DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Ruby Tuesday

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk með köðlum, stroffi og stuttum ermum. Stærð S-XXXL

DROPS 151-36
DROPS Design: Mynstur nr ks-078
Garnflokkur A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
125-150-150-175-200-225 gr litur nr 17, dökk bleikur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 l og 25 umf með sléttprjóni með 2 þráðum verði 10 x 10 cm.
DROPS SNÁKATALA MEÐ GATI, NR 525: 4-4-4-5-5-5 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7150.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægra framstykki. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 9, 14, 19 og 24 cm.
STÆRÐ M: 10, 15, 20 og 25 cm.
STÆRÐ L: 11, 16, 21 og 26 cm.
STÆRÐ XL: 7, 12, 17, 22 og 27 cm.
STÆRÐ XXL: 8, 13, 18, 23 og 28 cm.
STÆRÐ XXXL: 9, 14, 19, 24 og 29 cm.

ÚRTAKA-1:
Þegar 2 l eru eftir á undan mynstri A.1 er fækkað um 1 l með því að prjóna 2 l saman. Ef önnur l er sl prjónið 2 l slétt saman. Ef önnur l er br prjónið 2 l br saman.

ÚRTAKA-2:
Eftir mynstur A.2 er fækkað um 1 l með því að prjóna 2 l saman. Ef fyrsta l er sl prjónið 2 l slétt saman. Ef fyrsta l er br prjónið 2 l br saman.

ÚRTAKA-3 (á við um hálsmál):
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli að innanverðu við allar l í garðaprjóni (þ.e.a.s. kantur að framan + útauknar l fyrir kraga). Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum þegar 2 l eru eftir á undan öllu l í garðaprjóni þannig: Ef önnur l er sl prjónið 2 l slétt saman. Ef önnur l er br prjónið 2 l br saman.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 1 l hvoru megin við 2 miðju brugðnu lykkjur við miðju að aftan frá réttu þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l br (= miðju-l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat (útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í stroff, þ.e.a.s. fyrsta útaukna lykkjan er prjónuð sl frá röngu (snúin fyrsta skiptið) og br frá réttu, þær 2 næstu br frá röngu og sl frá réttu, þær 2 næstu sl frá röngu og br frá réttu, þær 2 næstu br frá röngu og sl frá réttu o.s. frv.).

ÚTAUKNING-2:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni.

ÚTAUKNING-3:
Aukið út um 1 l á eftir einni l br á eftir kanti að framan á hægra framstykki og á undan einni br l á undan kanti að framan á vinstra framstykki frá réttu. Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat (útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í stroff, þ.e.a.s. að fyrsta útaukna l er prjónuð sl frá röngu (snúin fyrsta skiptið) og br frá réttu, þær 2 næstu br frá röngu og sl frá réttu, þær 2 næstu sl frá röngu og br frá réttu, þær 2 næstu br frá röngu og sl frá réttu o.s. frv.).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið LAUST upp 78-86-94-102-110-126 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með 2 þráðum af Kid-Silk. Fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓNI – sjá útskýringu að ofan, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* alls 5-6-7-8-9-11 sinnum, 1 l br, A.1 (= 16 l), 2 l br, A.2 (= 16 l), 1 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 5-6-7-8-9-11 sinnum og endið á 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram með stroff og mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-8-8-10-12-12 cm byrjar tilfæringin á köðlunum í A.1 og A.2. Fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið eins og áður þar til 2 l eru eftir á undan A.1, fækkið um 1 l – LESIÐ ÚRTAKA-1, prjónið A.1 yfir 16 næstu l eins og áður, fækkið um 1 l – LESIÐ ÚRTAKA-2 og prjónið þær l sem eftir eru í stroffi eins og áður.
Haldið áfram með stroff og mynstur eins og áður JAFNFRAMT er lykkjum fækkað að utan verðu við A.1 og A.2 og aukið út að innan verðu við A.1 og A.2 eins og útskýrt er frá að ofan, í stærð S + M +L: Í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 14-18-22 sinnum og í stærð XL + XXL + XXXL: Í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 26-30-38 sinnum.
Eftir síðustu tilfæringu kemur til með að vera 7 l á milli kaðla í A.1/A.2 og garðaprjón á kanti á ermum. Eftir síðustu tilfæringu er haldið áfram með stroff og mynstur beint upp án úrtöku og útaukningu hvoru megin við kaðla.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l á hvorri hlið fyrir kant á ermum – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), 12 sinnum til viðbótar (= alls 13 sinnum í hvorri hlið) = 104-112-120-128-136-152 l.
Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm fellið af miðju 16-16-16-20-20-20 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur og stroff eins og áður JAFNFRAMT er fækkað um 1 l í næstu umf frá hálsi = 43-47-51-53-57-65 l eftir á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm og fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br.
Endurtakið á hinni öxlinni á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
LESIÐ ALLAN KAFLANN UM FRAMSTYKKI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Fitjið LAUST upp 45-49-53-57-61-69 l (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 6 kantlykkjur við miðju að framan) á hringprjóna nr 4,5 með 2 þráðum af Kid-Silk. Fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 l br, A.2 (= 16 l), 1 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 5-6-7-8-9-11 sinnum og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff og mynstur fram og til baka – munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8-8-8-10-12-12 cm byrjar tilfæring á kaðli í A.2. Fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 6 kantlykkjur í garðaprjóni, 1 l br, aukið út um 1 l – LESIÐ ÚTAUKNING-3, prjónið A.2 yfir 16 næstu l eins og áður, fækkið um 1 l – LESIÐ ÚTAUKNING-2 og prjónið þær l sem eftir eru í umf með stroffi eins og áður. Haldið áfram með stroff og mynstur eins og áður JAFNFRAMT er aukið út að innan verðu á A.2 (við kant að framan) og fækkið að utan verðu við A.2 alveg eins og á bakstykki.
Eftir síðustu tilfæringu kemur til með að vera 7 l á milli kaðals í A.2 og garðaprjóns á kanti á ermi og stroffið og mynstrið heldur áfram beint upp án útaukninga og úrtöku.
KANTUR Á ERMAR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm er sett 1 prjónamerki í hlið. Í næstu umf frá réttu byrjar útaukning fyrir kant á ermum og aukið er út í lok hverrar umf frá réttu eins og á bakstykki.
SJALKRAGI: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm er aukið út um 1 l fyrir sjalkraga innan við síðustu kantlykkju við miðju að framan – LESIÐ ÚTAUKNING-2. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf, 3-3-5-5-7-7 sinnum til viðbótar (= alls 4-4-6-6-8-8 sinnum), síðan í 4. hverri umf alls 3 sinnum í öllum stærðum og að lokum í 8. hverri umf alls 3 sinnum í öllum stærðum = 10-10-12-12-14-14 l fleiri fyrir kraga og 16-16-18-18-20-20 l garðaprjón alls.
HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm er fækkað um 1 l fyrir hálsmáli í næstu umf frá réttu – LESIÐ ÚRTAKA-3. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf, 3-3-3-5-5-5 sinnum til viðbótar (= alls 4-4-4-6-6-6 sinnum) og síðan í 4. hverri umf alls 5 sinnum í öllum stærðum.
Eftir alla úrtöku og útaukningu eru 59-63-69-71-77-85 l á prjóni.
Prjónið nú áfram þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Í næstu umf frá röngu er fellt af síðustu 43-47-51-53-57-65 l á öxl, Prjónið sl út umf yfir 16-16-18-18-20-20 l garðaprjón.
Prjónið nú garðaprjón fram og til baka yfir þessar l fyrir kraga (með byrjun frá miðju að framan) þannig: * Prjónið 2 umf yfir allar l, 2 umf einungis yfir síðustu 10-10-12-12-14-14 l (við miðju að framan) *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7-7-7-8-8-8 cm lengst inn þar sem er minnst, fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. prjónið A.1 (í stað fyrir A.2). Fækkið á undan A.1 eins og útskýring í ÚRTAKA-1 og aukið út á undan síðustu br l á undan kanti að framan eins og útskýringu í ÚTAUKNING-3. Aukið út fyrir kant á ermum í byrjun á hverri umf frá réttu (í stað lok hverrar umf frá réttu). Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm fellið af fyrir öxl í byrjun á umf frá réttu (í stað frá röngu), prjónið sl út um yfir þær 16-16-18-18-20-20 l garðaprjón og prjónið stuttar umf yfir kraga-l eins og á hægra framstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið saman kraga við miðju að aftan( passið uppá að saumurinn sjáist ekki þegar kraginn er brotinn niður), og saumið kragann niður við hálsmál aftan við hnakka innan við 1 kantlykkju.
Saumið hliðarsaum í eitt innan við 1 kantlykkju frá prjónamerki við handveg og niður. Saumið tölur í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.04.2018
ÚTAUKNING-2 hefur verið uppfærð

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = setjið 8 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, prjónið 1 l br, 1 l sl, 2 l br, 2 l sl, 1 l br, prjónið nú 1 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 1 l br af hjálparprjóni
symbols = setjið 8 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, prjónið 1 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 1 l br, prjónið nú 1 l br, 2 l sl, 2 l br, 2 l sl, 1 l br af hjálparprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (55)

country flag Marian Evjen wrote:

Hei, nydelig mønster. Har dere lignende oppskrift med lang erm og båtutringing?

07.03.2019 - 13:52

DROPS Design answered:

Hej Marian, nej ikke det mønster, men du kan evt strikke ryggen til forstykket, så bliver det jo båtutringing :)

12.03.2019 - 09:06

country flag Yvonne wrote:

Prachtig patroon! Ben al een eindje op weg. Maar in welke steek worden de aangebreide mouwen gebreid? Ik lees wel dat ik moet meerderen, maar niet hoe de mouwsteken vervolgens gebreid worden. Graag advies, waarvoor hartelijk dank!

18.11.2017 - 23:44

DROPS Design answered:

Hallo Yvonne, De mouwen worden in ribbelsteek gebreid. Dit zou er inderdaad even bij moeten staan en ik heb het doorgegeven aan de designafdeling.

20.11.2017 - 15:00

country flag Astrid wrote:

Liebes Drops-Team diese Jacke würde ich gern in "Drops Cotton Viscose" stricken. Wie viel Wolle benötige ich für die Größe L bzw. XL ? Vielen Dank im voraus.

24.05.2017 - 13:47

DROPS Design answered:

Liebe Astrid, hier finden Sie weitere Informationen über Garnalternative. Ihr DROPS Laden wird Ihnen auch gerne hilfen. Viel Spaß beim stricken!

24.05.2017 - 14:55

country flag VMILADY wrote:

Bonjour, Puis-je remplacer le fil KIL-SILK employé en double par 1 fil d'ALPACA SILK BRUSCHED ? Devrais-je utiliser des aiguilles n° 4,5 comme sur le modèle ou n° 5 comme conseillé sur la bandelette du fil BRUSCHED ? Merci de vos réponses et bonne journée.

07.08.2016 - 15:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Vmilady, vous pouvez effectivement utiliser 1 fil Brushed Alpaca silk au lieu de 2 fils Kid-Silk (1 fil du groupe C = 2 fils du groupe A) - voir également ici comment calculer la quantité nécessaire. Bon tricot!

08.08.2016 - 10:01

Estela wrote:

Por favor, me podrías decir qué significa vcs, que está en la explicación de la espalda. Muchas gracias desde Uruguay.

24.06.2016 - 23:08

DROPS Design answered:

Hola Estela, "vcs" significa "veces".

26.06.2016 - 09:24

country flag Celine wrote:

Ik denk dat er bij minderen 1 en hals er een fout in de vertaling zit: 2e moet 1e zijn (zie het patroon in een andere taal)

24.12.2013 - 10:42

country flag Celine wrote:

Ik zou dit vest graag van alpaca willen breien. kunt u aangeven hoeveel gram ik dan ongeveer nodig heb voor maat L

12.12.2013 - 16:13

DROPS Design answered:

Hoi Celine. Je berekent het als volgt: voor maat L heb je 150 gr Kid-Silk nodig = 3 x 400 m (looplengte per 50 gr) = 1200 m / 167 m (looplengte Alpaca) = 7,1 = 8 bollen Alpaca nodig. Succes

13.12.2013 - 10:14

country flag Lisa wrote:

Det finns ju inga ärmar, endast ökning i sidorna.

24.10.2013 - 10:58

country flag Bjørg Rudi wrote:

Det mangler oppskrift på ermene.

23.10.2013 - 11:51

country flag Birgit wrote:

Ich habe eine Frage zu den Abnahmen für den Halsausschnitt. Wenn ich die Anleitung richtig verstehe,muss ich am Halsausschnitt Maschen für die schräge abnehmen und gleichzeitig für das Muster den Zopf versetzen,also eine Masche an der gleichen Stelle,zum teil auch in der gleichen Reihe, wieder abnehmen ??? Wie soll das aussehen? LG Birgit

01.09.2013 - 13:10

DROPS Design answered:

Liebe Birgit, ja es wird Verschiedenes gleichzeitig gestrickt. Lesen Sie sich alle Baschnitte der Beschreibung durch: das Verschieben das Zopfes beginnt bereits bei 8-8-8-10-12-12 cm, dann kommen die Ärmelblende, der Schalkragen und der Halsausschnitt dazu.

01.09.2013 - 17:49