Happy skrifaði:
So was hat mir noch ge- fehlt in meiner Sammlung. Toll für Übergang und Sommerabende. Ich liebe eure Modelle und auch die Wolle. Die Sachen passen perfekt.
24.12.2012 - 22:24
Hanne skrifaði:
Femenin
23.12.2012 - 13:46
Marianne skrifaði:
Ja til en kølig sommeraften....
19.12.2012 - 16:41
Pieper skrifaði:
Tolles Teil, das wird nächsten Sommer mein Begleiter sein. Mir fällt bei diesem Bild nur -Sommerwind- ein
18.12.2012 - 20:16
Pagand skrifaði:
Le grand retour des poncho, plus aériens que jamais. Excellente idée.
17.12.2012 - 18:28
Maret skrifaði:
Väga kaunis. Millal mustrid tulevad? Näpud juba sügelevad!
17.12.2012 - 10:35
Angela Schlimpert skrifaði:
Es ist ein Traum - übrigens finde ich das Ihr einfach wundervolle Ideen habt - ich kann mich immer schwer entscheiden welches am schönsten ist - Ihr seid perfekt und ich bin Euer Fan. Eure Gela
17.12.2012 - 07:10
Bolé Marie-Berthe skrifaði:
Poncho/châle, léger, aérien, enveloppant tout de même pourrait se nommer : "nuage de coton"
16.12.2012 - 12:36
Olivia skrifaði:
Snow white
16.12.2012 - 06:29
BATAILLE skrifaði:
J espère que ce modele que j aime particulièrement fera partie de la collection, car c est certain je m empresserai de le mettre sur mes aiguilles..... Cordialement.....
15.12.2012 - 22:49
Honeymoon#honeymoonponcho |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónað poncho úr DROPS BabyAlpaca Silk eða DROPS Lace með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 146-4 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Sjá ör fyrir þína stærð í mynstri A.2. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður, fyrst fram og til baka á hringprjóna, síðan í hring á hringprjóna. Þetta er gert til þess að það myndist op við miðju að framan. PONCHO: Fitjið upp 156-220 l á hringprjóna nr 3,5 (40 cm) með BabyAlpaca Silk eða Lace. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú þannig: Prjónið A.1 (= 17 l), * A.2 (= 5-21 l), A.3 (= 34 l) *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, A.2 (= 5-21 l), A.4 (= 17 l). Haldið áfram með þetta mynstur fram og til baka þar til prjónaðar hafa verið 2 mynstureiningar á A.1/A.4 á hæðina, endið þegar 17 l eru eftir á prjóni. Þetta er nú byrjun á umf. Prjónið nú hring yfir allar l, haldið áfram með A.3 yfir A.1 /A.4. Haldið áfram með þetta mynstur, skiptið nú yfir í lengri hringprjóna eftir þörf. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 348 l á prjóni í báðum stærðum. Prjónið nú áfram þannig: * Prjónið A.3, A.5A, A.5B 2 sinnum, A.5C *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum. Fyrir hvert skipti sem A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað 1 A.5B fleiri á milli hverja A.5A og A.5C. Haldið áfram með þetta mynstur þar til prjónaðar hafa verið 9-8 mynstureiningar af A.3 og 8-8 mynstureiningar af A.5 á hæðina = 732 l á prjóni í báðum stærðum. Prjónið 1 umf slétt yfir allar l, yfir allt A.5 fækkar um 9 l jafnt yfir (= 140 l eftir í hverju A.5, 696 l alls). Prjónið nú þannig: * Prjónið A.6 2 sinnum, haldið áfram með 2 fyrstu l í A.5A, prjónið A.6 8 sinnum, prjónið 2 síðustu l í A.5C, * endurtakið frá *-* alls 4 sinnum. Haldið svona áfram þar til A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina – útauknu l í A.5 eru prjónaðar slétt = 1072 l. Fellið laust af. STREKKING: Ef poncoið er prjónað úr Lace verður að strekkja það í rétta lögun og stærð. Ef það er prjónað úr BabyAlpaca Silk er hægt að strekkja það eða bleyta það örlítið. Leggið poncoið í volgt vatn þar til það er orðið blautt í gegn. Pressið varlega vatnið úr poncoinu – það má ekki vinda það. Stykkinu er nú rúllað inn í handklæði og pressað til þess að fá burt enn meira vatn – ponchoið kemur til með að vera aðeins rakt. Leggið stykkið á mottu eða dýnu – dragið það varlega út í rétta stærð í fallegan hring og notið nálar til þess að festa það. Látið stykkið þorna. Endurtakið þetta í hvert sinn sem stykkið er þvegið. Þræðið silkiborða upp og niður í umf í garðaprjóni við hálsmál á poncho og hnýtið slaufu að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #honeymoonponcho eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.