Jolanda skrifaði:
Warum muss ich nach dem bord so viele Maschen abnehmen. Und wie nehme ich diese am besten ab???
31.10.2023 - 17:19DROPS Design svaraði:
Liebe Jolanda, man braucht mehr Maschen für die Bündchen mit den kleineren Nadeln als für Glattrechts mit den grösseren Nadeln, deshalb wird man abnehmen. Hier wird es erklärt, wie man regelmäßig verteilt abnimmt (2 Maschen rechts zusammen). Viel Spaß beim stricken!
01.11.2023 - 14:47
Eleen skrifaði:
Sooviksin uurida et mis suurust kannab modell pildil? Küsin, et paremini suurust otsustada, kuna pildil paistab see kampsun pigem ebaharilikult madala õla joonega ja ka päris pika hõlmaga. Mõõtude järgi on päris keeruline suuruse kohta otsustada. Ette tänades!
26.01.2022 - 18:55DROPS Design svaraði:
Tere Eleen! Vaadake mõõtudega joonist juhendi lõpus. Vajadusel võrrelge mõõte olemasolevate riietega, et aidata suurust valida. Loodetavasti on abiks!
26.01.2022 - 23:37
Jeanette Damgaard skrifaði:
Hvis jeg skal skifte garnet om til noget, der kun skal bruges 1 tråd af, skal jeg så kigge i garngruppe B?
31.10.2020 - 17:19DROPS Design svaraði:
Hei Jeanette. Nei, ikke garngruppe B, men garngruppe C. DROPS Fabel og DROPS Baby Merino tilhører garngruppe A. Bruker du 2 tråder fra garngruppe A, blir det det samme som 1 tråd fra garngruppe C. mvh DROPS deisgn
02.11.2020 - 13:07
Helena Nilsson skrifaði:
Hej. Tänkte sticka denna kofta till min make men det finns endast beskrivning till 3XL men ha har storlek 7XL. Har ni någon beskrivning med denna storlek? Finns ju faktiskt människor som är lite större som också behöver koftor. Kan ni annars hjälpa mig att räkna ut så beskrivningen kan användas till storlek 7XL ? Tack i förhand. Med vänlig hälsning Helena
25.03.2019 - 00:25DROPS Design svaraði:
Hej. Vi har dessvärre inget mönster i storlek 7XL och vi har ingen möjlighet att göra extra beräkningar på andra storlekar än de som redan finns i mönstret eftersom det skulle bli alltför resurskrävande, hoppas du har förståelse för detta. Mvh DROPS Design
25.03.2019 - 11:34
Ivana skrifaði:
Buongiorno, nella spiegazione viene consigliato di avviare un certo numero di maglie e poi, a fine bordo, di effettuare una notevole diminuzione e ridurre il numero del ferro. Vorrei sapere se questa diminuzione è dovuta al tipo di lana o se il bordo 3d-3r necessita di più morbidezza. Perchè per il lavoro userò della lana Big Delight Print e altra Nepal (che vorrei usare per i bordi). Grazie, Ivana
15.04.2018 - 11:38DROPS Design svaraði:
Buongiorno Ivana. Le diminuzioni sono dovute al fatto che le coste 3 dir / 3 rov stringono molto il lavoro e lasciare lo stesso numero di m lavorate con ferri di misura maggiore renderebbe il capo troppo largo. Buon lavoro!
15.04.2018 - 17:38
Bente Poulsen skrifaði:
Hej Hvad er brystmålene for denne trøje, kan kun se størrelser i opskriften med venlig hilsen Bente
21.05.2013 - 13:55
Patricia skrifaði:
Kan dit ook als dames model vindt het wel mooi
23.02.2013 - 16:55DROPS Design svaraði:
Wij hebben soortgelijke damesmodellen in onze database. Probeer te zoeken in onze database.
27.02.2013 - 17:15
DROPS Extra 0-896 |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Fabel og DROPS BabyAlpaca Silk. Stærð S - XXXL
DROPS Extra 0-896 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI (F= Fabel og BS= Baby Alpaca Silk): Prjónið 14-15-15-16-16-17 cm (meðtalið stroff) með 1 þræði F + 1 þræði í litnum púður BS, prjónið A.3 (= ca 3½ cm), prjónið 14-14-15-15-16-16 cm með 1 þræði F + 1 þræði í litnum ljós sægrænn BS, prjónið A.3 (= ca 3½ cm), prjónið síðan með 1 þræði F + 1 þræði í litnum gráblár BS að loka máli. RENDUR ERMI: Prjónið 14-13-12-14-12-13 cm (meðtalið stroff) með 1 þræði F + 1 þræði í litnum púður BS, prjónið A.1 (= ca 3½ cm), prjónið 12-12-12-11-11-10 cm með 1 þræði F + 1 þræði í litnum pistasía BS, prjónið A.2 (= ca 3½ cm), prjónið 12-12-12-11-11-10 cm með 1 þræði F + 1 þræði í litnum ljós sægrænn BS, prjónið A.3 (= ca 3½ cm), prjónið síðan með 1 þræði F + 1 þræði í litnum gráblár BS að loka máli. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 185-203-221-239-257-287 lykkjur (1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 4,5 með 1 þræði Fabel + 1 þræði í litnum púður Baby Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir og endið með 3 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 6 cm er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 41-47-49-55-61-67 lykkjur jafnt yfir = 144-156-172-184-196-220 lykkjur. Setjið 1 merki 31-34-38-40-42-48 lykkjur inn frá hvorri hlið (= 82-88-96-104-112-124 lykkjur á milli merkja á bakstykki). Skiptið yfir á hringprjón 5 og haldið áfram í sléttprjóni og RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – lesið útskýringu að ofan, en ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar slétt í hverri umferð (= kantlykkja). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 30-33-37-39-41-47 lykkjur (= framstykki), fellið af 2 lykkjur fyrir handveg, prjónið 80-86-94-102-110-122 lykkjur (= bakstykki), fellið af 2 lykkjur fyrir handveg og prjónið síðustu 30-33-37-39-41-47 lykkjur (= framstykki). Hvert stykki er nú prjónað fyrir sig. BAKSTYKKI: = 80-86-94-102-110-122 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Í næstu umferð eru felldar af miðju 18-18-18-22-26-26 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 30-33-37-39-41-47 lykkjur eftir á öxl. Fellið laust af allar lykkjur þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. Endurtakið á hinni öxlinni. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 30-33-37-39-41-47 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm, fellið laust af allar lykkjur. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 42-48-48-48-54-54 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með 1 þræði DROPS Fabel + 1 þræði í litnum púður í DROPS Baby Alpaca Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið). Þegar stroffið mælist 6 cm er skipt yfir á sokkaprjón 5. Prjónið sléttprjón og RENDUR ERMI – lesið útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er fækkað um 2-8-6-6-10-10 lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 40-40-42-42-44-44 lykkjur. Þegar stykkið mælist 7-7-7-7-7-8 cm aukið út 2 lykkjur mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu í stærð S: Í 7. hverri umferð, í stærð M: Til skiptis í 6. og 7. hverri umferð, í stærð L: Í 6. hverri umferð, í stærð XL + XXL: Í 5. hverri umferð og í stærð XXXL: Í 4. hverri umferð, 15-16-17-19-19-21 sinnum til viðbótar (= alls 16-17-18-20-20-22 útaukningar) = 72-74-78-82-84-88 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 58-57-56-55-53-51 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Nú eru felldar af 5 lykkjur í byrjun 2 næstu umferða áður en allar lykkjur eru felldar laust af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónað er fram og til baka á hringprjóna. Byrjið frá miðju aftan í hnakka, prjónið upp frá réttu ca 130 til 150 lykkjur innan við 1 kantlykkju í kringum hálsmál og niður meðfram vinstra framstykki á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Fabel + 1 þræði í litnum ljós sægrænn DROPS Baby Alpaca Silk (= 2 þræðir). Í næstu umferð (= ranga) eru prjónað brugðið JAFNFRAMT því sem aukið er út jafnt yfir til 179-185-191-197-203-209 lykkjur (deilanlegt með 6 + 5). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, 1 lykkja slétt, * 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir og endið með 3 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur að framan mælist 8-8-8-9-10-10 cm. Setjið 1 merki frá réttu eftir fyrstu 38-38-38-44-44-44 lykkjur á prjóni. Nú er aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu (séð frá réttu) yfir 38-38-38-44-44-44 lykkjur = 6-6-6-7-7-7 nýjar lykkjur í hnakka. Endurtakið útaukningu þegar kantur að framan mælist 10-10-10-11-11-11 cm = 191-197-203-211-217-223 lykkjur. Þegar kantur að framan mælist 12-12-12-14-16-16 cm fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp ca 130 til 150 lykkjur meðfram hægra framstykki frá uppfitjunarkanti og að miðju að aftan í hnakka. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og aukið út jafnt yfir á sama hátt og á vinstri kanti að framan. Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 3 lykkjur garðaprjón, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni mitt aftan í hnakka. Prjónið og aukið út í hnakka á sama hátt og á vinstri kanti að framan. Þegar kantur að framan mælist 10-10-10-12-14-14 cm fellið af fyrir 2-2-2-3-3-3 hnappagötum. 1 hnappagat = prjónið 2 lykkjur slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn (fallegast er að fella af í brugðinni einingu séð frá réttu). Efsta hnappagatið á að vera staðsett ca 36-38-40-42-44-46 cm frá öxl og það eiga að vera ca 7-10 cm á milli hnappagata. Fellið af þegar kantur að framan mælist 12-12-12-14-16-16 cm. FRÁGANGUR: Saumið kanta að framan saman mitt aftan í hnakka innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-896
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.