Jemal skrifaði:
Love it
19.06.2013 - 16:17
Hillie skrifaði:
Gaaf
19.06.2013 - 07:44Estela skrifaði:
Quando sairá a tradução? Linda Brasil
18.06.2013 - 22:22
Sens skrifaði:
Wat een gaaf model vest. Als ik nog even wat tijd ga vinden dan wordt dit model als eerste op mijn wishlist.
18.06.2013 - 17:30
AnnetteM. skrifaði:
Tolle Jacke! Hoffentlich vergesse ich nicht, mir die zu stricken... L G aus dem Windecker Ländchen, Annette
18.06.2013 - 15:26Chantal skrifaði:
Québec, Canada Bien hâte d'avoir les explications afin que je puisse le faire.
18.06.2013 - 14:15
Martine skrifaði:
Vraiment très beau, belle allure et chaud en plus
18.06.2013 - 12:24
Evelina skrifaði:
Very good model!!! I am from Rusland and I like Drops!
17.06.2013 - 08:40Ivoine skrifaði:
Chic et très contemporain. Je le porterai avec fierté.
17.06.2013 - 01:31Helene skrifaði:
Gorgeous cables, but because I am petite I would make single breasted
16.06.2013 - 07:37
Gwendolen#gwendolencardigan |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma með köðlum og sjalkraga. Stærð S - XXXL
DROPS 151-1 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikningin sýnir umf í mynstri frá réttu. STUTTAR UMFERÐIR Í KANTI AÐ FRAMAN: Prjónaðar eru stuttar umf yfir l í kanti að framan svo að hann verði ekki of stífur og herpist ekki saman á hæðina. Prjónið 10. hverja umf frá réttu – þannig: Prjónið 18 l (= hægri kantur að framan), snúið við og prjónið til baka. Prjónið 1 umf yfir allar l eins og áður. Snúið við og prjónið 18 l (= vinstri kantur að framan), snúið við og prjónið til baka. Snúið við og prjónið 1 umf yfir allar l eins og áður. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 3. og 4. l frá miðju að framan saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 8 l sl, prjónið 13. og 14 . frá miðju að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 hnappagöt). Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 29 og 37 cm STÆRÐ M/L: 30 og 38 cm STÆRÐ XL: 31 og 39 cm STÆRÐ XXL/XXXL: 33 og 41 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar lykkjur. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 266-290-350-386 l (meðtaldar eru 18 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með Karisma. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 40 l jafnt yfir = 306-330-390-426 l. Prjónið nú frá réttu - þannig: Prjónið 18 l garðaprjón (= kantur að framan), 8-8-8-10 l br, * A.1 (= 3 l), 10-12-12-14 l br *, endurtakið frá *-* alls 1-1-2-2 sinnum, A.2 (= 23 l), 10-12-12-14 l br, * A.1, 10-12-12-14 l br *, endurtakið frá *-* alls 2-2-2-2 sinnum, A.2, * 10-12-12-14 l br, A.1 *, endurtakið frá *-* alls 1-1-2-2 sinnum, 10-12-12-14 l br, A.3 (= 18 l), 10-12-12-14 l br, * A.1, 10-12-12-14 l br *, endurtakið frá *-* alls 1-1-2-2 sinnum, A.2, 10-12-12-14 l br, * A.1, 10-12-12-14 l br *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, A.2, * 10-12-12-14 l br, A.1,*, endurtakið frá *-* alls 1-1-2-2 sinnum, 8-8-8-10 l br, 18 l garðaprjón (= kantur að framan). Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR Í KANTI AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 l í byrjun hverrar br umferðar, prjónið 2 fyrstu l br saman (= 14-14-18-18 færri l). Endurtakið úrtöku með 5-5½-5½-6 cm millibili, fækkið lykkjum til skiptis í byrjun og lok allra br mynstureininga 5 sinnum til viðbótar (= alls 6 úrtökur) = 222-246-282-318 l. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 40-41-42-44 cm er aukið út um 1 l í byrjun á hverri br mynstureiningu, aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn sem síðan er prjónað snúið sl í næstu umf (= 14-14-18-18 fleiri l). Endurtakið útaukningu en í lok hverrar br mynstureiningar þegar stykkið mælist 50-52-53-55 cm = 250-274-318-354 l. Þegar stykkið mælist 56-58-59-61 cm skiptist stykkið, framstykki og bakstykki eru prjónuð til loka hvort fyrir sig þannig: Setjið fyrstu og síðustu 66-71-82-91 l á þráð fyrir framstykki, klippið frá, prjónið nú einungis yfir miðju 118-132-154-172 l (= bakstykki). BAKSTYKKI: = 118-132-154-172 l. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 72-76-78-82 cm fellið af miðju 22-26-26-26 l fyrir hálsmáli = 48-53-64-73 l eftir á hvorri öxl. Hvor öxl er nú prjónuð fyrir sig. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 74-78-80-84 cm, fellið af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka fyrstu 66-71-82-91 m på st. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Þegar stykkið mælist 74-78-80-84 cm fellið af fyrstu 48-53-64-73 l frá röngu fyrir öxl = 18 l eftir á prjóni. Prjónið út umf. Prjónið nú stuttar umf yfir 18 l þannig – með byrjun frá réttu: * Prjónið 2 umf fram og til baka yfir fyrstu 9 l, prjónið 2 umf fram og til baka yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til hálsmálið mælist 7-8-8-8 cm þar sem það er minnst. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Fellið af fyrir öxl frá réttu og prjónið síðan stuttar umf með byrjun frá röngu. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 56-60-64-68 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Karisma. Prjónið stroff 2 l sl, 2 l br. Þegar stykkið mælist 16-16-16-14 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 4, prjónið nú áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 8-8-10-10 l jafnt yfir = 48-52-54-58 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. JAFNFRAMT er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu með 2½-2-1½-1½ cm millibili 13-15-16-18 sinnum til viðbótar (alls 14-16-17-19 útaukningar) = 76-84-88-96 l. Þegar stykkið mælist 52-51-47-44 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið saman kraga við miðju að aftan og saumið við hálsmálið. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #gwendolencardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.