Μαρία skrifaði:
Good morning! I was amazed by the drawings and detailed instructions given, but I find it difficult to katanoiso.Tha like if you are easy to send to my Greek language. Thank you!
01.04.2014 - 08:28DROPS Design svaraði:
Dear Μαρία, our patterns are not available in Greek, please contact your Drops store if you have any question or for individual help. Happy knitting!
01.04.2014 - 09:05
Laudico skrifaði:
Pourquoi tous vos modèle il faut des aiguilles circulaires
28.01.2013 - 10:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Madame Laudico, beaucoup de nos modèles se tricotent effectivement en rond (ou en allers retours) sur aiguille circulaire, vous évitez ainsi notamment les coutures. N'hésitez pas à consultez nos vidéos pour apprendre à utiliser les aiguilles circulaires. Beaucoup hésitent et les adoptent finalement. Bon tricot !
28.01.2013 - 10:40
Bente skrifaði:
Så elegant, denne har jeg skyndt mig at tilføje til mine favoritter!
14.01.2013 - 09:21
Janneke skrifaði:
Heel mooi model, prachtige hals. Zou hem zelf wel wat korter maken. Maarverder: top!
06.01.2013 - 16:05
Diana Ritter skrifaði:
Das model gefällt außerordentlich gut
02.01.2013 - 20:06
J.Jaitnerová skrifaði:
Velmi hezké
30.12.2012 - 14:32
Meri skrifaði:
Tyylikäs yksinkertainen tunika
15.12.2012 - 07:38
Wahlgrenis skrifaði:
Ornella
14.12.2012 - 16:00
F Schilstra skrifaði:
Deze zit keurig!vooral ook bij de schouders!.mooi. inhet rood of zwart MET EEN GOUDDRAADJE AAN DE HALS ,dan heeft u een kerstjurkje!!
13.12.2012 - 13:43
Elisabetta skrifaði:
Eleganza della semplicità!
12.12.2012 - 14:11
Tessa#tessatunic |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð tunika úr DROPS Muskat. Stærð S - XXXL.
DROPS 148-10 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): * 1 umf slétt og 1 umf brugðið *, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚRTAKA 1 (á við um úrtöku á hliðum á fram- og bakstykki): Fækkað er um 1 l í hvorri hlið við prjónamerki í hvorri hlið á fram- og bakstykki (1. og 4. prjónamerki). Fækkið lykkjum á eftir prjónamerk þannig: (Prjónamerki), prjónið 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið næstu 2 l slétt saman, 1 l sl, (prjónamerki). ÚRTAKA 2 (á við um fram- og bakstykki): Fækkið um 2 l á fram- og bakstykki þannig: Eftir 2./5. prjónamerki: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = 1 l færri. Eftir 3./6. prjónamerki: Prjónið sl þar til 2 l eru eftir á undan 3./6. prjónamerki, prjónið næstu 2 l slétt saman = 1 l færri. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út um 1 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið sl þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir gat. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum við hvert prjónamerki: Prjónið sl þar til 5 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið næstu 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er á milli þessa 2 l), * takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir *, sláið 1 sinni uppá prjóninn, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 1 l færri og 1 uppsláttur hvoru megin við prjónamerki. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TUNIKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á prjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 212-228-244-264-288-312 l á hringprjóna nr 4,5 með Muskat. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – umf hringinn. Prjónið alls 6 umf með garðaprjón, prjónið síðan sléttprjón þar til stykkið mælist 4 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið nú 6 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið 1 prjónamerkið í byrjun umf (= 1. prjónamerki), 1 prjónamerki eftir 30-32-34-36-38-40 l (= 2. prjónamerki), 1 prjónamerki eftir 46-50-54-60-68-76 l (= 3. prjónamerki), 1 prjónamerki eftir 30-32-34-36-38-40 l (= 4. prjónamerki), 1 prjónamerki eftir 30-32-34-36-38-40 l (= 5. prjónamerki), 1 prjónamerki eftir 46-50-54-60-68-76 l (= 6. prjónamerki). Látið prjónamerkin fylgja áfram með stykkinu. Í næstu umf er fækkað um 1 l á hvoru megin við hvert prjónamerki í hliðum á fram- og bakstykki – SJÁ ÚRTAKA 1 og 2 l á fram- og bakstykki – SJÁ ÚRTAKA 2 = alls 8 l færri í umf. Endurtakið úrtöku með 3-3-3½-3½-4-4 cm milliblili 7 sinnum til viðbótar (alls 8 úrtökur) = 148-164-180-200-224-248 l á prjóni. Fjarlægið 4 prjónamerki á framst/bakst (2. , 3., 5., og 6. prjónamerki), það verður þá 1 prjónamerki eftir í hvorri hlið á fram- og bakstykki (74-82-90-100-112-124 l á framst/bakst). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm. Í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki – SJÁ ÚTAUKNING = 4 útauknar l í umf. Endurtakið útaukningu með 3 cm millibili 4 sinnum til viðbótar (alls 5 útaukningar) – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm er prjónað garðaprjón yfir allar l. Þegar útaukningu er lokið verða 168-184-200-220-244-268 l á prjóni ( 84-92-100-110-122-134 l á framst/bakst). Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm. Í næstu umf sem prjónuð er brugðið eru felldar af 4-5-6-7-8-9 l hvoru megin við hvert prjónamerki fyrir handveg (8-10-12-14-16-18 l færri í hvorri hlið) = 76-82-88-96-106-116 l eftir á framst/bakst. Klippið frá. LASKALÍNA: Prjónið nú búkinn fram og til baka þannig: Setjið fyrstu 38-41-44-48-53-58 l á prjóni á þráð (= vinstra framstykki), prjónið næstu 38-41-44-48-53-58 l (= hægra framstykki), fitjið upp 44-46-48-50-56-66 l fyrir ermi, prjónið næstu 76-82-88-96-106-116 l (= bakstykki), fitjið upp 44-46-48-50-56-66 l fyrir ermi, prjónið 38-41-44-48-53-58 l af þræði frá vinstra framstykki = 240-256-272-292-324-364 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í skiptinguna á milli framst/ermi/bakst/ermi/framst =alls 4 prjónamerki, látið þau fylgja með stykkinu. Prjónið nú 3 umf slétt (= 4 umf alls). Í næstu umf frá réttu byrjar LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan = alls 8 l færri í umf. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf 15-16-17-17-18-18 sinnum til viðbótar( alls 16-17-18-18-19-19 sinnum), síðan í annarri hverri umf alls 1-1-1-2-4-9 sinnum (alls 17-18-19-20-23-28 úrtökur) = 104-112-120-132-140-140 l á prjóni. Eftir síðustu úrtöku er prjónuð 1 umf slétt frá röngu. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 1 l sl * sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið næstu 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið með að slá 1 sinni uppá prjóninn og 1 l sl. Prjónið nú 3 umf slétt. Í næstu umf frá réttu er fellt af allar l. Stykkið mælist ca 67-69-71-73-76-80 cm. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant meðfram opi við miðju að framan með heklunál nr 4,5 þannig: Heklið frá réttu 1 kl í horni á vinstra framstykki, 1 ll, * 1 fl í 1. umf, hoppið yfir næstu umf *, endurtakið frá *-*(= 1 fl yfir 2 umf í garðaprjóni) meðfram kanti á vinstra og hægra framstykki – heklið 3 ll-umf fyrir tölur (með því að hekla ll í ca 3 cm) jafnt yfir á hægra framstykki, síðasta ll-umf á að vera ca 3 cm frá efstu brún í hálsmáli. Saumið tölur í vinstra framstykki, ca 1 cm inn frá miðju að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tessatunic eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 148-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.