Poinsot skrifaði:
Très joli et pratique.
11.06.2013 - 20:28
Granjeon skrifaði:
Somptueux
11.06.2013 - 09:37Cecilia Hermosilla skrifaði:
Podré obtener el patrón?
11.06.2013 - 06:25Cecilia Hermosilla skrifaði:
Me encantó la combinación de colores. Soy de Chile.
11.06.2013 - 06:24
Lisbeth Almlöf skrifaði:
Påminner om tröjan som min mamma stickade till mig när jag gick i femte klass.Min absoluta favorit som gav mig nostalgiminnen
04.06.2013 - 21:41
Sandrine skrifaði:
Vivement les explications pour le réaliser...Il est très joli. Merci
04.06.2013 - 04:07
Mrs Miriam Kopra skrifaði:
Dit wil ik echt breien prachtig
03.06.2013 - 10:26
Françoise skrifaði:
Quel beauté cet ensemble !!! ce sera certainement un de ceux que je vais tricoter cet été !!!!
03.06.2013 - 09:50
Veronique skrifaði:
Il est vraiment super
03.06.2013 - 09:37
Assunta skrifaði:
Splendido, da fare subito.
02.06.2013 - 20:35
September Set#septemberset |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð alpahúfa / basker og axlarskjól úr DROPS Lima með norrænu mynstri
DROPS 150-19 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR (alpahúfa / basker): Sjá mynsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. MYNSTUR (axlarskjól): Sjá mynsturteikningu A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING (á við um axlarskjól): Aukið er út um 1 l í einingu í stroffi með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 l br. Í næstu umf eru uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- ALPAHÚFA / BASKER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. ALPAHÚFA / BASKER: Fitjið upp 108-116 l á hringprjón nr 2,5 með litnum rúbínrauður. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 3-4 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 1 ums slétt JAFNFRAMT er fækkað um 18-20 l jafnt yfir = 90-96 l. Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.1 (= 15-16 mynstureiningar hringinn), JAFNFRAMT er aukið út í 2. umf eins og skýrt er frá í mynstri = 180-192 l á prjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umf merktri með ör A í mynstri er fækkað um 30-33 l jafnt yfir = 150-159 l. Haldið áfram með mynstur. Í umf merktri með ör B í mynstri er fækkað um 18-19 l jafnt yfir = 132-140 l. Haldið áfram með mynstur. Í umf merktri með ör C í mynstri er fækkað um 36-36 l jafnt yfir = 96-104 l. Haldið áfram með mynstur. Í umf merktri með ör C í mynstri er fækkað um 32-36 l jafnt yfir = 64-68 l. Haldið áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað er prjónað áfram með litnum grár þannig: * Prjónið 1 umf slétt, 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 16-17 l jafnt yfir (þ.e.a.s. prjónið 3. og 4. hverja l slétt saman) *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar (fyrir hverja umf sem fækkað er í er prjónuð 1 l færri áður en 2 l eru prjónaðar saman). Prjónið 1 umf slétt og prjónið síðan þær l sem eftir eru saman slétt 2 og 2 = 8-9 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 22-23 cm á hæðina. ------------------------------------------------------- AXLARSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring neðan frá og upp. AXLARSKJÓL: Fitjið upp 300-344 l á hringprjón nr 2,5 með litnum rúbínrauður. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 4-5 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 76-88 l jafnt yfir = 224-256 l á prjóni. Prjónið sl þar til stykkið mælist 4½-7 cm. Prjónið nú mynstur eftir A.2 (= 14-16 mynstureiningar hringinn). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umf merktri með ör E í mynstri er fækkað um 14-18 l jafnt yfir = 210-238 l. Haldið áfram með mynstur. Í umf merktri með ör F í mynstri er fækkað um 24-25 l jafnt yfir =186-213 l. Haldið áfram með mynstur. Í umf merktri með ör G í mynstri er fækkað um 10-13 l jafnt yfir = 176-200 l. Haldið áfram með mynstur. Í umf merktri með ör H í mynstri er fækkað um 20-20 l jafnt yfir = 156-180 l. Haldið áfram með mynstur. Í umf merktri með ör I í mynstri er fækkað um 20-32 l jafnt yfir = 136-148 l. Haldið áfram með mynstur. Í umf merktri með ör J í mynstri er fækkað um 30-32 l jafnt yfir = 106-116 l. Haldið áfram með mynstur. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið 2 umf slétt með litnum grár JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 14-20 l jafnt yfir = 120-136 l. Prjónið nú stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 4-5 cm er aukið út í annarri hverri umf 2 l br til 3 l br – LESIÐ ÚTAUKNING = 135-153 l. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 8-10 cm, en færið til útaukninguna þannig að það verða 2 l sl, 3 l br umf hringinn = 150-170 l á prjóni. Þegar stroffið mælist 10-12 cm er fellt laust af með sl yfir sl og br yfir br. Stykkið mælist ca 30-34 cm (með stroffi). |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #septemberset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.