Hanna skrifaði:
När man har virkat varv 14 (stl 41/43) är det 7 maskor kvar på föregående varv. Ska man virka smygmaskor fram till första luftmaskan på varv 13? Eller ska man upprepa *_* 6 gånger (istället för 5 gånger som det står i beskrivningen)?
30.11.2024 - 08:27DROPS Design svaraði:
Hei Hanna. Ingen smygmaske, følg oppskriften (gjenta 5 ganger). I str. 41/43 . Når du skal hekle 12. omg skal du ha 30 fastmasker, så hekler du * 1 fm i hver av de 5 første fm, 2 fm i neste fm *, gjenta fra *-* totalt 5 ganger = 35 fm. Og når du så skal hekle 14. omgang hekler du * 1 fm i hver av de 6 første fm, 2 fm i neste fm *, gjenta fra *-* totalt 5 ganger = 40 fm. mvh DROPS Design
02.12.2024 - 09:43
Martine skrifaði:
Bonjour, comment faire pour crocheter en rond sans joindre à la fin de chaque tour et pourquoi...? ( Dans la deuxième partie.) Merci
03.03.2019 - 19:48DROPS Design svaraði:
Bonjour Martine, on procède ainsi pour ne pas avoir de démarcation. Placez un marqueur entre la dernière ms du tour et la 1ère ms du tour suivant, crochetez ensuite 1 ms dans la 1ère ms du tour suivant et continuez ainsi en spirale, en faisant suivre votre marqueur pour bien repérer le début des tours. Bon crochet!
04.03.2019 - 11:06
Nathalex skrifaði:
Modèle très sympa, j'ai utilisé tous les restes de Fabel, ça fait un chausson très gai !
06.11.2014 - 12:22
Ann-Louise.Svensson skrifaði:
Varv 12. Hur många maskor ska det vara det står 42-35 som totalt antal maskor på varvet. Nästa ökning står det totalt 40 maskor.
12.01.2014 - 20:47DROPS Design svaraði:
Hej Ann-Louise. Du skal have 42 eller 35 fm afhaengigt af hvilken str du laver. Du er nu faerdig med stl 38/40 derfor er der i varv 14 40 fm (kun stl 41/43)
14.01.2014 - 15:05
Petra skrifaði:
Hallo, was heisst 'spiralförmig Häkeln ohne die Runde zu schliessen'? Einfach nach einer Runde die Arbeit umdrehen und wieder zurück häkeln und dies solange wiederholen bis die Arbeit 14-16-18 cm misst?
10.11.2013 - 16:53DROPS Design svaraði:
Liebe Petra, die Arbeit wird beim spiralförmigen Häkeln NICHT gewendet. Sie häkeln einfach fortlaufend weiter, ohne die Runde zu schliessen und ohne zu wenden (wie eine Spirale).
11.11.2013 - 07:30
Bea skrifaði:
Gemakkelijke beschrijving,zeer een voudig,ik heb er reeds drie paar gemaakt,doe zo verder
28.01.2013 - 21:50
Dennis Brenzel skrifaði:
Ich verstehe leider nicht die Häckelinfo. Können Sie es mir nochmal erklären. Wäre sehr nett. Danke
23.01.2013 - 12:18DROPS Design svaraði:
Lieber Dennis, was genau verstehen Sie nicht? Die Abkürzungen? Wie die Reihen oder Runden begonnen oder beendet werden?
24.01.2013 - 11:28
Sandra skrifaði:
Mooie slofjes. Hopelijk zijn ze niet te moeilijk om zelf te maken!
11.01.2013 - 20:47
Emma skrifaði:
Är dom virkade eller stickade?
18.12.2012 - 18:16
Ela skrifaði:
Erg leuk deze eenvoudige gehaakte slofjes in warme kleuren. Die zou ik dolgraag willen maken.
18.12.2012 - 00:20
Alina#alinaslippers |
|
|
|
Heklaðar tátiljur úr 2 þráðum DROPS Fabel. Stærð 35-43.
DROPS 148-28 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun hverrar umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Umf endar með 1 kl í ll í byrjun umf. Í byrjun hverrar umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Umf endar með 1 kl í ll í byrjun fyrri umf. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Heklið 1 fl en bíðið með að draga þráðinn í gegn alla leið (= 2 l á heklunálinni), heklið nú næstu fl. Þegar þráðurinn er dreginn í gegn í lokin er þráðurinn dregið í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fl. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring frá tá og aftur ofan á fót, síðan er heklað fram og til baka aftan við hæl. TÁTILJA: Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með 1 þræði af hvorum lit (= 2 þræðir) og tengið í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 6-6-5 fl um hringinn – lesið HEKLLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 12-12-10 fl. UMFERÐ 3 (og síðan önnur hver umf): Heklið 1 fl í hverja fl. UMFERÐ 4: * Heklið 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-6-5 sinnum = 18-18-15 fl. UMFERÐ 6: * Heklið 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-6-5 sinnum = 24-24-20 fl. UMFERÐ 8: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-6-5 sinnum = 30-30-25 fl. UMFERÐ 10: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-6-5 sinnum = 36-36-30 fl. Útaukningu er nú lokið í stærð 35/37. UMFERÐ 12: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 5 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 6-5 sinnum = 42-35 fl. Útaukningu er nú lokið í stærð 38/40. UMFERÐ 14: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 6 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 40 fl. UMFERÐ 16: * Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 7 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 45 fl. Útaukningu er nú lokið í stærð 41/43. ALLAR STÆRÐIR: = 36-42-45 fl í umf. Heklið hringinn með 1 fl í hverja fl (án þess að enda umf) þar til stykkið mælist 14-16-18 cm. Heklið nú fl fram og til baka yfir fyrstu 24-30-32 fl (þ.e.a.s. ekki hekla yfir síðustu 12-12-13 fl í umf) – munið HEKLLEIÐBEININGAR! Þegar tátiljan mælist 20-22-25 cm (þ.e.a.s. ca 6-6-7 cm frá skiptingu) er sett 1 prjónamerki fyrir miðju í stykkið (= 12-15-16 fl hvoru megin við prjónamerki). Í næstu umf er fækkað um 1 fl hvoru megin við prjónamerki, þ.e.a.s. byrjið 2 l á undan prjónamerki og heklið 4 næstu fl saman 2 og 2 – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 2 fl færri). Heklið 1 umf án úrtöku. Endurtakið úrtöku í næstu umf (= 2 fl færri) = 20-26-28 l eftir í umf. Heklið 1 umf án úrtöku. Leggið tátiljuna saman tvöfalda og heklið saman fyrir miðju að aftan með einni umf kl í gegnum bæði stykkin (tátiljan mælist nú ca 22-24-27 cm frá tá að hæl). Klippið frá og festið enda. KANTUR MEÐ TÖKKUM: Byrjið við miðju að aftan og kant með tökkum efst í kringum opið á tátiljunni þannig (heklið með heklunál nr 4 með 1 þræði í hvorum lit): Heklið 1 fl í fyrstu l, * 3 ll, 1 st í 3. ll frá heklunálinni, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn en endið umf með 1 kl í fl í byrjun umf (í stað 1 fl í næstu l). Klippið frá og festið enda. Heklið aðra tátilju á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #alinaslippers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 148-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.