DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 148-32
DROPS Design: Mynstur nr ne-113
Garnflokkur C
--------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: ca 22 - 24 - 27 cm

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
100-100-100 gr litur nr 0100, natur
50-50-50 gr litur nr 6220, milliblár
50-50-50 gr litur nr 6314, gallabuxnablár
50-50-50-50 gr litur nr 7120, ljós grágrænn
100-100-100 gr litur nr 7139, grágrænn

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til 17 st verði 10 cm á breidd.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4928.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsti st í hverri umf með st er skipt út fyrir 3 ll og umf endar með 1 kl í þrjiðju ll.
Fyrsta fl í hverri umf með fl er skipt út fyrir 1 ll og umf endar með 1 kl í fyrstu ll.

ÚRTAKA:
Fækkað er um 1 lykkju með því að hekla 2 st saman þannig:
Heklið 1 st í næstu fl, bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu fl alveg eins, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

RENDUR:
Klippið ekki þráðinn með litnum natur frá, látið hann fylgja með stykkinu, hinir litirnir eru klipptir frá við litaskipti.
1 umf með ljós grágrænn og fl,
1 umf með grágrænn og fl,
1 umf með natur og st,
1 umf með grágrænn og fl,
1 umf með ljós grágrænn og fl,
1 umf með natur og st,
1 umf með gallabuxnablár og fl,
1 umf með millibláur og fl,
1 umf með natur og st,
1 umf með milliblár og fl,
1 umf með gallabuxnablár og fl,
1 umf með natur og st,
Endurtakið þessar 12 umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað frá tá, að hæl, síðan er heklað upp við ökkla.

TÁTILJA:
Heklið 5 ll með litnum natur með heklunál nr 4 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 1: Heklið 12 st um ll-hringinn – byrjun umf = miðja undir fæti.
UMFERÐ 2: * Heklið 1 st í fyrsta sl, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 st.
UMFERÐ 3: * Heklið 1 st í hvorn af fyrstu 2 st, 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 st.
UMFERÐ 4 (skiptið yfir í litinn milliblár): Heklið * 1 fl í hvern af fyrstu 3 st, 2 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl.
UMFERÐ 5 (skiptið yfir í litinn blár): Heklið * 1 fl í hverja fl, en aukið út um 4-6-10 fl jafnt yfir = 34-36-40 fl.
UMFERÐ 6 (skiptið yfir í litinn natur): Heklið 1 st í hverja fl.
Haldið áfram með RENDUR - lesið útskýringu að ofan. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 12-13-15 cm, endið eftir 2 umf með fl, klippið frá. Setjið 1 prjónamerki á milli 2 miðju l í umf, þ.e.a.s. eftir 17-18-20 st. Haldið á stykkinu þannig að táin snú að ykkur og teljið 4 l til vinstri á undan þræði, byrjið að hekla héðan frá réttu með litnum natur og st. Heklið þar til 6 l eru eftir alls 6 fl í umf (þ.e.a.s. 3 l hvoru megin við prjónamerki við miðju ofan á fæti), snúið við. Haldið áfram með rendur eins og áður – heklið 1 kl í fyrsta st, síðan fl þar til 1 st er eftir, snúið við. Heklið nú fram og til baka yfir þær 26-28-32 l sem eftir eru þar til stykkið mælist alls ca 21-23-26 cm – stillið af að næsta umf sem verður hekluð sé umf með litnum natur og st. Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 st í hverja og eina af fystu 11-12-14 fl, heklið nú 4 næstu st saman 2 og 2 – lesið ÚRTAKA, heklið nú 1 st í hverja og eina af síðustu 11-12-14 fl.
Klippið frá. Leggið tátiljuna saman og saumið saman kant í kant við miðju að aftan.

LEGGUR:
Byrjið við miðju að aftan og heklið 40-42-44 st með litnum grágrænn jafnt yfir í kringum opið efst á tátiljunni. Haldið áfram hringinn með st þar til heklaðar hafa verið alls 6 umf. Í næstu umf er aukið út um 8-9-10 st jafnt yfir = 48-51-54 st. Heklið nú kant sem heklaður er yfir legginn við ökkla. Til þess að útkoman verð sem best er stykkinu snúið við og heklað er áfram frá röngu.
UMFERÐ 1: * Heklið 1 picot (= 4 ll, 1 st í fyrstu ll), hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, í stað síðustu fl endið með 1 kl í fyrstu ll. Klippið frá.
UMFERÐ 2: Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn. Byrjið með 1 fl í kringum toppinn á fyrsta picot, heklið nú * 1 picot, festið með 1 fl í kringum toppinn á næsta picot *, endurtakið frá *-* umf hringinn en í stað síðustu fl endið með 1 kl í fyrstu ll. Klippið frá og festið enda.
UMFERÐ 3: Skiptið yfir í litinn natur og heklið eins og umf 2.
Brjótið saman 5 efstu umf niður við ökkla.

BLÓM:
Heklið 3 blóm: Heklið 1 blóm með litnum natur, 1 blóm með litnum milliblár og 1 blóm með litnum gallabuxnablár.
Heklið þannig: Heklið 5 ll, tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll.
Næsta umf er hekluð þannig: * 1 picot (= 4 ll, 1 st í fyrstu ll), 1 fl um ll-hringinn *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar = 6 blöð. Klippið frá.
Saumið blómin þrjú niður öðru megin við ökkla.

Heklið aðra tátilju á sama hátt, en saumið blómin niður í gagnstæða hlið við ökkla.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.12.2016
Nýtt efnismagn í lit nr 7139, grágrænn: 100 gr í lit nr 7139, grágrænn
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Stribede tøfler

Line, Denmark

Stribede tøfler

Line, Denmark

148-32 Annabelle

Nadezhda, Russian Federation

Skrifaðu athugasemd um DROPS 148-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (82)

country flag Yvette Winkler wrote:

I have 100% acrylic worsted #4 medium weight yarn I would like to use to mKe these slippers. Would that yarn be interchangeable with Drops “Nepal”? Beautiful pattern.

05.11.2021 - 17:39

DROPS Design answered:

Dear Yvette, please understand that these patterns are made available to support DROPS yarns, thus we cannot help you with other brands. Happy Stitching!

05.11.2021 - 19:34

country flag Van Lierde Christine wrote:

Veel instopwerk!

02.11.2021 - 14:17

country flag Sabrina wrote:

Grazie!!

11.04.2021 - 16:27

country flag Sabrina wrote:

Quindi se la mia taglia per il giro 5 è 35/37 devo lavorare 34 maglie in totale? O ogni 7 maglie circa aumento di 4 maglie?

11.04.2021 - 16:08

DROPS Design answered:

Buonasera Sabrina, per la sua taglia deve aumentare 4 maglie come indicato, passando da 30 a 34 maglie. Buon lavoro!

11.04.2021 - 16:23

country flag Sabrina wrote:

Non capisco il giro 5. Cosa significa aumenti a intervalli 4-6-10 e 34-36-40??

11.04.2021 - 10:03

DROPS Design answered:

Buongiorno Sabrina, durante la lavorazione delle 30 maglie basse deve aumentare il numero di maglie basse indicate per la sua taglia, in modo regolare, cioè più o meno alla stessa distanza. Buon lavoro!

11.04.2021 - 11:35

country flag Irene wrote:

Me encantaron. Gracias

25.07.2020 - 21:13

country flag Theresa Suszko wrote:

Hi how are you? I have a question ? I can’t figure out the part where you put the marker and crochet 6 stitches ? I was wondering if you have a video on how to do this part? Thank you theresa

15.02.2020 - 00:54

DROPS Design answered:

Dear Mrs Suszko, this video shows from time code 0:44 how you just turn and continue with some unworked stitches mid on upper foot. Happy crocheting!

17.02.2020 - 08:07

country flag Sordana wrote:

Wat wordt bedoeld met de stekenverhouding na toer 6? Is het de bedoeling dat ik bij iedere kleurwissel moet meerderen?

01.12.2019 - 18:59

DROPS Design answered:

Dag Sordana,

Het heeft niet specifiek met toer 6 te maken, maar het is even een herinnering om te controleren of je stekenverhouding nog steeds overeenkomt, zodat je slof de juiste maat krijgt.

07.12.2019 - 10:56

country flag Emmanuelle wrote:

Bonjour, Je voudrais réaliser ce modèle en une seule couleur. De combien de pelotes ai-je besoin ? Merci à vous

07.08.2019 - 11:59

DROPS Design answered:

Bonjour Emmanuelle, nous avons uniquement les quantités correspondantes au modèle présenté, soit avec les rayures. Pour un modèle uni, il vous faudra additionner chaque couleur, il est toutefois possible que vous en ayez besoin d'un peu moins. Vous pouvez vous inspirer d'autres modèles similaires; votre magasin devrait pouvoir vous assister si besoin - même par mail ou téléphone. Bon crochet!

07.08.2019 - 12:45

country flag Zobeida wrote:

Excelente trabajo

06.06.2019 - 22:13