Anita Tholen skrifaði:
Dit vind ik geen flatteus model. Lijkt wat "stijf".
19.12.2012 - 07:53
Coleen skrifaði:
Classic beauty
15.12.2012 - 15:40
Michelle skrifaði:
Chic-ista
14.12.2012 - 00:12Svetlana skrifaði:
I would like to make such garment.
13.12.2012 - 11:22
Corinne skrifaði:
"COCO BY DROPS" un nom qui serait bien porté !
13.12.2012 - 10:12
Jutta skrifaði:
Sehr schoene Umsetzung von Haekeltechnik, mein Kompliment
12.12.2012 - 08:48
Ulla skrifaði:
ELEGANT - glæder mig til opskriften...
12.12.2012 - 06:31
Florence skrifaði:
So chic
12.12.2012 - 00:04
Lene Sørensen skrifaði:
"Cocco" Flot og klassisk!
11.12.2012 - 15:33
Willy skrifaði:
Altijd draagbaar elegant model
10.12.2012 - 21:05
Coco#cococardigan |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Hekluð peysa úr DROPS Fabel, DROPS BabyMerino og DROPS Glitter. Stærð S - XXXL
DROPS 148-16 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umf byrja á 3 ll sem koma í stað fyrsta st. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 ÚRTAKA: Heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 l. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið 83-91-99-107-115-123 ll (meðtaldar eru 3 ll til að snúa við) með heklunál nr 4,5 með 1 þræði af Fabel, 1 þræði af Baby Merino og 1 þræði af Glitter. Heklið fyrstu umf þannig: Heklið 1 st í 4. ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja og eina af 3 næstu ll *, endurtakið frá *-*, hoppið yfir 1 ll og endið með 1 st í 2 síðustu ll = 61-67-73-79-85-91 st. Heklið nú 10 umf eftir A.1 (5 st í hvorri hlið í kanti að framan). Kantur að framan er heklaður með 1 st í hvern st og er ekki talinn með í mynstri – lesið HEKLLEIÐBEININGAR. Þegar A.1 hefur verið heklað eru 146-162-178-194-210-226 st í umf. Heklið nú 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm. Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 24-27-30-33-36-40 st (framstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 30-32-34-36-38-40 st frá fyrri umf (þær eru notaðar seinna fyrir ermi), 38-44-50-56-62-70 st (bakstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 30-32-34-36-38-40 st frá fyrri umf (þær eru seinna notaðar fyrir ermi) og 24-27-30-33-36-40 st (framstykki). Heklið nú 1 st í hvern st/ll = 102-114-126-138-150-166 st. Bakstykki = 46-52-58-64-70-78 st, framstykki = 28-31-34-37-40-44 st. Haldið áfram með 1 st í hvern st. Þegar stykkið mælist 24-26-28-30-32-34 cm er fækkað um 4 st jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan). LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 34-36-38-40-42-44 cm = 94-106-118-130-142-158 st. Þegar stykkið mælist 40-42-44-46-48-50 cm er aukið út um 6-6-6-6-6-7 l jafnt yfir (aukið ekki út yfir lista að framan, endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm = 106-118-130-142-154-172 st. Heklið nú 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm, klippið frá og festið enda. ERMI: Ermin er hekluð ofan frá og niður. Byrjið á að hekla við miðju undir ermi þannig: Heklið 1 fl í 5. ll af þeim 8 ll sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki. Heklið 3 ll (= 1 st). Heklið nú 1 st í hverja ll. ATH: Áður en heklað er áfram yfir handveg er heklaður 1 st í skiptingunni á fram- og bakstykki (til þess að koma í veg fyrir gat). Heklið nú 1 st í hvern st yfir handveg. Heklið 1 st hringinn í skiptingunni, áður en heklaður er 1 st í hvern og einn af þeim ll sem eftir eru undir ermi = 40-42-44-46-48-50 st. Setjið 1 prjónamerki við miðju undir ermi. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Heklið 1 st í hvern st. Þegar stykkið mælist 4 cm fækkið um 1 l á hvoru megin við prjónamerki, lesið ÚRTAKA, endurtakið úrtöku með 11-11-11-8-8-8 cm millibili 3-3-3-4-4-4 sinnum til viðbótar (alls 4-4-4-5-5-5 úrtökur) = 32-34-34-36-38-38 st. Klippið frá og festið enda þegar ermin mælist 45-45-44-44-43-43 cm – ATH: Styttri mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og breiðari axla. VASABRÚN: Heklið 17 ll (meðtaldar eru 3 ll til þess að snúa við) með heklunál nr 4,5 með 2 þráðum af Baby Merino og 1 þræði af Glitter. Heklið fyrstu umf þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, heklið síðan 1 st í hverja ll = 15 st. Heklið nú 1 st í hvern st þar til vasabrúnin mælist 8 cm. Klippið frá og festið endann. Heklið eina vasabrún eins. Saumið vasabrúnina á framstykkið, ca 10 cm frá neðri kanti. Vasabrúnin er einungis saumuð föst í efri kantinn. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant í kringum allt opið á peysunni með 2 þráðum af Baby Merino og 1 þræði af Glitter þannig: Heklið 1 fl, * 3 ll, 1 st í 1. ll, hoppið fram ca 1 – 1½ cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kl í fyrstu fl. Heklið alveg eins umf meðfram opi á ermum neðst niðri. Saumið 6-6-6-7-7-7 tölur í vinstra framstykki, sú neðsta ca 8 cm frá neðri kanti, sú efsta 2 cm frá efri kanti. Staðsetjið hinar tölurnar jafnt yfir á milli efstu og neðstu tölu. Tölum er hneppt í heklaða kantinn. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cococardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 5 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 148-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.