DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Estelle

Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Alpaca með stuttum ermum, gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL.

DROPS 148-4
DROPS Design: Mynstur nr z-635
Garnflokkur A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
200-250-250-300-300-350 gr litur nr 100, natur
200-200-200-250-250-300 gr litur nr 3112, daufbleikur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni með 2 þráðum verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – fyrir stroff.
DROPS PERLUTALA, NR 521: 7-7-7-8-8-8 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að taka upp l frá fyrri umf, prjónið þessa l sl.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l við miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 2, 11, 19, 28, 36, 45 og 53 cm
STÆRÐ M: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 55 cm
STÆRÐ L: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 57 cm
STÆRÐ XL: 2, 11, 19, 27, 35, 43, 51 og 59 cm
STÆRÐ XXL: 2, 10, 19, 27, 36, 44, 53 og 61 cm
STÆRÐ XXXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47, 55 og 63 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 223-243-268-293-323-353 l (meðtaldar eru 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með 2 þráðum í litnum natur Alpaca.
Prjónið 1 umf brugðið frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 3 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 8 l eru eftir og endið með 3 l sl og 5 kantlykkjum að framan í GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram með stroff – munið eftir HNAPPAGAT í hægra framstykki – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt frá réttu. JAFNFRAMT er fækkað um 69-77-86-95-105-115 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 154-166-182-198-218-238 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður, 3-3-5-5-7-7 l í sléttprjóni, prjónið A.1 (= 13 l), prjónið sléttprjón þar til 21-21-23-23-25-25 l eru eftir á prjóni, prjónið A.1 (= 13 l), 3-3-5-5-7-7 l með sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7 cm er sett 2 prjónamerki í stykkið, 41-44-48-52-57-62 l frá hvorri hlið (= 72-78-86-94-104-114 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 3-3-3½-3½-5-5 cm millibili, 3-3-3-3-2-2 sinnum til viðbótar (= alls 4-4-4-4-3-3 færri) = 138-150-166-182-206-226 l. Þegar stykkið mælist 18-19-19-19-20-20 cm prjónið áfram með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum daufbleikur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 22-22-23-23-24-24 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 5-5-5-5-8-8 cm millibili, 3-3-3-3-2-2 sinnum til viðbótar (= alls 4-4-4-4-3-3 útaukningar) = 154-166-182-198-218-238 l. Þegar stykkið mælist 39-41-42-43-44-45 cm er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 36-39-43-46-51-56 l eins og áður (= hægra framstykki), fellið af næstu 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg, prjónið 62-68-76-82-92-102 l eins og áður (= bakstykki), fellið af næstu 10-10-10-12-12-12 l af fyrir handveg og prjónið síðustu 36-39-43-46-51-56 l eins og áður (= vinstra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 70-70-75-80-85-90 l á sokkaprjóna nr 4 með 1 þræði í litnum natur + 1 þræði í litnum daufbleikur. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið nú stroff (= 3 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 16-12-13-16-17-18 l jafnt yfir = 54-58-62-64-68-72 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 12-12-13-13-14-14 cm eru felldar af 10-10-10-12-12-12 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. 5-5-5-6-6-6 l hvoru megin við prjónamerki) = 44-48-52-52-56-60 l.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón nr 5 og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 222-242-266-278-306-334 l. Byrjið frá röngu, setjið 1 prjónamerki í byrjun umf – HÉÐAN ER NÚ MÆLT. Prjónið fram og til baka eins og áður með 2 þráðum í litnum daufbleikur JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er fækkað um 11-5-12-11-9-11 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir 21-21-23-23-25-25 l æi hvorri hlið) 211-237-254-267-297-323 l.
LESIÐ ALLAN KAFLANN UM BERUSTYKKI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Þegar stykkið mælist 1-1-2-2-3-3 cm frá prjónamerki er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 21-21-23-23-25-25 l eins og áður, prjónið A.2 þar til 21-21-23-23-25-25 l eru eftir (þ.e.a.s. 13-15-16-17-19-21 mynstureiningar með A.2) og prjónið síðustu 21-21-23-23-25-25 l eins og áður (þ.e.a.s. A.2 er prjónað í sléttprjóni jafnframt sem lykkjum er fækkað eins og útskýrt er í teikningu). Að auki er fækkað um 1 l innan við kant að framan til skiptis á hægra og vinstra framstykki – ATH: Lykkjum er fækkað í sömu umf eins og lykkjum er fækkað í A.2 þannig að lykkjum er fækkað 3 sinnum innan við hægri kant að framan og 3 sinnum innan við vinstri kant að framan. Eftir síðustu úrtöku eru 127-141-152-159-177-191 l á prjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 54 cm í öllum stærðum (frá uppfitjunarkanti), endar A.1 í hvorri hlið eftir heila mynstureiningu á hæðina og haldið áfram í sléttprjóni yfir allar l (kantlykkjur að framan eru áfram í garðaprjóni). Þegar stykkið mælist 14-14-15-16-17-18 cm frá prjónamerki (munið eftir síðasta hnappagati í kanti að framan), prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 35-47-54-57-71-83 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur að framan) = 92-94-98-102-106-108 l.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt frá röngu með 2 þráðum í litnum daufbleikur. Prjónið nú 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT sem aukið er út um 21-24-25-26-27-30 l jafnt yfir (aukið ekki út yfir kantlykkjur að framan) = 113-118-123-128-133-138 l. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 3 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 8 l eru eftir og endið með 3 l br og 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff þar til hálsmálið mælist 3 cm. Fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 2 l sl saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 148-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (49)

country flag Karen wrote:

Have started this sweater, decided I am going to make it a long sleeved cardigan. Is there a pattern to follow for the long sleeves? Also, is it possible for me to make the neck higher as a neck cardigan?? I am making it a size XXXL. Thank you for taking the time to answer these questions.

10.01.2019 - 16:06

DROPS Design answered:

Hi Karen, If you search under the yarn type and jacket/jumper you will find patterns for long sleeves which you could use instead - just be careful with the measurements and adjust stitch number if necessary. To make the collar higher at the back you need to work short rows - again search for the same yarn and a pattern with short rows and use these on your cardigan. Happy knitting!

11.01.2019 - 08:08

country flag Bodil Clausen wrote:

Der står i opskriften- under ærmet: år arb måler 12-12-13-13-14-14 cm tages der 10-10-10-12-12-12 m ind midt under ærmet (dvs 5-5-5-6-6-6 m på hver side af osv. Skal der ikke lukkes 10 masker af???

16.08.2016 - 20:54

DROPS Design answered:

Hej. Jo det ska vara lukkes af, texten har nu rättats. Mvh DROPS Design

17.08.2016 - 10:03

Eman Shahien wrote:

Elegant and delicate

04.04.2013 - 23:32

country flag Margot wrote:

Man kan ju blanda 2 färger på 3 olika sätt. Färg 1 och 2: 11,12,22.

14.03.2013 - 11:22

country flag Elin Svensvik wrote:

Er det bare to farver på denne?Ser ut som det er tre farver.

14.03.2013 - 09:30

DROPS Design answered:

Der bruges kun to farver, men du strikker et stykke med natur, et stykke med natur og stövrosa og et stykke kun med stövrosa. Paa den maade faar du tre forskellige overgange

15.03.2013 - 16:48

SUSANA wrote:

Frescura y comodidad.

11.02.2013 - 02:34

country flag Lise Svartås wrote:

Hvor mye garn må en ha hvis en bare vil ha en farge

31.01.2013 - 08:45

DROPS Design answered:

400 gr for str S, 450 gr for str M osv.

31.01.2013 - 10:40

Laura wrote:

I think Pembrooke would be a pretty name for it!

18.01.2013 - 01:21

country flag Heidi wrote:

Kaunis, värien liuttaminen pikanttia.

16.01.2013 - 14:59

country flag Tinou49 wrote:

J'aime beaucoup

15.01.2013 - 12:08