir fyrstu 20-20-25-25-28-28 l, 2 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 9 cm þar sem það er minnst. Fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. að aukið er út í hlið í lok hverrar umf frá réttu, fitjaðar eru upp nýjar l fyrir kraga í lok umf frá röngu og lykkjum fækkað frá hlið í byrjun hverrar umf frá röngu. Að auki er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan – á kanti að framan. ATH: Stuttar umferðir í kraga byrja frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma yst í lykkjubogann upp og með þeim 6 útauknu l í garðaprjóni. Saumið axlasauma yst í lykkjubogann frá og með 6 útauknum lykkjum í garðaprjóni og upp að úrtöku fyrir hálsmáli. Saumið saman kraga við miðju að aftan og saumið niður við hálsmál að aftan. Saumið tölur í. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #uptowngirlcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.