Francesca skrifaði:
Buongiorno! Per prima cosa devo ringraziarvi, i vostri modelli sono bellissimi e gli schemi sempre molto chiari. Purtroppo non mi trovo molto bene a lavorare con il ferro circolare e già per un cappello ho modificato il vostro schema adattandolo ai due ferri. Posso fare lo stesso con il maglione direi, dimezzando semplicemente i punti? grazie. Nel caso vi interessasse posso scrivere la spiegazione per due ferri e mandarvela...
25.09.2013 - 18:29DROPS Design svaraði:
Buongiorno Francesca, se si trova meglio può lavorare il modello con i ferri dritti, stando attenta al n° di m. per il davanti e il dietro e alle diminuzioni e intrecci per gli scalfi. Le consigliamo però di riprovare con i ferri circolari, sono molto comodi, e in questo caso consentono di lavorare il capo senza dover cucire i pezzi alla fine. Buon lavoro!!!
26.09.2013 - 16:22
Roxanne skrifaði:
Beste Drops, Bedankt dat jullie dit geweldige patroon gratis ter beschikking stellen. Ik brei de trui in M Mijn lerares wilde mij helpen maar ij vond het niet logisch dat je na het breien van de boordsteek met 32 moet minderen, maar dit klopt toch wel? (de trui word zo klein) Ik wacht af op uw antwoord Alvast heel erg bedankt groetjes!
11.01.2013 - 10:34DROPS Design svaraði:
Je moet inderdaad minderen naar de boordsteek. Boordsteek trekt zich meer samen dan tricotst en de trui wordt zo mooi recht. Zou je doorgaan met hetzelfde aantal st dan zou het gedeelte in tricotst wijder worden dan de boord.
11.01.2013 - 13:07
Nicole skrifaði:
Comment faire vos modèles sur 2 aiguilles - je ne tricote pas en circullaire... merci beaucoup
12.12.2012 - 16:16DROPS Design svaraði:
Bonjour Nicole, ce pull se tricote en rond jusqu'aux emmanchures. N'hésitez pas à consulter nos vidéos pour apprendre à tricoter en rond, votre détaillant DROPS peut également vous aider. Bon tricot !
13.12.2012 - 09:23
Mercedes skrifaði:
Hola, mi pregunta es como se hechan los puntos en el cuello? porque al hecharlos en medio pierdo el resorte
12.12.2012 - 00:19DROPS Design svaraði:
Hola Mercedes, te puede ser útil referirte a nuestro video "Levantar puntos a lo largo de una orilla". Después, tejer 1 hilera de derecho por el LR y, al mismo tiempo, distribuir aum para ajustar a 123-129-138-144-150 pts. Continuar en resorte (por el LD) como se indica.
15.12.2012 - 23:52
Marion skrifaði:
Wunderschön finde ich diese Schalkragen. Wünschte mir auch für Kinder so eine tolle Anleitung.
19.07.2012 - 15:05
Greppbart skrifaði:
Hur mycket garn går det åt till de olika storlekarna?
20.02.2012 - 19:10DROPS Design svaraði:
Hej, om du tittar på norska mönstret så ser du garnmängden. Vi lägger ut det så snart vi kan på den svenska också!
21.02.2012 - 15:01
Seaman#seamansweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Alaska eða DROPS Big Merino með mynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL
DROPS Extra 0-812 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 til M.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 171-201-231-258-288 lykkjur á hringprjón 4 með litnum ljós brúnn DROPS Alaska eða í litnum mocca DROPS Big Merino. Prjónið stroff = 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið í 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 27-33-39-42-48 lykkjur jafnt yfir = 144-168-192-216-240 lykkjur. Prjónið M.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 25-27-30-33-35 cm – stillið af að prjónaðar séu minnst 2 umferðir á eftir 1 umferð með „doppum“ – prjónið M.2. Eftir M.2 eru prjónaðar 3 umferðir með litnum ljós brúnn / mocca áður en prjónaðar eru 23 umferðir með M.1. Eftir M.1 er prjónað M.3, síðan er prjónað með litnum ljós brúnn / mocca að loka máli. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 48-49-50-52-53 cm prjónið næstu umferð þannig: Fellið af 3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg, prjónið 22-27-32-37-42 lykkjur, fellið af 23-23-25-25-27 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið 22-27-32-37-42 lykkjur, fellið af 5-7-7-9-9 lykkjur fyrir handveg, prjónið 67-77-89-99-111 lykkjur (= bakstykki) og fellið af 2-3-3-4-4 síðustu lykkjur fyrir handveg. Hvort stykki er nú prjónað fyrir sig. BAKSTYKKI: = 67-77-89-99-111 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið: 3 lykkjur 0-0-1-1-2 sinnum, 2 lykkjur 0-1-1-2-3 sinnum og 1 lykkja 0-2-3-3-3 sinnum = 67-69-73-79-81 lykkjur eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 66-68-71-74-76 cm, fellið af miðju 21-21-23-23-25 lykkjur fyrir hálsmáli. Prjónið hvora öxl til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 22-23-24-27-27 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 68-70-73-76-78 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 22-27-32-37-42 lykkjur. Fellið síðan af fyrir handveg í hlið á sama hátt og á bakstykki = 22-23-24-27-27 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist ca 68-70-73-76-78 cm – ATH: Fellið af í sömu umferð í mynstri og á bakstykki: VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema gagnstætt. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á hringprjóna eftir þörf. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM! Fitjið upp 51-54-57-57-57 lykkjur á sokkaprjón 4 með litnum ljós brúnn. Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 10-11-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 41-43-45-45-45 lykkjur. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi) og eitt merki í miðjulykkju í umferð (= mitt undir ermi). Prjónið M.1 – lykkja með ör í mynsturteikningu á að passa við lykkju með merki mitt á ermi – teljið út að hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7-7-9-9-10 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merki mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu með 5-4½-3-2½-2 cm millibili alls 10-11-14-16-18 sinnum = 61-65-73-77-81 lykkjur – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 47 cm í öllum stærðum – stillið af að prjónaða hafa verið minnst 2 umferðir með „doppum“ – prjónið M.2 að loka máli (lykkja með ör í mynsturteikningu á að passa við lykkju með merki mitt á ermi – teljið út að hlið). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 56-54-52-50-48 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af 5-7-7-9-9 lykkjur mitt undir ermi (þ.e.a.s. lykkja með merki í og 2-3-3-4-4 lykkjur hvoru megin við hana). Prjónið síðan stykkið til loka fram og til baka – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið: 2 lykkjur 2-3-3-3-4 sinnum og 1 lykkja 1-2-3-4-5 sinnum. Síðan eru felldar af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 61-61-61-61-61 cm, fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist ca 62 cm í öllum stærðum. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana. SJALKRAGI: Byrjið mitt framan í vinstri hlið á affellingu í hálsmáli. Prjónið upp á hringprjón 4 með litnum ljós brúnn: 34 til 42 lykkjur upp að öxl, síðan eru prjónaðar upp 24 til 28 lykkjur aftan í hnakka og í lokin 34 til 42 lykkjur niður meðfram vinstri hlið í affellingu í hálsmáli = 92 til 112 lykkjur. (Lykkjur eru ekki prjónaðar upp þar sem lykkjur voru felldar af að framan í hálsmáli). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 123-129-138-144-150 lykkjur. Prjónið síðan stroff þannig (frá réttu): 1 kantlykkja sem er prjónuð slétt í öllum umferðum, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju sem prjónuð er slétt í öllum umferðum. Haldið svona áfram þar til sjalkraginn mælist ca 6 cm. Nú er aukið út um 1 lykkju í hverja af miðju 12 sléttu eininganna, séð frá réttu (= aftan í hnakka) = 135-141-150-156-162 lykkjur. Prjónið áfram þar til kraginn mælist ca 11-11-13-13-15 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Leggið sjalkragann tvöfaldan (hægri hlið yfir vinstri hlið) neðst niðri í opi á hálsmáli og saumið fallega niður við hálsmál í gegnum bæði lögin. Saumið ermar í. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #seamansweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-812
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.