Kari-Anne skrifaði:
Elsker den!! Vil ha mønsteret nå!
02.06.2013 - 21:10
Dentelles skrifaði:
Aussi bien pour "ados" que pour "mamies" !
02.06.2013 - 16:40
Claudia Burghoff skrifaði:
Ein tolles Modell!
01.06.2013 - 23:31
Marit Santos skrifaði:
Lekker, anvendelig og passer til alle. Er en av favorittene.
01.06.2013 - 02:02
Sarah skrifaði:
Lieblingspulli in aussicht
01.06.2013 - 00:37
Tina Lydeking skrifaði:
Super flot . God til os med lidt former
31.05.2013 - 22:38
Leonel skrifaði:
Dies wird sicherlich auch ein Pullover von mir.
31.05.2013 - 20:02
Edith skrifaði:
So richtig was zum Reinkuscheln, sehr schön
31.05.2013 - 19:48
Mari skrifaði:
Precioso, pero me gustaría más si en vez de túnica fuera un jersey un poquito más entallado
31.05.2013 - 19:16
Hiltrud skrifaði:
Sieht schön aus..... und man kann darunter ein paar Kilo zuviel verstecken.
31.05.2013 - 18:07
Eva Sweater#evasweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með gatamynstri og ¾-löngum ermum. Stærð S - XXXL
DROPS 149-3 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ATH! Sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR: Þegar úrtaka fyrir hálsmál byrjar er haldið áfram með gataumferð sem þegar hefur verið byrjað á, nema að ekki er byrjað á nýrri gataumferð. ATH! Passið uppá að lykkjum er ekki fækkað fyrir hálsmáli í 4 fyrstu umf í mynstri A.1/A.2. ÚRTAKA (á við um úrtöku fyrir hálsmál): Fækkið lykkjum innan við 2 l garðaprjón. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan 2 l þannig: Takið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 2 l þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 93-95-107-115-125-137 l með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) á hringprjóna nr 4. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 2-2-3-2-2-2 l sléttprjón, MYNSTUR A.2 – sjá útskýringu að – yfir næstu 44-45-50-55-60-66 l (= 4-5-5-5-6-6 mynstureiningar á breiddina), 1 l sléttprjón, mynstur A.1 yfir næstu 44-45-50-55-60-66 l (= 4-5-5-5-6-6 mynstureiningar á breiddina) og endið á 2-2-3-2-2-2 l í sléttprjóni. Mynstur A.1/A.2 færist til alla leið út að 2-2-3-2-2-2 l í hlið sem prjónaðar eru í sléttprjóni tilloka. Prjónið 1 nýja mynstureiningu A.1/A.2 á hæðina fyrir 22.-18.-20.-22.-20.-22. hverja umf. Prjónið svona þar til stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm. Fellið síðan af 1-1-1-2-2-4 l fyrir handveg í hvorri hlið = 91-93-105-111-121-129 l. Haldið áfram með mynstur, nema síðustu 5 l í hvorri hlið eru prjónaðar í sléttprjóni til loka. Þegar stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm – lesið LEIÐBEININGAR, prjónið 2 umf garðaprjón yfir miðju 27-27-29-29-29-29 l (= 32-33-38-41-46-50 l í hvorri hlið), prjónið þær l sem eftir eru eins og áður. Fellið nú af miðju 23-23-25-25-25-25 l fyrir hálsmáli = 34-35-40-43-48-52 l eftir í hvorri öxl. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir 2 síðustu l við hálsmál, mynstur og 5 l sléttprjón. Þegar stykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm eru prjónaðar 2 umf sléttprjón með 2 l garðaprjón hvoru megin við hálsmál. Fellið af. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki. Þegar stykkið mælist 47-49-50-52-54-55 cm eru prjónaðar 2 umf garðaprjón yfir 5 miðju l (= 43-44-50-53-58-62 l í hvorri hlið), aðrar l eru prjónaðar eins og áður. Fækkið nú miðju l í garðaprjóni og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. – Munið eftir LEIÐBEININGAR. Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir 2 síðustu l við hálsmál, mynstur og 5 l sléttprjón, JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l fyrir hálsmáli innan við 2 l garðaprjón – lesið ÚRTAKA, endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu 10-10-11-11-11-11 sinnum til viðbótar (= alls 11-11-12-12-12-12 sinnum = 34-35-40-43-48-52 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 42-42-44-48-48-50 l með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) á hringprjóna nr 4. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með 7-6-4-4-3-3 cm millibili 4-5-6-6-8-8 sinnum til viðbótar (= alls 5-6-7-7-9-9 sinnum) = 52-54-58-62-66-68 l. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 35-35-33-32-30-29 cm. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma yst í lykkjubogann. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #evasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.