Bianca Bünte skrifaði:
Hallo :) ich habe ein verständnisproblem. warum soll ich den faden abschneiden ? irgendwie komme ich nun nicht mehr klar. habe auf der rundstricknadel nun die 24 maschen ( mittig - nach 32 maschen und vor 32 maschen )hintere mitte ist der rundenanfang. habe immer ein markierungsfaden mitlauen lassen für den rundenanfang seit beginn.
26.10.2012 - 17:31DROPS Design svaraði:
Hallo Bianca, das wird so gemacht, damit die Mütze im Nacken etwas länger wird als vorne. Die hintere Mitte war der Rundenanfang, jetzt werden aber 3 Reihen in Hin- und Rückreihen gestrickt und dafür wird am Anfang der Reihe begonnen und nicht in der hinteren Mitte (dort enden die Runden). In der 4. Reihe werden dann auch die Maschen in der hinteren Mitte abgekettet und es bleiben dann noch die Maschen für die beiden Ohrenklappen. Gutes Gelingen!
29.10.2012 - 15:36
Mister Berry#misterberryset |
|
|
|
Prjónuð húfa fyrir börn úr 2 þráðum DROPS Fabel og hálsskjól úr DROPS Alaska.
DROPS Children 23-55 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Húfan er prjónuð ofan frá og niður. HÚFA: Fitjið upp 6-6-8 lykkjur jafnt yfir á 3 sokkaprjóna nr 5 með 1 þræði Big Fabel eða 2 þráðum Fabel, skiljið eftir þráð á enda ca 10 cm fyrir frágang. Prjónið 2 lykkjur í hverja lykkju út umferðina = 12-12-16 lykkjur. Skiptið yfir á 4 sokkaprjóna. Prjónið 1 umferð slétt, setjið 6-6-8 prjónamerki í stykkið með 2 lykkjur á milli hverra prjónamerkja. Prjónið síðan sléttprjón JAFNFRAMT í 1. umferð er aukið út með því að prjóna 2 lykkjur í sömu lykkju í fyrstu lykkju á eftir hverju prjónamerki (= 6-6-8 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu með 2-2-3 umferða millibili, 9-10-8 sinnum til viðbótar = 72-78-88 lykkjur (= 12-13-11 lykkjur á milli hverra prjónamerki). Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið síðan GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan, þar til stykkið mælist 12-13-13 cm frá síðustu útaukningu. Endið eftir 1 umferð brugðið. Næsta umferð er prjónuð þannig: 25-28-32 lykkjur slétt, fellið af næstu 21-23-24 lykkjur (= mitt að framan) og prjónið þær 26-27-32 lykkjur sem eftir eru slétt, byrjun á umferð = miðja að aftan. Klippið frá, héðan er nú prjónað fram og til baka yfir 51-55-64 lykkjur á prjóni – byrjið með 1 umferð slétt frá röngu. Í næstu umferð (= rétta) eru fyrstu 2 lykkjurnar prjónaðar slétt saman og 2 síðustu lykkjurnar prjónaðar slétt saman = 49-53-62 lykkjur eftir. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 16-17-21 lykkjur (= eyrnaleppur) og setjið þessar lykkjur á þráð, fellið af næstu 17-19-20 lykkjur (= mitt að aftan) og prjónið þær 16-17-21 lykkjur sem eftir eru (= eyrnaleppur). Setjið 1 prjónamerki. Prjónið síðan garðaprjón fram og til baka yfir eyrnalepp þar til eyrnleppurinn mælist ca 2-2-2,5 cm frá prjónamerki. Fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið með því að prjóna 2 lykkjur saman, endurtakið í 4. hverri umferð 2-2-3 sinnum til viðbótar og síðan í annarri hverri umferð 3-3-4 sinnum = 4-5-5 lykkjur eftir, eyrnaleppurinn mælist ca 7-7-8 cm. Fellið laust af og festið enda. Prjónið hinn eyrnaleppinn alveg eins. Notið nál til að þræða endann efst á húfu upp og niður í gegnum opið, herðið að og festið vel. DÚSKUR: Gerið 1 dúsk úr Big Fabel eða Fabel ca 8 cm að þvermáli. Festið á toppinn á húfunni. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fitjað er upp neðst niðri á framstykki og fellt er af neðst niðri á bakstykki, kraginn er prjónaðu á í lokinn. FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 38-41-44 lykkjur á hringprjón 5 með Alaska. Prjónið 4 umferðir garðaprjón, haldið áfram í sléttprjóni og 2 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 7-9-10 cm eru felldar af miðju 12-15-16 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. FYRRI HLUTI Á ÖXL: = 13-13-14 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 2 lykkjur garðaprjón við öxl – jafnframt eru lykkjum fækkað við hálsmál í byrjun á hverri umferð frá hálsi: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 6-6-7 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 11-13-15 cm er sett 1 prjónamerki (= mitt á öxl) – héðan er nú mælt! Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í hálsmáli, setjið síðan lykkjur á þráð. SEINNI HLUTI Á ÖXL: Prjónið á sama hátt og fyrri hluti. BAKSTYKKI: Setjið til baka lykkjur af annarri öxlinni á prjóninn, fitjið upp 22-25-26 lykkjur og setjið lykkjur af hinni öxlinni á prjóninn = 38-41-44 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og 2 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 10-12-14 cm eru prjónaðar 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, fellið síðan af. KRAGI: Prjónið upp ca 60 til 68 lykkjur í kringum hálsmál á sokkaprjóna 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt, haldið áfram með stroff með 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið. Þegar kraginn mælist 7-8-9 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #misterberryset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 23-55
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.