DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Fabel yarn
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 682.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1364.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
DROPS Baby 21-28

#stripystripespants

DROPS Design: Mynstur nr FA-032-by
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
100-100-100 (150-200) gr litur nr 901, candy

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 682.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1364.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 3 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 l sl, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Skálmarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, síðan eru skálmarnar settar á sama hringprjón og prjónað er í hring til loka.

SKÁLM:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna neðanfrá og upp.
Fitjið LAUST upp 52-56-60 (64-68) l á sokkaprjóna nr 2,5 með Fabel. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = innanverðu á skálm.
Prjónið 1 umf slétt, prjónið nú stroff = 2 l sl, 2 l br hringinn á sokkaprjóna í 5-5-6-(6-6) cm.
Prjónið nú sléttprjón. JAFNFRAMT eftir 2 cm sléttprjón er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 3-4-5 (8-12) umf millibili alls 10-11-10 (9-8) sinnum = 72-78-80- (82-84) l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist ca 16-19-22 (27-33) cm (passið uppá að síðasta útaukningin sé búin) skiptist stykkið við innanverða skálmina og stykkið er prjónað til loka fram og til baka (þetta er gert til þess að það sé auðveldara að setja skálmarnar á sama hringprjón síðar). Fitjið upp 1 nýja l í hvorri hlið fyrir saum = 74-80-82 (84-86) l. Þegar stykkið mælist 18-21-24 (29-35) cm fellið af 3 l í byrjun á 2 næstu umf með byrjun frá réttu = 68-74-76 (78-80) l.
Geymið stykkið og prjónið hina skálmina á sama hátt.

BUXUR:
Setjið skálmarnar á sama hringprjón nr 2,5 = 136-148-152 (156-160) l – umf byrjar = miðja að aftan. Setjið 1 prjónamerki við miðju að framan. Prjónið nú sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki við miðju að framan – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 5-8-7 (6-5) sinnum = 126-132-138 (144-150) l. Þegar stykkið mælist 32-38-42 (48-55) cm prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út að 124-132-140 (144-152) l. Nú er prjónuð upphækkun frá miðju að aftan: Prjónið 12 l frá byrjun umf, snúið við (til þess að koma í veg fyrir göt takið fyrstu l óprjónaða þegar prjónað er til baka og herðið aðeins á þræði). Prjónið 24 l og snúið við, prjónið 36 l og snúið við, prjónið 48 l og snúið við. Haldið áfram svona með því að prjóna 12 l fleiri á milli skipta áður en snúið er við 6-6-6 (8-8) sinnum til viðbótar. Haldið nú áfram með stroff – 2 l sl, 2 l br. Þegar stykkið mælist 40-46-50 (56-63) cm að framan, fellið af.
Saumið saman op á milli skálma og þræðið e.t.v. band eða teygju efst í stroffið.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 22.08.2016
Nýtt efnismagn: Efni: DROPS FABEL frá Garnstudio 100-100-100 (150-200) gr nr 901, candy

Mynstur

Diagram measurements for DROPS Baby 21-28
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #stripystripespants eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (36)

country flag Regina skrifaði:

Ich brauche damit die angegebene Maschenprobe stimmt (26Mx34R) 4,0 Stricknadeln. Kann das sein?

29.09.2014 - 14:12

DROPS Design svaraði:

Das ist allerdings ein recht großer Unterschied zur angegebenen 2,5er-Nadel, das hieße, dass Sie extrem fest stricken. Fertigen Sie sicherheitshalber die Maschenprobe noch einmal großzügig bemessen an, waschen Sie sie und messen Sie die 10 cm nach dem Trocknen ab.

30.09.2014 - 13:15

country flag Mariken skrifaði:

Goedenmiddag, een leuk patroon als kraamkadootje! Ik ben bijna klaar en ik word verrast door de opmerking "haal het elastiek erdoor". Bij het materiaal wordt dit niet vermeld. Ik heb niet eerder iets gemaakt waar elastiek bij nodig is. Dus mijn vraag is: hoe dik, hoe lang, wat voor soort elastiek kan ik hier het beste voor gebruiken? Bedankt voor alle mooie patronen waar we van mogen genieten en gebruik maken!

25.06.2014 - 15:34

DROPS Design svaraði:

Hoi Mariken. Ik heb het patroon gekeken en ik zie dat de elastiek onder materiaal niet was toegevoegd op het Nederlandse patroon. Het is nu gedaan. De lengte staat er nu ook vermeld en de type kan je gewoon vragen bij jouw handwerkwinkel. Excuses voor het foutje en bedankt voor het melden.

25.06.2014 - 16:57

country flag Undrade skrifaði:

Det svenska mönstret säger "öka med 3/4/5 varvs mellanrum", det betyder ju vart 4/5/6 varv. På andra språk står det "öka vart 3/4/5 varv". Hur ska det vara?

03.05.2014 - 04:20

DROPS Design svaraði:

Du ökar på var 3/4/5 varv! Lycka till!

07.05.2014 - 10:40

country flag Johanna skrifaði:

" nach 16 cm die Arbeit auf der Innenseite teilen und hin und zurück stricken" --> was genau meint man mit Arbeit auf der Innenseite teilen, wie genau aufteilen? Die Hälfte von den ganzen Maschen oder die Maschen teilen wo jetzt auf den zwei inneren Nadeln liegen? Danke schon im voraus.

10.03.2013 - 10:52

DROPS Design svaraði:

Liebe Johanna, dies bedeutet, dass an dieser Stelle die Runde geöffnet wird, also an der Innenseite des Beins. Also ab dort wird nun in Hin- und Rück-R gestrickt.

12.03.2013 - 12:03

country flag Reidun skrifaði:

Eg trekker tilbake forrige kommentar, eg såg ikkje at det skal fellast bare framme, eg har felt både framme og bak

09.01.2013 - 12:49

country flag Reidun skrifaði:

Etter at beina er sett saman, står det at ein skal felle til saman 8 g (størrelse 6/9), men det blir feil. Om ein skal gå frå 148 til 132 masker, er det nok med fire fellingar.

09.01.2013 - 12:39

country flag Mathilde skrifaði:

Hallo, nochmals zum Rückenteil: 12 hin, 24 her, 36 hin etc.... . "So weiterfahren und immer 12 M mehr dazustricken und 6-6-6 (8-8) Mal wiederholen." Wann ist eines dieser Male vorbei?

28.11.2012 - 20:23

DROPS Design svaraði:

Liebe Mathilde Immer wenn Sie die Arbeit wenden (nach jeweils 12 M mehr), ist "ein Mal vorbei". Das erste Mal nach 12 M.

28.11.2012 - 20:38

country flag Mathilde skrifaði:

Hallo, um den Rückenteil der Hose zu stricken, wird ja hin- und hergestrickt, und dabei immer 12 Maschen mehr mitgestrickt. Es steht dieses 6-Mal wiederholen. Wann ist 1-Mal vorbei? Wenn ich Mitte vorne angekommen bin? Wenn ich einmal ganz herum bin? Vielen Dank.

25.11.2012 - 17:31

DROPS Design svaraði:

Hallo Mathlide, als 1. Mal zählen die ersten 12 M und dann wenden. Gutes Gelingen!

26.11.2012 - 11:18

country flag Sabrina skrifaði:

Was heißt 6Mal wiederholen beim Rückenteil genau? 6Reihen Hin und Rück zusammen, also über 12 Reihen, oder 6Reihen Hin und Rück einzeln?

17.10.2012 - 14:22

DROPS Design svaraði:

Hallo Sabrina, we wird in jeder R gewendet, also in Hin- und Rück-R. Nach den 48 M noch 6 x bei der kleinsten Grösse.

19.10.2012 - 11:51

country flag Sabrina skrifaði:

Ich verstehe nicht ganz wie man das Ende des Beines stricken soll. Heißt "die nächsten 2 Runden je 3M. abketten", dass ich einmal rechts (Hinreihe) und einmal links (Rückreihe) abketten soll. Oder 2mal rechts? Es wird ja nicht mehr in Runden gestrickt, sondern hin und zurück.

07.10.2012 - 12:10

DROPS Design svaraði:

Liebe Sabrina, ja das muss Reihen heissen, nicht Runden. das erste Abketten ist in der Hin-R, das 2. in der Rück-R. Ich habe die Anleitung angepasst. Gutes Gelingen!

08.10.2012 - 09:05