Kari skrifaði:
Denne vil jeg ha!
20.06.2013 - 13:26
Bettina skrifaði:
Schön warm.
15.06.2013 - 23:12
Marisela skrifaði:
Muy lindo y abrigador, felicidades!...
03.06.2013 - 04:13
Grażyna skrifaði:
Fajny modeli ciekawe kolory włóczki
02.06.2013 - 19:53Bettina skrifaði:
It seems so warm! i want it!
31.05.2013 - 23:38
Grey Sunset Jacket#greysunsetjacket |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Snow með röndum, perluprjóni og laskalínu. Stærð S - XXXL
DROPS 150-45 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. LASKALÍNA: Laskalína er hvoru megin við öll 4 prjónamerkin og lykkjum er fækkað þannig: Á undan A.1 : Prjónið 2 l slétt saman. Á eftir A.1: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ATH: Síðasta úrtaka hvoru megin á ermi er gerð þannig: Takið síðustu l í A.1 (= 1 l br) eins og prjóna eigi brugðið, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir. Þær 2 næstu l eru prjónaðar br saman (þ.e.a.s. næsta l á ermi og fyrsta l í A.1). LEIÐBEININGAR: Til að litaskipting í röndum verði falleg eru rendur prjónaðar fram og til baka á hringprjóna þannig: Prjónið 1. umf með lit 1, færið síðan allar l á hringprjóninum yfir á annan endann þannig að næsta umf er prjónuð með lit 2 frá sömu hlið. Snúið síðan við og prjónið næstu 2 umf eins og þær 2 fyrstu – þ.e.a.s. að prjónuð er 1 umf með hverjum lit og prjónað er alls 2 umf frá sömu hlið. RENDUR (á við um fram- og bakstykki og ermi): Rendur eru prjónaðar í PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að neðan. Prjónið 12-12-14-14-13-13 cm á fram- og bakstykki og 15-13-14-13-10-9 cm, á ermum með lit nr 14, dökk grár. Prjónið nú rendur á fram- og bakstykki og ermum þannig: Prjónið 10-10-10-10-11-11 cm með lit nr 14, dökk grár og lit nr 46, milligrár þannig: UMFERÐ 1: Milligrár UMFERÐ 2: Dökk grár Endurtakið umf 1 og 2. Prjónið 10-10-10-10-11-11 cm með lit nr 46, milligrár. Prjónið 10-10-10-10-11-11 cm með lit nr 46, milligrár og lit nr 53, ljós grár þannig: UMFERÐ 1: Ljós grár UMFERÐ 2: Milligrár Endurtakið umf 1 og 2. Prjónið 10-11-11-12-12-13 cm með lit nr 53, ljós grár. Prjónið 10-11-11-12-12-13 cm með lit nr 53, ljós grár og lit nr 01, natur þannig: UMFERÐ 1: Ljós grár UMFERÐ 2: Natur Endurtakið umf 1 og 2. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir br og br yfir sl. Endurtakið umf 2. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af þriðju l frá miðju að framan og fitjið upp 1 nýja l yfir þá l sem felld var af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 12, 22, 32 og 42 cm STÆRÐ M: 14, 24, 34 og 44 cm STÆRÐ L: 16, 26, 36 og 46 cm STÆRÐ XL: 18, 28, 38 og 48 cm STÆRÐ XXL: 15, 26, 37 og 48 cm STÆRÐ XXXL: 17, 28, 39 og 50 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan með RENDUR – sjá útskýringu að ofan. LESIÐ LEIÐBEININGAR! FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 100-108-116-124-132-144 l (meðtaldar 8 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 10 með litnum dökk grár. Fyrsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 8 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir næstu 84-92-100-108-116-128 l og endið á 8 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Setjið 1 prjónamerki eftir 29-31-33-35-37-40 l inn frá hvorri hlið (= 42-46-50-54-58-64 l á bakstykki). Haldið svona áfram með mynstur með 8 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 12,14,16,18,15,17 cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT - sjá útskýringu að ofan, í hægri kanti að framan - JAFNFRAMT þegar stykkið mælist mælist 15 cm er fækkað um 1 l hvoru megin prjónamerki í hvorri hlið (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm = 92-100-108-116-124-136 l. Þegar stykkið mælist 33-33-35-35-37-37 cm eru felldar af 3 l hvoru megin við prjónamerki fyrir handveg í hvorri hlið (= 6 úrtökur í hvorir hlið) = 24-26-28-30-32-35 l eftir á hvoru framstykki og 32-36-40-44-48-54 l eftir á bakstykki = 80-88-96-104-112-124 eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á hringprjóna eftir þörf. Fitjið laust upp 24-24-28-28-32-32 l á sokkaprjóna nr 9 með litnum dökk grár og prjónið RENDUR JAFNFRAMT er prjónað stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 7 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 10 og prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 2-2-4-4-6-6 l jafnt yfir = 22-22-24-24-26-26 l. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 21-21-23-23-25-25 l perluprjón, 1 l br. Haldið svona áfram með mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við br l. Endurtakið útaukningu með 2 cm millibili 9-6-7-5-6-2 sinnum til viðbótar, síðan eftir hvern cm alls 5-10-8-12-10-16 sinnum (= útaukning alls 15-17-16-18-17-19 sinnum) = 52-56-56-60-60-64 l. ATH: Útauknu l eru prjónaðar í perluprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 36-34-35-34-34-33 cm. Næsta umf er prjónuð þannig: Fellið af 3 l, prjónið næstu 46-50-50-54-54-58 l, fellið síðan af síðustu 3 l í umf (= 6 l felldar af) = 46-50-50-54-54-58 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt– ATH: Prjónið spegilmynd, þ.e.a.s. byrjið umf á 1 l br og prjónið síðan 21-21-23-23-25-25 l í perluprjóni. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 172-188-196-212-220-240 l – haldið áfram með RENDUR. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki) – 1. prjónamerki er sett í skiptinguna á milli hægri ermi og framstykkis. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 8 kantlykkjur að framan í garðaprjón, 16-18-20-22-24-27 l í perluprjóni (= framstykki), A.1 yfir næstu 4 l (þ.e.a.s. á eftir 1. prjónamerki), perluprjón yfir næstu 38-42-42-46-46-50, A.1 (= 4 l á undan 2. prjónamerki = hægri ermi), perluprjón yfir næstu 32-36-40-44-48-54 l (= bakstykki), A.1 (= 4 l á eftir 3. prjónamerki), perluprjón yfir næstu 38-42-42-46-46-50 l. A.1 yfir næstu 4 l (þ.e.a.s. á undan 4. prjónamerki = vinstri ermi), 16-18-20-22-24-27 l perluprjón (= framstykki) og endið á 8 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT er prjónuð 1 l perluprjón inn við kant að framan, þ.e.a.s. fjöldi l í garðaprjóni í kanti að framan eykst og fjöldi l í perluprjóni á framstykki fækkar (heildarfjöldi l er sá sami), endurtakið þessa tilfæringu í 4. hverri umf 6-7-7-7-8-8 sinnum til viðbótar (= alls 7-8-8-8-9-9 sinnum) = alls 15-16-16-16-17-17- l garðaprjón í kanti að framan. JAFNFRAMT í 4. hverri umf á eftir þar sem fram- og bakstykki og ermar voru settar saman byrjar LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Endurtakið úrtöku að neðan eins og útskýrt var frá. ATH: Úrtaka er mismunandi á ermum og á fram- og bakstykki. ERMAR: Fækkið lykkjum í 4. hverri umf 2-1-1-1-1-0 sinnum til viðbótar og síðan í annarri hverri umf alls 16-19-19-21-21-24 sinnum (= alls 19-21-21-23-23-25 úrtökur hvoru megin við A.1 inn við ermar). ATH: Síðasta úrtaka á ermi er þannig: Takið síðustu l í A.1 (= 1 l br) eins og prjóna eigi hana brugðið, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir. Næstu 2 l eru prjónaðar brugðið saman (þ.e.a.s. næsta l á ermi og fyrsta l í A.1). FRAM- OG BAKSTYKKI: Fækkið lykkjum í 8. hverri umf 2-1-0-1-0-0 sinnum til viðbótar, í 6. hverri umf alls 4-5-5-3-3-0 sinnum og síðan í 4. hverri umf alls 0-1-3-5-7-12 sinnum (= alls 7-8-9-10-11-13 úrtökur hvoru megin við A.1 inn við fram- og bakstykki) = 17-18-19-20-21-22 l eftir á framstykki og 18-20-22-24-26-28 l eftir á bakstykki. Eftir úrtöku eru 68-72-76-80-84-88 l eftir á prjóni. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið garðaprjón yfir fyrstu 15-16-16-16-17-17 l, setjið l á þráð, fellið af næstu 38-40-44-48-50-54 l og -prjónið garðaprjón yfir síðustu 15-16-16-16-17-17 l á prjóni. KRAGI: Prjónið nú stuttar umferðir með litnum natur yfir 15-16-16-16-17-17 l á prjóni fyrir kraga (1. umf = rétta) þannig: * Prjónið 2 umf fram og til baka yfir fyrstu 11-12-12-12-13-13 l, 2 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 21-22-24-27-28-30 cm lengst inn þar sem hann er minnstur. Fellið af. Setjið 15-16-16-16-17-17 kantlykkjur að framan frá þræði í annarri hlið á stykki á hringprjóna nr 10 og prjónið stuttar umferðir alveg eins en byrjið frá röngu. FRÁGANGUR: Saumið saman kraga við miðju að aftan og saumið hann niður við hálsmál aftan við hnakka. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #greysunsetjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-45
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.