DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15510.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 151-4
DROPS Design: Mynstur nr z-646
Garnflokkur A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
350-350-400-450-450-500 gr litur nr 3800, bleikur
Og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
150-150-175-175-200-225 gr litur nr 05, bleikur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l og 20 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 5 – fyrir stroff.
DROPS PERLUTALA MEÐ GATI, NR 522: 3 stk

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15510.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

KNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá miðju að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellt er af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 33, 41 og 49 cm
STÆRÐ M: 35, 43 og 51 cm
STÆRÐ L: 37, 45 og 53 cm
STÆRÐ XL: 39, 47 og 55 cm
STÆRÐ XXL: 41, 49 og 57 cm
STÆRÐ XXXL: 43, 51 og 59 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 88-88-98-108-118-128 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) með 1 þræði af hvorri tegund á hringprjóna nr 5. Prjónið 1 umf br frá röngu, síðan er prjónað frá réttu – þannig:
Prjónið 1 kantlykkju (prjónuð í garðaprjóni), 1 l br, * 3 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 4-4-5-6-7-8 sinnum, 3 l sl, 6 l br, 3 l sl, 6 l br, 3 l sl, 2 l br, 3 l sl, 6 l br, 3 l sl, 6 l br, * 3 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 4-4-5-6-7-8 sinnum, endið á 3 l sl, 1 l br og 1 kantlykkja (prjónuð í garðaprjóni). Prjónið stroffið svona í 8 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 6. Prjónið nú frá réttu – þannig:
Prjónið 1 kantlykkju, 14-14-19-24-29-34 l sl JAFNFRAMT er fækkað um 3-0-2-3-3-3 l jafnt yfir þessar l, 2 l br, 3 l sl, 2 l br, 3 l sl, 6 l garðaprjón, 3 l sl, 6 l garðaprjón, A.1 (= 8 l), 6 l garðaprjón, 3 l sl, 6 l garðaprjón, 3 l sl, 2 l br, 3 l sl, 2 l br, 14-14-19-24-29-34 l sl JAFNFRAMT er fækkað um 3-0-2-3-3-3 l jafnt yfir þessar l, 1 l kantlykkja í garðaprjóni = 82-88-94-102-112-122 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með þetta mynstur (11-14-17-21-26-31 l sléttprjón í hvorri hlið), JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9 cm er fækkað um 1 l í hverri og einni af 4 mynstureiningunum í garðaprjóni. Endurtakið úrtöku með 3½ cm millibili 3 sinnum til viðbótar (alls 4 úrtökur, 16 l færri), fellið af í annað hvert sinn í byrjun og lok mynstureininga í garðaprjóni með því að prjóna 2 l slétt saman = 66-72-78-86-96-106 l. Þegar stykkið mælist ca 20 cm – passið uppá að prjónuð sé heil mynstureining af A.1 á hæðina og síðasta úrtakan hefur verið gerð – prjónið áfram frá réttu – þannig:
Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 11-14-17-21-26-31 l sl, A.4 (= 42 l), 11-14-17-21-26-31 l sl, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Prjónið nú áfram frá réttu – þannig: Prjónið 1 kantlykkju, 11-14-17-21-26-31 l sl, 2 l br, 3 lsl, 2 l br, 3 lsl, 2 l garðaprjón, 3 ls l, 2 l garðaprjón, A.1 (= 8 l), 2 l garðaprjón, 3 l sl, 2 l garðaprjón, 3 l sl, 2 l br, 3 l sl, 2 l br, 11-14-17-21-26-31 l sl, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 50 cm er aukið út um 1 l í hverri mynstureiningu í garðaprjóni, endurtakið útaukningu með 10-10-11-11-12-12 cm millibili 2 sinnum til viðbótar (alls 3 útaukningar = 12 l fleiri), aukið út í annað hvert skipti í byrjun og lok á mynstureiningu í garðaprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 54-55-56-57-58-59 cm er felld af 1 kantlykkja í hvorri hlið. Haldið áfram með mynstur. Eftir alla útaukningu eru 76-82-88-96-106-116 l eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm fellið af miðju 16-16-18-18-20-20 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf frá hálsi er fækkað um 1 l = 29-32-34-38-42-47 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 72-74-76-78-80-82 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 70-70-70-80-80-90 l (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 12 kantlykkjur við miðju að framan) með 1 þræði af hvorri tegund á hringprjóna nr 5. Prjónið 1 umf br frá röngu, prjónið nú frá réttu – þannig:
Prjónið 12 kantlykkjur að framan (prjónað í garðaprjóni), * 3 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-3-3-4-4-5 sinnum, 3 l sl, 6 l br, 3 l sl, 2 l br, 3 l sl, 6 l br, * 3 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-3-3-4-4-5 sinnum, endið á 3 l sl, 1 l br og 1 kantlykkja (prjónuð í garðaprjóni). Prjónið stroff í 8 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 6, prjónið nú frá réttu – þannig:
Prjónið 12 kantlykkjur að framan (prjónað í garðaprjóni), 8-8-8-13-13-18 l sl JAFNFRAMT er fækkað um 3-2-0-3-1-4 l jafnt yfir þessar l, 2 l br, 3 l sl, 2 l br, 3 l sl, 6 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 (= 8 l), 6 l garðaprjón, 3 l sl, 2 l br, 3 l sl, 2 l br, 9-9-9-14-14-19 l sl JAFNFRAMT er fækkað um 4-3-1-4-2-5 l jafnt yfir þessar l, 1 kantlykkja í garðaprjóni = 63-65-69-73-77-81 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með þetta mynstur (5-6-8-10-12-14 l sléttprjón í hvorri hlið). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9 cm er fækkað um 1 l í hverri af þeim 2 mynstureiningum í garðaprjóni. Endurtakið úrtöku með 5½ cm millibili 3 sinnum til viðbótar (alls 4 úrtökur, 8 l færri), fækkið lykkjum í annað hvert skipti í byrjun og lok mynstureininga í garðaprjóni = 55-57-61-65-69-73 l. Þegar stykkið mælist ca 26 cm – passið uppá að prjónuð sé heil mynstureining af A.1 á hæðina – prjónið áfram frá réttu – þannig:
Prjónið 12 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 5-6-8-10-12-14 l sl, A.3 (= 32 l), 5-6-8-10-12-14 l sl, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Prjónið nú áfram frá réttu – þannig:
Prjónið 12 kantlykkjur í garðaprjóni (kantur að framan), 5-6-8-10-12-14 l sl, 2 l br, 3 l sl, 2 l br, 3 l sl, 2 l garðaprjón, A.1 (= 8 l ), 2 l garðaprjón, 3 l sl, 2 l br, 3 l sl, 2 l br, 5-6-8-10-12-14 l sl, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Mundið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – sjá utskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 45 cm er aukið út um 1 l í hverri mynstureiningu í garðaprjóni, endurtakið útaukningu með 10-10-11-11-12-12 cm millibili 2 sinnum til viðbótar (alls 3 útaukningar = 6 l fleiri), aukið út í annað hvert skipti í byrjun og í lok mynstureininga í garðaprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 49-51-53-55-57-59 cm prjónið 1 l af framstykki inn í kant að framan, þ.e.a.s. að lykkjufjöldi í garðaprjóni í kanti að framan eykst og fjöldi l í mynstri á framstykki fækkar (samanlagður lykkjufjöldi er sá sami), endurtakið í hverjum cm alls 19-18-20-20-20-19 sinnum (= 31-30-32-32-32-31 l garðaprjón í kanti að framan). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 54-55-56-57-58-59 cm er felld af 1 kantlykkja í hlið. Haldið áfram með mynstur. Eftir alla útaukningu eru 60-62-66-70-74-78 l á prjóni.
Þegar stykkið mælist 72-74-76-78-80-82 cm eru felldar af fyrstu 29-32-34-38-42-47 l frá röngu fyrir öxl = 31-30-32-32-32-31 l eftir á prjóni. Prjónið út umf. Prjónið nú stuttar umferðir yfir 31-30-32-32-32-31 l frá réttu – þannig:
* Prjónið 2 umf yfir fyrstu 15 l, prjónið 2 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til hálsmál mælist 8-8-9-9-10-10 cm þar sem það er minnst. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjað er upp og prjónað er eins og hægra framstykki, nema spegilmynd – prjónað er A.2 í stað A.1 og A.5 í stað A.3. Byrjið þannig:
Prjónið 1 umf br frá röngu, síðan er prjónað frá réttu – þannig: Prjónið 1 kantlykkju (prjónuð í garðaprjóni) 1 l br, 3 l sl, * 2 l br, 3 l sl *, endurtakið frá *-* alls 3-3-3-4-4-5 sinnum, 6 l br, 3 l sl, 2 l br, 3 l sl, 6 l br, 3 l sl, * 2 l br, 3 l sl *, endurtakið frá *-* alls 3-3-3-4-4-5 sinnum, 12 kantlykkjur (prjónaðar í garðaprjóni). Ekki fella af fyrir hnappagötum.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 45-45-50-50-55-55 l á sokkaprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið stroff 3 l sl, 2 l br. Þegar stykkið mælist 7 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 6. Prjónið nú áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 7-7-10-8-11-9 l jafnt yfir = 38-38-40-42-44-46 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu með 4-3½-3½-3-2½-2½ cm millibili 9-10-11-12-12-13 sinnum til viðbótar (alls 10-11-12-13-13-14 útaukningar) = 58-60-64-68-70-74 l. Þegar stykkið mælist 50-50-49-47-45-43 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju. Saumið ermar í. Saumið saman kraga við miðju að aftan og saumið niður við hálsmál. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.08.2014
Það vantaði orðið \"alls\" á 6 stöðum í texta. BAKSTYKKI: ... 1 kantlykkju (prjónuð með garðaprjóni), 1 l br, * 3 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 4-4-5-6-7-8 sinnum, 3 l sl, 6 l br, 3 l sl, 6 l br, 3 l sl, 2 l br, 3 l sl, 6 l br, 3 l sl, 6 l br, * 3 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 4-4-5-6-7-8 sinnum... HÆGRA FRAMSTYKKI:... Prjónið 12 kantlykkjur að framan (prjónað með garðaprjóni), * 3 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-3-3-4-4-5 sinnum, 3 l sl, 6 l br, 3 l sl, 2 l br, 3 l sl, 6 l br, * 3 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* alls 3-3-3-4-4-5 sinnum...VINSTRA FRAMSTYKKI:...1 kantlykkju (prjónuð með garðaprjóni) 1 l br, 3 l sl, * 2 l br, 3 l sl *, endurtakið frá *-* alls 3-3-3-4-4-5 sinnum, 6 l br, 3 l sl, 2 l br, 3 l sl, 6 l br, 3 l sl, * 2 l br, 3 l sl *, endurtakið frá *-* alls 3-3-3-4-4-5 sinnum,...

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = setjið 4 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 4 l sl, 4 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 4 l á hjálpaprjón fyrir framan stykkið, 4 l sl, 4 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 4 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 4 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l sl, 4 l sl af hjálparprjóni
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = þessi l er felld af - hoppið yfir þessa rúðu
symbols = 2 l slétt saman
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (71)

country flag Edith wrote:

Les explications ne correspondent pas au modele la bordure devant est faite en cotes et pas au point mousse

08.02.2023 - 21:23

DROPS Design answered:

Bonjour Edith, dans ce modèle, on tricote bien les 12 mailles de bordure des devants au point mousse, et on va augmenter ce nombre de mailles point mousse pour former le col, et pour former le retombé du col châle, on tricote des rangs raccourcis sur les mailles du col (à la fin des devants). Bon tricot!

09.02.2023 - 10:25

country flag Xxx wrote:

Les explications ne correspondent pas au modéle

08.02.2023 - 21:17

country flag Sophia wrote:

In right front piece I don't understand this part: when piece measures 53 cm work 1st of front piece into band no of sts in garter ston band inc and no of sts in pattern on front piece dec (total no of sts is the same) repeat every cm . And then say when piece measures 56cm after all inc there are 66 sts on needle. I don't understand because I have 63 st on neendle and with all inc it will be more sts . In the pattern don't say anything about where I dec sts. Thank you.happy new year

02.01.2021 - 20:28

DROPS Design answered:

Dear Sophia, in size L you have 61 sts on needle and increase a total of 6 sts (= 2 stitches 3 times in total in the garter stitch sections) = 67 sts, then you decrease 1 st on the side when piece meaesures 56 cm= 66 sts remain. At the same time, when piece measures 53 cm, increase the number of sts worked in garter stitch, work 1more sticth in garter stitch this means 1 stitch less in pattern(number of sts keeps constant). Hope it helps, happy knitting!

04.01.2021 - 15:56

country flag Renée Lamonde wrote:

Bonjour, Je suis à faire le devant droit. Je ne comprend pas où faire les diminutions. Je n'arrive pas à faire coïncider les côtes et le motif comme le modèle. Merci!

15.02.2019 - 18:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lamonde, pouvez-vous indiquer la taille que vous faites pour vérifier? Merci!

18.02.2019 - 08:32

country flag PLAUT wrote:

Bonjour, J'aimerais connaitre le nombre de pelotes à commander pour la taille L s'il vous plait ? Je ne trouve pas l'information. Merci

07.01.2019 - 05:14

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Plaut, vous trouverez la quantité totale requise pour chaque taille dans l'en-tête du modèle, soit en taille L: 400 g DROPS Alpaca/50 g la pelote = 8 pelotes DROPS Alpaca + 175 g DROPS Kid-Silk / 25 g la pelote = 7 pelotes DROPS Kid-Silk. Bon tricot!

07.01.2019 - 12:08

country flag Natasja De Jong wrote:

Ik heb dit vest gebreid en ben er best lang bezig mee geweest. Het resultaat was schitterend. Echter na zo\'n 10x dragen beginnen onder de armen de draden nu al heel erg dun te worden. Dat vind ik wel heel erg zonde van al dat dure garen en het werk. Ik heb exact het garen uit het patroon gebruikt. Test u uw patronen niet op stevigheid? Dit heeft me behoorlijk wat geld gekost zo voor een vest wat ik nu slechts 10x gedragen heb! Kunt u mij tips geven?

20.12.2018 - 00:43

DROPS Design answered:

Dag Natasja,

Alpaca is helaas iets kwetsbaarder dan gewone wol. Probeer het in ieder geval net te vaak te wassen (Je kunt het ook buiten hangen, om te luchten) en voorzichtig te wassen. Bij klachten over de wol, kun je het beste naar de winkel gaan waar je de wol hebt gekocht.

01.01.2019 - 20:49

country flag Gina Jarvis wrote:

There is no size in inches or otherwise for me to decipher what size to make???

24.08.2017 - 18:32

DROPS Design answered:

Dear Mrs Jarvis, all measurements in chart are in cm - convert into inches here. Happy knitting!

28.08.2017 - 13:04

country flag DÁNIEL REUSS wrote:

Nagyon tetszik nekem a kardigán. Hogyan tudnám megvenni , ha meg szeretném venni ?

18.07.2017 - 21:05

DROPS Design answered:

Kedves Dániel, ezt a kardigánt készen nem tudja megvenni. Viszont az ingyenesen elérhető minta, leírás alapján a kardigán elkészíthető. Üdvözlettel.

23.07.2017 - 21:55

country flag Kirsten Asmussen wrote:

Hej! Kan jeg strikke cardiganen med garn fra garngruppe C?

23.09.2016 - 14:37

DROPS Design answered:

Hej Kirsten. Ja, du kan sagtens erstatte 2 traade fra gruppe A med 1 traad fra gruppe C. Husk at strikke en pröve saa du ved din strikkefasthed er i orden.

27.09.2016 - 16:13

country flag Lardiere wrote:

Je m étonné de la largeur des devants 80 mailles par rapport au dos 108 mailles n y ayrait il pas une erreur. Merci de votre rapide réponse por faire les devants

27.04.2015 - 18:15

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lardiere, tout est bien correct, en taille XL, on monte bien 108 m pour le dos (= 94 m après les côtes, au 1er rang point fantaisie), et 80 m pour le devant (73 m après les côtes, au 1er rang point fantaisie, y compris les 12 m de bordure devant). Bon tricot!

28.04.2015 - 09:36