Wia skrifaði:
Schitterend vest.Jammer dat er geen foto van de achterkant bij zit.
05.06.2015 - 14:25
Ulrika Dukic skrifaði:
Underbar kofta. om man bara vill använda en tråd när man virkar, vilket garn kan ni rekommendera då?
01.03.2015 - 19:01DROPS Design svaraði:
Hej Ulrika. Du kan erstatte med 1 traad garn fra gruppe B. Se oversigt her Vi har her desvaerre ikke et garn med den flotte print som du har fra Delight.
03.03.2015 - 14:00
Ina Zeller-Dawen skrifaði:
Wie soll man die Jacke waschen? Für Delight und Fabel ist Maschinenwäsche (Woll- oder Feinwäsche) bei 40 °C empfohlen, für Kid Silk dagegen Handwäsche bei maximal 30 °C.
14.12.2014 - 14:17DROPS Design svaraði:
Sie waschen die Kleidungsstücke aus verschiedenen Garnen immer so, wie es das empfindlichste erlaubt - also in diesem Fall Kid-Silk. Waschen Sie die Jacke also vorsichtig von Hand, damit die Flauschigkeit von Kid-Silk nicht leidet.
15.12.2014 - 14:34Ena Hume skrifaði:
I am finding the section relating to the right and left front and collar instructions very confusing. Please supply me with either a clear diagram of how the collar should be done or clear instructions to crochet same. many thanks ena hume
15.09.2014 - 09:00DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Hume, you are free to ask here the part you don't understand, and feel free to contact the store where you bought your yarn for any further individual assistance. Happy crocheting!
15.09.2014 - 09:58
Antonella skrifaði:
Quello chenon capisco è la fine del girocollo dei due davanti (destro e sinistro). precisamente il bordo del collo dopo aver lavorato la misura necessaria e uguale a quella del dietro. Grazie Antonella
11.11.2013 - 15:04DROPS Design svaraði:
Buongiorno Antonella, quando i due davanti raggiungono la lunghezza del dietro, deve lavorare a gruppi di m.a sugli altri gruppi di m.a al centro davanti, tralasciando i gruppi di m.a sulle spalle e assicurandosi di avere lo stesso n° di gruppi di m.a sulla spalla davanti e dietro. Ci riscriva se ha ancora bisogno. Buon lavoro!
11.11.2013 - 16:13
Antonella skrifaði:
Si possono avere delle spiegazioni per la taglia m , degli schemi e delle foto anche del dietro più chiare? grazie
09.11.2013 - 20:58DROPS Design svaraði:
Buonasera Antonella, le foto dei modelli sono solo quelle presenti sul sito, e anche le spiegazioni sono molto dettagliate; se ci illustra meglio qual è il suo problema possiamo cercare di aiutarla, altrimenti può mandare un mail a italy@garnstudio.com spiegando il problema. Buon lavoro!
10.11.2013 - 18:09
Antonella skrifaði:
Purtroppo ho la lana ma non riesco a capire bene le spiegazioni e i disegni se qualcuno potesse rendermele più semplici ne sarei grata
09.11.2013 - 20:53DROPS Design svaraði:
Buonasera Antonella, le foto dei modelli sono solo quelle presenti sul sito, e anche le spiegazioni sono molto dettagliate; se ci illustra meglio qual è il suo problema possiamo cercare di aiutarla, altrimenti può mandare un mail a italy@garnstudio.com spiegando il problema. Buon lavoro!
10.11.2013 - 18:09
Anna Debellis skrifaði:
Gentilissima redazione il modello è bello ma non è spiegato bene. Si può avere una foto di spalle? grazie !
30.10.2012 - 09:33DROPS Design svaraði:
Chiederò se è possibile. Che cos'è che non è chiaro? Magari riesco a spiegare...
03.11.2012 - 01:32Adriana Goren skrifaði:
Me encanto!!! gracias
04.10.2012 - 12:08Aurora Fernandez skrifaði:
No me queda claro el cuello. El delantero va recto hasta los hombros?
11.09.2012 - 00:27DROPS Design svaraði:
Hola Aurora, sí, va recto hasta los hombros. Al pónerselo se forma un pequeño cuello.
07.12.2012 - 07:46
Arabica#arabicacardigan |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Delight, DROPS Fabel og DROPS Kid-Silk með ömmuferningum. Stærð S - XXXL.
DROPS 143-22 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- RENDUR Á FRAM- OG BAKSTYKKI: DE = Delight, F = Fabel, KS = Kid-Silk UMFERÐ 1: 1 þráður brúnn F + 1 þráður dökk brúnn KS UMFERÐ 2: 1 þráður DE + 1 þráður dökk brúnn KS UMFERÐ 3: 1 þráður DE + 1 þráður ljós beige KS UMFERÐ 4: 1 þráður brúnn F + 1 þráður dökk brúnn KS UMFERÐ 5-6: 1 þráður DE + 1 þráður dökk brúnn KS UMFERÐ 7: 1 þráður svartur F + 1 þráður dökk brúnn KS Endurtakið umf 1-7. RENDUR Á ERMI: UMFERÐ 1: 1 þráður DE + 1 þráður ljós beige KS UMFERÐ 2-3: 1 þráður DE + 1 þráður dökk brúnn KS UMFERÐ 4: 1 þráður svartur + 1 þráður dökk brúnn KS Endurtakið umf 1-4. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Heklaðir eru 2 stórir ömmuferningar fyrir framstykki sem síðan eru lengdir að bakstykki. Heklaðið eru 4 ömmuferningar fyrir ermar sem síðan eru lengdir áður en þeir eru heklaðir saman 2 og 2 á upphandlegg. Að lokum er berustykkið heklað uppúr með st-hópum fram og til baka áður en öll stykkin eru hekluð saman. HÆGRA FRAMSTYKKI + BAKSTYKKI: Heklið 6 ll með heklunál nr 4 með 1 þræði í litnum brúnn Fabel + 1 þræði í litnum dökk brúnn Kid Silk (= 2 þræðir) og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (= 1 st), 2 st um hringinn, 3 ll, 3 st um hringinn, 3 ll *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf, snúið við (= 4 st-hópar með 3 ll á milli hverra). Heklið nú RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan JAFNFRAMT þar sem haldið er áfram hringinn eftir útskýringum að neðan. UMFERÐ 2: Heklið 3 ll (= 1 st), 2 st um fyrsta ll-boga, 3 ll, 3 st um saman ll-boga, * 1 ll, 3 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið með 1 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf, snúð við. UMFERÐ 3: Heklið 3 ll (= 1 st), 2 st um fyrsta ll-boga, 1 ll, * 3 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st-hópar um sama ll-boga, 1 ll, 3 st um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 3 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga, 1 ll og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf, snúið við. Haldið svona áfram hringinn fyrir hverja umf sem er hekluð verður 1 st-hóp fleiri á milli horna), þar til ferningurinn mælist ca 36-38-38-40-40-42 cm meðfram hvorri hlið (= ca 18-19-19-20-20-21 umf hringinn). Klippið frá og festið enda. Nú er ferningurinn lengdur og heklaðir eru st-hópar fram og til baka meðfram annarri hlið ferningsins þannig (RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI halda áfram eins og áður – passið uppá að þegar 1 umf er eftir til loka er síðasta umf hekluð með 1 þræði í litnum svartur Fabel + 1 þræði í litnum dökk brúnn Kid-Silk): UMFERÐ 1: Heklið 1 kl um ll-boga í hornið á ferningnum, 4 ll (= 1 st + 1 ll), * 3 st um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* fram að síðasta ll-boga (= horn) og endið með 3 st um ll-boga í horni, snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 4 ll (= 1 st + 1 ll), * 3 st um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* fram að síðasta ll-boga og endið með 3 st um síðasta ll-boga. Endurtakið umf 2 þar til ferningurinn mælist ca 24-27-31-36-42-47 cm frá miðju og út (þ.e.a.s. 42-46-50-56-62-68 cm frá frá hlið að hlið mælið þar sem stykkið er breiðast). Klippið frá og festið enda. VINSTRA FRAMSTYKKI + BAKSTYKKI: Heklið á sama hátt og hægra framstykki. Heklið ferningana 2 saman við miðju að aftan þannig að umf sem heklaðar voru fram og til baka mætast – sjá mynsturteikningu A.1. Heklið með 1 þræði með svartur Fabel + 1 þræði með dökk brúnn Kid-Silk þannig: Heklið 1 fl í síðasta st í horninu á öðrum ferningnum, 1 ll, 1 fl um ll-boga í horninu á hinum ferningnum, * 3 ll, 1 fl um ll-boga á fyrri ferningnum, 1 ll, 1 fl um ll-boga á seinni ferningnum *, endurtakið frá *-* og endið með 3 ll, 1 fl í st á fyrri ferningnum, 1 ll og 1 kl á seinni ferningnum. ERMI: Byrjið á sama hátt og hægra framstykki, nema frá og með umf 2 eru heklaðar RENDUR Á ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar 1 umf er eftir að ferningnum mælist 18-18-20-20-22-22 cm er síðasta umf hekluð með 1 þræði í litnum svartur Fabel + 1 þræði í litnum dökk brúnn Kid-Silk. Heklið nú fram og til baka meðfram annarri hlið á ferningnum á sama hátt eins og á bakstykki (rendur halda áfram eins og áður - stillið af þannig að 1 umf er eftir til loka og síðasta umf er hekluð með 1 þræði í litnum svartur Fabel + 1 þræði í litnum dökk brúnn Kid-Silk). Þegar ferningurinn mælist 24-24-26-26-28-28 cm þar sem hann er breiðastur, klippið frá og festið enda. Ermi að framan er nú tilbúin. Heklið nú annan hluta eins (= aftari hluti á ermi). Heklið nú ferningana 2 saman á upphandlegg eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.2 – heklið þá saman á sama hátt og stykkið var heklað saman við miðju að aftan. Heklið 2 ferninga með lengingu alveg eins og hin ermin og heklið þá saman á upphandlegg eins og útskýrt er að ofan. BAKSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki við miðju á öðru framstykkinu svo að það verða 21-23-25-28-31-34 cm frá miðju að aftan að prjónamerki og 21-23-25-28-31-34 cm frá prjónamerki að miðju að framan – prjónamerkið er sett á milli 2 st-hópa. Setjið prjónamerki á sama stað á hitt framstykkið. Nú eru ca 42-46-50-56-62-68 cm á milli 2 prjónamerkja á bakstykki og ca 21-23-25-28-31-34 st-hópar á milli prjónamerka. Heklið nú st-hópa fram og til baka á milli 2 prjónamerkja með 1 þræði af Delight + 1 þræði í litnum dökk brúnn Kid-Silk (= 2 þræðir – ATH: Heklað er með þessum 2 þráðum til loka) þannig: Heklið 1 kl um ll-boga milli 2 st-hópa, 4 ll (= 1 st + 1 ll), * 3 st um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* og endið með 3 st um ll-boga við prjónamerkið, snúið við. Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 4 ll (= 1 st + l ll), * 3 st um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* og endið með 3 st um síðasta ll-boga, snúið við. Heklið svona fram og til baka þar til 2 umf eru eftir þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm frá neðri kanti og upp (þ.e.a.s. stykkið mælist ca 22-22-24-24-26-26 cm þar sem bakstykki byrjar). Nú eru heklaðar 2 umf með st-hópum, fram og til baka yfir síðustu 16-18-20-22-24-26 cm frá annarri öxlinni (þ.e.a.s. ca 8-9-10-11-12-13 st-hópa). Klippið frá og heklið 2 umf með st-hópum yfir síðustu 16-18-20-22-24-26 cm frá hinni öxlinni (passið uppá að heklaðir eru jafnmargir st-hópar á báðum öxlum = ca 5-5-5-6-7-8 st-hópar fyrir miðju að aftan við hnakka). Stykkið mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og að neðri kanti og 24-24-26-26-28-28 cm frá öxl og niður þar sem bakstykkið byrjar. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið st-hópa á sama hátt og fram og til baka yfir hægra framstykki, frá miðju að framan og fram að prjónamerki í hlið með 1 þræði af Delight + 1 þræði í litnum dökk brúnn Kid-Silk (= 2 þræðir – ATH: Heklað er með þessum 2 þráðum til loka). Þegar framstykkið er jafn langt og bakstykkið, er heklaður kantur við háls með st-hópum fram og til baka yfir þá st-hópa sem eftir eru við miðju að framan (ekki er heklað yfir st-hópa á öxl og hafið jafn marga st-hópa á öxl að framan og að aftan). Heklið fram og til baka þar til kanturinn við hálsinn mælist ca 7-7-7-8-9-10 cm, klippið frá og festið enda. VINSTRA FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. FRÁGANGUR: Heklið axlir saman eins og hin stykkin voru hekluð saman. Saumið kant við hálsmál að aftan í hnakka án þess að sauma hann saman við miðju að aftan (svo að það verði opin klauf við miðju að aftan). Heklið ermar í við handveg og heklið saman opið undir ermum. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant neðan á báðum ermum og í kringum allt opið á peysunni með 1 þræði af svartur Fabel + 1 þræði í litnum dökk brúnn Kid-Silk þannig: UMFERÐ 1: Byrjið innst í horninu á kanti við hálsmál aftan við hnakka, heklið að framstykki, utan um alla peysuna og að horni á kanti við hálsmál aftan við hnakka í hinni hliðinni, með 1 þræði í litnum svartur Fabel + 1 þræði í litnum dökk brúnn Kid-Silk þannig: Heklið 1 kl í síðustu l í horni á kanti við hálsmál, 4 ll (= 1 st + 1 ll), heklið nú 3 st um hverja ll eða ll-boga og 1 ll milli hverra st-hópa, endið með 1 st í síðustu l yst í horninu á kanti við háls. UMFERÐ 2: Heklið í kringum opið á allri peysunni (einnig meðfram vikinu aftan í hálsmáli): Heklið 1 kl í fyrstu l, * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* og endið með 4 ll og 1 kl í kl í byrjun umf. Klippið frá og festið enda. Heklið 1 lykkju/hneslu fyrir hnappagat ca 30-30-32-32-34-34 cm frá öxl og niður á vinstra framstykki (mátið peysuna til þess að ná fram réttri staðsetningu). Heklið með 1 þræði í litnum svartur Fabel + 1 þræði Kid-Silk þannig: Heklið 1 fl í fyrstu l, 7 ll, 1 fl í sömu l. Klippið frá og festið enda. Saumið tölu í hægra framstykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #arabicacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.