Millerin skrifaði:
Qu'appelez vous tricoter un rapport au dessus de 4 m....
12.07.2012 - 20:13DROPS Design svaraði:
Bonjour, 1 rapport = 1 répétition du diagramme. Bon tricot !
13.07.2012 - 09:52
Margarida Farinha skrifaði:
Me encanta e lo frio que estara no inverno me fara mui quentinha
09.07.2012 - 15:01
Maria skrifaði:
Me encanta y me gustaría mucho tener el patrón para poder hacerlo
07.07.2012 - 17:52
Ilaria skrifaði:
Spero non sia troppo complicato perché è bellissimo!
30.06.2012 - 16:07
Inger skrifaði:
Morsom modell.
27.06.2012 - 10:42
Blavette skrifaði:
Tres beau modele mais lors des explications pourriez vous les donner avec des aiguilles à pointes (non circulaire). Le motif derriere semble assez difficile mais donne une oiginalite au modele . Felicitations
24.06.2012 - 15:23
Bente skrifaði:
Kanten i rib er ikke særlig interessant eller elegant. En anden kant ville være pænere på en ellers fin model.
23.06.2012 - 10:17Cristina skrifaði:
Me encanta esta prenda solo que no pude bajar el patron. felicidades por crear tantas prendas fabulosas me gusta mucho
23.06.2012 - 02:00
Heike skrifaði:
Die ist ja auch toll, ich stehe auf Kreisjacken
21.06.2012 - 14:28
Stefania skrifaði:
Favoloso....non vedo l'ora di realizzarlo....
21.06.2012 - 12:50
Warm Circle#warmcirclejacket |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Prjónuð hringpeysa með gatamynstri og stroffi úr DROPS Alaska. Stærð S – XXXL.
DROPS 140-35 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð í hring frá miðju að aftan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 7 l með Alaska og skiptið þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 6. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT eru prjónaðar 2 l sl í hverja l = 14 l. Setjið 7 prjónamerki í stykkið með 2 l millibili. 1. prjónamerki = byrjun á umf = aftan í hálsmáli. Haldið áfram með sl, í næstu umf eru prjónaðar 2 l í aðra hverja l = 21 l. Í næstu umf eru prjónaðar 2 l í 3. hverja l = 28 l. Prjónið eftir A.1, prjónið 1 mynstureiningu yfir þær 4 l á milli allra prjónamerkja. Eftir A.1 er haldið áfram með mynstur með 7 útaukningum í annarri hverri umf, auknu l eru prjónaðar jafn óðum inn í mynstrið. Skiptið yfir á hringprjóna nr 6 þegar þess er þörf. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm frá miðju eru prjónaðar 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir allar l (nú eru ca 31-33-35-37-39-41 l á milli allra prjónamerkja = 217-231-245-259-273-287 l alls). Prjónið sl fram að örðu prjónamerki. Fellið af allar l á milli annars og þriðja prjónamerkis (= ca 31-33-35-37-39-41 l). Prjónið nú fram að 6. prjónamerki. Fellið af allar l fram að 7. prjónamerki (= ca 31-33-35-37-39-41 l). Prjónið nú að fyrsta prjónamerki. Prjónið 1 umf brugðið, JAFNFRAMT eru fitjaðar upp jafn margar l eins og fellt var af fyrir l fyrir handveg. Prjónið 2 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 7. Prjónið nú sléttprjón yfir allar l, JAFNFRAMT í annarri hverri umf er aukið út 1 l við hvert prjónamerki – aukið út hægra og vinstra megin við prjónamerki til skiptis (= 7 útaukningar í annarri hverri umf) – í næstu umf eru auknar lykkjur prjónaðar snúnar sl, svo ekki myndist gat. Haldið áfram í sléttprjóni og útaukningar þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá handveg (nú eiga að vera ca 49-52-55-58-61-64 l á milli allra prjónamerkja og ca 343-364-385-406-427-448 l alls). Skiptið aftur yfir á hringprjóna nr 6, prjónið 1 umf slétt og jafnið út lykkjufjöldann svo að hann verði deilanlegur með 6. Prjónið nú stroff 3 l sl, 3 l br. Þegar stroffið mælist 3 cm er aukið út allar br einingarnar að 4 l br, þegar stroffið mælist 6 cm er aukið út allar br einingarnar til 5 l br. Haldið áfram með stroff 3 l sl, 5 l br þar til stroffið mælist 10 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Stykkið mælist alls 57-59-61-63-65-67 cm frá miðju. ERMI: Prjónið upp 62-66-70-74-78-82 l kringum op við handveg á stutta hringprjóna nr 7 og prjónið sléttprjón hringinn þar til ermin mælist 15 cm. Skiptið yfir á stutta hringprjóna nr 6, prjónið 1 umf sléttprjón og aukið út um 16-18-20-22-24-26 l jafnt yfir = 78-84-90-96-102-108 l. Haldið áfram með stroff 3 l sl, 3 l br þar til ermin mælist 30-31-32-33-34-35 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #warmcirclejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 140-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.