Monika skrifaði:
En dröm att svepa om sig en sommar kväll eller morgon.
01.01.2013 - 20:55
FORNARA skrifaði:
Comme une aile de papillon
31.12.2012 - 13:32Jutta skrifaði:
Elfin weave
30.12.2012 - 11:04
Elena skrifaði:
Hermoso modelo
28.12.2012 - 22:22
Zydie skrifaði:
Summer Rose
26.12.2012 - 22:36
Lo skrifaði:
Så skir och fin!
22.12.2012 - 17:58
Barbara skrifaði:
Midtsommer natt
20.12.2012 - 22:16Fieryhun skrifaði:
Big half-circle of happiness.
20.12.2012 - 20:46
Lotte Thomsen skrifaði:
Smuk :)
20.12.2012 - 16:02
Pagand skrifaði:
Trop classe. Tout en douceur et en transparence. Vivement les explications, on s'impatiente déjà...
17.12.2012 - 18:38
Imogen#imogenshawl |
|
![]() |
![]() |
Prjónað sjal úr 2 þráðum DROPS Vivaldi með röndum í litatónum og löngum lykkjum
DROPS 148-3 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Byrjað er að prjóna með litnum natur efst uppi og smá saman dekkjast litatónarnir það eftir því sem prjónað er lengra. Vegna lykkjufjöldans er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna. SJAL: Fitjið upp 7 l á hringprjóna nr 8 með 2 þráðum af litnum natur og prjónið rendur með litatónum og löngum lykkjum – JAFNFRAMT er aukið út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl *, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum og endið með 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 l sl = 10 l. UMFERÐ 3 (og í hverri umf frá réttu): Prjónið slétt – ATH: Þegar uppslátturinn frá fyrri umf er prjónaður er hann prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l br *, endurtakið frá *-* alls 8 sinnum og endið með að slá 1 sinni uppá prjóninn og 1 l sl = 19 l. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið 1 l sl, prjónið br þar til 1 l er eftir, 1 l sl. UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið 1 l sl, * 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l br *, endurtakið frá *-* alls 8 sinnum og endið með 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 1 l sl = 28 l. UMFERÐ 10: Prjónið 1 l sl, prjónið br þar til 1 l er eftir, 1 l sl. UMFERÐ 12: Prjónið 1 l sl, * 1 l br, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l br *, endurtakið frá *-* alls 13 sinnum og endið með 1 l sl = 41 l. Prjónið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 40 l jafnt yfir (þ.e.a.s. sláið 1 sinni uppá prjóninn eftir hverja l) – LESIÐ ÚTAUKNING = 81 l. Þegar stykkið mælist 19 cm er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: * Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið með 1 l sl. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu JAFNFRAMT er uppslætti sleppt niður (þessar 2 umf = langar l). Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 22 cm. Aukið nú út um 26 l jafnt yfir (þ.e.a.s. byrjið eftir 1. l og sláið 1 sinni uppá prjóninn eftir 3. hverja l) = 107 l. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 26 cm. Í næstu umf frá réttu eru aftur prjónaðar langar lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 30 cm. Aukið nú út um 30 l jafnt yfir (þ.e.a.s. sláið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis eftir 3 og 4 l) = 137 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 32 cm. Í næstu umf frá réttu eru aftur prjónaðar langar lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 38 cm. Aukið nú út um 30 l jafnt yfir (þ.e.a.s. sláið uppá 1 sinni prjóninn til skiptis eftir 4 og 5 l) = 167 l. Skiptið yfir í 1 þráð í litnum natur + 1 þráð í litnum ljós púðurbleikur og prjónið sléttprjón í 3 cm (stykkið mælist 41 cm). Í næstu umf frá réttu eru aftur prjónaðar langar lykkjur, haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 46 cm. Aukið nú út um 30 l jafnt yfir (þ.e.a.s. sláið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis eftir 5 og 6 l) = 197 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 48 cm. Í næstu umf frá réttu eru aftur prjónaðar langar lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 52 cm (röndin mælist nú 14 cm). Skiptið yfir í 2 þræði í litnum ljós púðurbleikur og prjónið sléttprjón í 1 cm. Aukið nú út um 30 l jafnt yfir (þ.e.a.s. sláið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis eftir 6 og 7 l) = 227 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 55 cm. Í næstu umf frá eru prjónaðar langar lykkjur, haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 59 cm (röndin mælist nú 7 cm). Skiptið yfir í 1 þráð í litnum ljós púðurbleikur + 1 þráð í litnum bleikfjólublár og prjónið sléttprjón í 1 cm. Aukið nú út um 30 jafnt yfir (þ.e.a.s. sláið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis eftir 7 og 8 l) = 257 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 62 cm. Í næstu umf frá réttu eru prjónaðar langar lykkjur, haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 66 cm (röndin mælist nú 7 cm). Skiptið yfir í 2 þræði í litnum bleikfjólublár og prjónið sléttprjón í 3 cm. Í næstu umf frá réttu eru prjónaðar langar lykkjur, haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 71 cm. Aukið nú út um 30 l jafnt yfir (þ.e.a.s. sláið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis eftir 8 og 9 l) = 287 l. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 73 cm (röndin mælist nú 7 cm). Skiptið yfir í 1 þráð í litnum bleikfjólublár + 1 þráð í litnum fjólublár og prjónið sléttprjón í 3 cm. Í næstu umf frá réttu eru prjónaðar langar lykkjur, haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 79 cm. Aukið nú út um 30 l jafnt yfir (þ.e.a.s. sláið 1 sinni uppá prjóninn til skiptis eftir 9 og 10 l) = 317 l. Í næstu umf frá réttu er fellt MJÖG LAUST af (röndin mælist nú 7 cm). |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #imogenshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 148-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.