Ulla skrifaði:
Det står: “ Fortsæt med rib over de 26-26-26-30-30 m midt på foden som før og glatstrik over de resterende m” Her er der kun 5 maske angivelser? Til de 9 forskellige størrelser, hvorfor? Jeg strikker str 20/21, hvor mange ribmasker skal jeg strikke over til den str?
13.04.2025 - 18:09DROPS Design svaraði:
Hej Ulla, det skal være 22 i din størrelse - (22-22-22) 26-26-26 (26-30-30) m og det er rettet i opskriften - tak for info :)
24.04.2025 - 15:05
Nancy Adams skrifaði:
Thx
04.05.2024 - 01:07
Laura skrifaði:
Hi! What is the size of the socks in the picture?
22.03.2024 - 19:35DROPS Design svaraði:
Dear Laura, we don't have information on the size of the socks in the photo, since they may vary depending on the child who modelled for the pictures. You can see the measurements for each size in the Materials section in the upper part of the pattern. Happy knitting!
24.03.2024 - 23:40
Heidi skrifaði:
Om jeg skal strikke disse i glattstrikk over foten, hvor mange masker bør jeg ha over foten, størrelse 26/28?
15.12.2013 - 10:08DROPS Design svaraði:
Hei Heidi. Vil du strikke disse i glatstrik, da aendres strikkefastheden. Saa strik först en pröve og se hvor mange flere masker du har naar du strikker glatstrik i stedet for rib.
16.12.2013 - 16:38
Heidi skrifaði:
Må jeg gjøre om på maskeantallet for å strikke hele sokken i glattstrikk over foten, ikke fra starten ved skaftet, hva er maskeantallet for det? Takk
14.12.2013 - 12:55DROPS Design svaraði:
Hei Heidi. Se mit svar herover. Vi kan desvaerre ikke hjaelpe dig med individuelle aendringer, men strik en pröve og se om det er nödvendigt med en aendring i maske antallet. Henvend dig evt ogsaa til din DROPS butik for mere hjaelp ved dette.
16.12.2013 - 16:39
Pitter Patter#pitterpattersocks |
|
|
|
Prjónaðir sokkar í stroffprjóni úr DROPS Fabel. Stærð 15 - 37.
DROPS Children 22-40 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til (5-5-6) 6-6-7 (7-7-8) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til (5-5-6) 6-6-7 (7-7-8) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til (4-4-5) 5-5-6 (6-6-7) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til (4-4-5) 5-5-6 (6-6-7) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til (10-10-12) 12-12-14 (14-14-16) lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki á fæti og á undan prjónamerki á tá þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki á fæti og á eftir prjónamerki á tá þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjuboga). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKAR: Fitjið upp (40-40-44) 48-48-52 (52-56-60) lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með Fabel. Prjónið stroff = 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í (7-8-9) 10-11-12 (13-14-16) cm. Haldið eftir fyrstu (18-18-22) 22-22-26 (26-26-30) lykkjum á prjóni fyrir hæl, aðrar (22-22-22) 26-26-26 (26-30-30) lykkjur eru settar á þráð (= ofan á fæti). Prjónið sléttprjón yfir hællykkjur í (3-3½-4) 4-4½-4½ (5-5-5) cm – setjið 1 prjónamerki. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Prjónið síðan upp (8-9-10) 10-11-12 (13-13-13) lykkjur hvoru megin við hæl og lykkjur af þræði ofan á fæti eru settar til baka á prjóninn = (48-50-54) 58-60-64 (66-70-72) lykkjur. Haldið áfram með stroff yfir (22-22-22) 26-26-26 (26-30-30) lykkjur ofan á fæti eins og áður og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru. JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls (6-5-7) 7-8-8 (9-9-8) sinnum = (36-40-40) 44-44-48 (48-52-56) lykkjur. Þegar stykkið mælist (7-8-9) 9-11-13 (14-16-18) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru ca (3-3-3) 4-4-4 (4-4-4) cm að loka máli), setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki þannig að það verða (18-20-20) 22-22-24 (24-26-28) lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti á sokknum. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð (5-4-4) 6-6-5 (5-5-4) sinnum og síðan í hverri umferð (1-3-3) 2-2-4 (4-5-7) sinnum = 12 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pitterpattersocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 22-40
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.