Jette#jetteshawl |
|
|
|
Prjónað sjal í garðaprjóni úr DROPS BabyAlpaca Silk.
DROPS 149-2 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf . LEIÐBEININGAR: Mjög mikilvægt er að þegar skipt er um lit í röndum í 6 umf garðaprjón með litnum ljós gráfjólublár og 2 umf garðaprjón með litnum gráfjólublár er að strekkja aðeins á stykkinu og þræðinum svo kanturinn verði ekki of stífur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í tveimur stykkjum, þ.e.a.s. að prjónað er meðfram annarri hornréttu hliðinni á sjalinu. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram annarri langhliðinni á sama stykki og sjalið er prjónað til loka. LESIÐ LEIÐBEININGAR! STYKKI 1 (= A í teikningu með máli): Fitjið upp 3 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum ljós gráfjólublár. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 5 l. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 1 l sl, 1 l snúin slétt, 3 l sl (síðasti uppslátturinn = gat) = 5 l. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið slétt UMFERÐ 6 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 7 l. UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið 1 l sl, 1 l snúin slétt, 5 l sl (síðasti uppslátturinn = gat) = 7 l. UMFERÐ 8 (= rétta): Skiptið yfir í litinn gráfjólublár og prjónið slétt. UMFERÐ 9 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 10 (= rétta): Skiptið aftur yfir í litinn ljós gráfjólublár og prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá, 5 l sl, sláið 1 sinni uppá, 1 l sl = 9 l. UMFERÐ 11 (= ranga): Prjónið 1 l sl, 1 l snúin slétt, 7 l sl (síðasti uppslátturinn = gat) = 9 l. Endurtakið umf 4-11 þar til 45 l eru eftir á prjóni (þ.e.a.s. að aukið er út í hvorri hlið í 4. hverri umf JAFNFRAMT eru prjónaðar rendur með 6 umf garðaprjón með litnum ljós gráfjólublár og 2 umf garðaprjón með litnum gráfjólublár). Þegar 45 l eru á prjóni mælist stykkið ca 20 cm á breidd ef mælt er meðfram lykkjum). Prjónið 2 umf garðaprjón til viðbótar með litnum ljós gráfjólublár þannig að samanlagt eru 4 umf í garðaprjóni með litnum ljós gráfjólublár á eftir 2 umf í garðaprjóni og litnum gráfjólublár. Prjónið nú þannig: UMFERÐ 1 (= rétta og haldið er áfram með litinn ljós gráfjólublár): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl þar til 3 l eru eftir á prjóni, prjónið 2 l slétt saman og 1 l sl = 45 l. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið allar l slétt (uppsláttur = gat) = 45 l. UMFERÐ 3 (= rétta): Skiptið yfir í litinn gráfjólublár og prjónið slétt. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 5 (= rétta): Skiptið aftur til baka fyrir í litinn ljós gráfjólublár og prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl þar til 3 l eru eftir á prjóni, prjónið 2 l slétt saman og 1 l sl = 45 l. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið slétt (uppsláttur = gat) = 45 l. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið slétt. Endurtakið umf 1-8, þ.e.a.s. að aukið er út í annarri hliðinni og lykkjum fækkað í hinni hliðinni í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) og haldið áfram með rendur eins og áður með 6 umf garðaprjóni með litnum ljós gráfjólublár og 2 umf garðaprjón með litnum gráfjólublár. Þegar stykkið mælist ca 85 cm meðfram hægri langhlið (séð frá réttu) – endið eftir 4 umf í garðaprjóni með litnum ljós gráfjólublár, setjið 1 prjónamerki í byrjun umf frá réttu. Nú eiga að vera ca 95 göt meðfram hægri langhlið (séð frá réttu). Fellið nú af þannig: UMFERÐ 1 (= rétta og haldið áfram með litnum ljós gráfjólublár): Prjónið sl þar til 3 l eru eftir á prjóni, 2 l slétt saman, 1 l sl = 44 l. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 3 (= rétta): Skiptið yfir í litinn gráfjólublár og prjónið slétt. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 5 (= rétta): Skiptið aftur yfir í litinn ljós grár og prjónið sl þar til 3 l eru eftir á prjóni, 2 l slétt saman, 1 l sl = 43 l. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið slétt. Endurtakið umf 1-8, þ.e.a.s. að fækkað er um 1 l í lok 4. hverrar umf (þ.e.a.s. í lok annarrar hverrar umf frá réttu) og haldið er áfram með rendur eins og áður með 6 umf garðaprjón með litnum ljós gráfjólublár og 2 umf garðaprjón með litnum gráfjólublár. Þegar 3 l eru eftir þá er prjónað þannig: Prjónið 1 l sl, 2 l slétt saman, snúið við, prjónið 2 l sl, snúið við, prjónið 2 l slétt saman, klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. STYKKI 2 (= B í teikningu með máli): Prjónið upp frá réttu með litnum gráfjólublár þannig: Prjónið upp 1 l í oddinum á stykki A (merkt með stjörnu í mynsturteikningu), prjónið upp 1 l í gegnum fyrsta gatið, þ.e.a.s. prjónið í gegnum gatið, sækið þráðinn og dragið þráðinn til baka í gegnum gatið, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið upp 1 l í gegnum næsta gat (= 2 nýjar l í umf) *, endurtakið frá *-* meðfram allri hliðinni með götum að prjónamerki, þannig að það verða 190 l á prjóni (ef það þarf að prjóna upp fleiri l til þess að fá réttan lykkjufjölda er hægt að prjóna upp 1 l á milli gata með jöfnu millibili). Prjónið nú þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið sl þar til 3 l eru eftir á prjóni, prjónið 2 l slétt saman og 1 l sl (= 1 l færri). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá, prjónið sl þar til 4 l eru eftir á prjóni, prjónið 3 l slétt saman, 1 l sl (= 1 l fleiri og 2 l færri). UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið sl þar til 2 l eru eftir á prjóni, prjónið uppsláttinn snúinn slétt og endið á 1 l sl. UMFERÐ 6 (= rétta): Prjóni sl þar til 3 l eru eftir á prjóni, prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl (= 1 l færri). UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 8 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós gráfjólublár, prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl þar til 4 l eru eftir, prjónið 3 l slétt saman og 1 l sl (= 1 l fleiri og 2 l færri). UMFERÐ 9 (= ranga): Prjónið sl þar til 2 l eru eftir á prjóni, prjónið uppsláttinn snúinn slétt og endið á 1 l sl. UMFERÐ 10 (= rétta): Skiptið til baka fyrir í litinn gráfjólublár og prjónið sl þar til 3 l eru eftir, prjónið 2 l slétt saman og 1 l sl (= 1 l færri). UMFERÐ 11 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 12 (= rétta): Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá, prjónið sl þar til 4 l eru eftir á prjóni, prjónið 3 l slétt saman og 1 l sl (= 1 l fleiri og 2 l færri). UMFERÐ 13 (= ranga): Prjónið sl þar til 2 l eru eftir á prjóni, prjónið uppsláttinn snúinn slétt og endið á 1 l sl. Endurtakið umf 6-13 þar til stykkið mælist ca 15 cm frá þeim stað þar sem lykkjur voru prjónaðar upp – endið eftir 6 umf garðaprjón með litnum gráfjólublár. Prjónið nú þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós gráfjólublár og prjónið sl þar til 3 l eru eftir á prjóni, prjónið 2 l slétt saman og 1 l sl (= 1 l færri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Skiptið yfir í litinn gráfjólublár og prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl þar til 4 l eru eftir á prjóni, prjónið 3 l slétt saman og 1 l sl (= 1 l fleiri og 2 l færri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sl þar til 2 l eru eftir á prjóni, prjónið uppsláttinn snúinn slétt og endið á 1 l sl. Endurtakið umf 1-4 þar til stykkið mælist ca 31 cm frá þeim stað þar sem lykkjur voru prjónaðar upp – endið eftir 2 umf garðaprjón með litnum ljós gráfjólublár. Prjónið nú áfram eins og áður, einungis með litnum gráfjólublár, þ.e.a.s. að fækkað er til skiptis um 1 og 2 l í lok hverrar umf frá réttu og aukið er út um 1 l í byrjun á annarri hverri umf frá réttu. Þegar búið er að fækka um allar l, klippið frá og festið alla enda |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #jetteshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.