Anita Waasdorp skrifaði:
In patroon 4 worden er wel steken bij gemaakt maar niet geminderd. ik heb nu meer steken dan aangegeven. Moet er in A4 niet geminderd worden of doe ik iets fout
23.01.2013 - 09:10DROPS Design svaraði:
Het klopt dat er 1 st meerder komt in A.4. Maar tegelijkertijd zou je extra minderen in A.6. Op deze manier zou het aantal st steeds hetzelfde blijven. Veel breiplezier.
23.01.2013 - 17:41
Catherine skrifaði:
Simple et raffinée à la fois ! Bravo !!!
18.01.2013 - 04:02
Denise skrifaði:
Elégante, raffinée - une splendeur! Bravo!
16.01.2013 - 16:55
R.Jeßberger skrifaði:
Namensvorschlag:Nebel
05.01.2013 - 16:49Marianne skrifaði:
Wow!!!!!
30.12.2012 - 16:26
Karin skrifaði:
Das Tuch ist wunderschön.
26.12.2012 - 14:44
Pia skrifaði:
Smuk og let stola.
21.12.2012 - 14:28
Jeanne skrifaði:
Steelt mijn hart
21.12.2012 - 09:35
Agnès skrifaði:
Luxueuse simplicité
18.12.2012 - 23:03
Flore skrifaði:
Si délicat
16.12.2012 - 19:44
Sweet cloud#sweetcloudshawl |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónað sjal úr DROPS Lace með gatamynstri
DROPS 146-24 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.9. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í 2 hlutum og saumað saman við miðju að aftan í lokin. SJAL: Fitjið laust upp 117 l á prjóna nr 3,5 með Lace. Prjónið (1. umf = rétta) þannig: Prjónið 2 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið mynstur A.1 yfir 4 l, prjónið mynstur A.2 yfir næstu 98 l (= A.2 er prjónað 7 sinnum), það eru nú 13 l eftir á prjóni. Prjónið mynstur A.3 yfir 11 l og prjónið 2 l garðaprjón = 16 l færri í frystu umf = 101 eftir á prjóni eftir A.1/A.2/A.3. Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 2 l garðaprjón, mynstur A.4 yfir 4 l, prjónið mynstur A.5 yfir næstu 84 l (= A.5 er prjónað 7 sinnum, nú eru 11 l eftir á prjóni. Prjónið mynstur A.6 yfir 9 l og prjónið 2 l garðaprjón. Haldið áfram að prjóna eftir mynstri A.4/A.5/A.6 þar til mynstrið hefur verið prjónað alls 5 sinnum á hæðina. Prjónið 4 umf slétt. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 2 l garðaprjón, prjónið mynstur A.7 yfir 2 l, prjónið mynstur A.8 yfir næstu 90 l (= A.8 er prjónað 15 sinnum), nú eru 7 l eftir á prjóni. Prjónið mynstur A.9 yfir 5 l og prjónið 2 l garðaprjón. Haldið áfram að prjóna eftir mynstri A.7/A.8/A.9 þar til stykkið mælist ca 79 cm stillið af eftir heila mynstureiningu af mynstri A.7/A.8/A.9 á hæðina. Prjónið 4 umf slétt yfir allar l og setjið l á þráð. Prjónið annað stykki á sama hátt. MYNSTUR: Saumið stykkin saman lykkju fyrir lykkju með lykkjuspori STREKKING: Leggið sjalið í volgt vatn þar til það er orðið blautt í gegn. Pressið varlega vatnið úr sjalinu – það má ekki vinda það. Sjalinu er nú rúllað inn í handklæði og pressað til þess að ná enn meira vatni úr sjalinu – sjalið á nú að vera aðeins rakt. Leggið sjalið á mottu eða dýnu – dragið það varlega út í rétta stærð og notið nálar til þess að festa það með. Festið nálarnar jafnt yfir í ystu lykkju í hvorri hlið á sjalinu. Dragið aðeins í uppfitjunarkantinn og festið 1 nál fyrir miðju í hverri úrtöku á hverri mynstureiningu svo að það myndist oddur. Látið sjalið þorna svona. Endurtakið þetta í hvert skipti sem sjalið er þvegið. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetcloudshawl eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 7 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.