Hanne skrifaði:
Elegant og naturlig
11.06.2011 - 20:18
Irene skrifaði:
Superleuk! Mijn handen jeuken nu al om het vestje te gaan breien!
10.06.2011 - 13:56
Ena skrifaði:
Rigtig flot. Den skal jeg da have strikke, til mig selv - strikke ellers ikke meget til mig selv - men den her...
09.06.2011 - 20:49
Carro skrifaði:
Enkel och snygg!
09.06.2011 - 09:10
Marie skrifaði:
Très joli modèle
01.06.2011 - 21:16
Isabelle skrifaði:
J'adore la variation sur le modèle layette intemporel, tricoté dans la hauteur avec un jeu habile de rangs raccourci. l'effet est bluffant
01.06.2011 - 11:21
Breg skrifaði:
Modèle sympathique en tout point!
31.05.2011 - 09:13
Chahla skrifaði:
Me plaît beaucoup ! Me réjouis des explications...
29.05.2011 - 20:43Françoise skrifaði:
Super ce modèle qui peut se mettre avec chemisier ou plus sport avec sous-pull
29.05.2011 - 07:36
Hanne skrifaði:
Rigtig fin
26.05.2011 - 16:33
Eden#edencardigan |
||||
|
||||
Prjónað vesti í garðaprjóni úr DROPS Fabel, prjónað frá hlið með snúningum. Stærð S - XXXL
DROPS 134-4 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR: Í hvert skipti þegar snúið er við í miðju stykki, takið fyrstu l óprjónaða, herðið á þræði og prjónið til baka. Þetta er gert til að koma í veg fyrir göt í snúningunum. STUTTAR UMFERÐIR: Prjónaðar eru stuttar umferðir með snúningum í miðju stykki til þess að gefa flíkinni A-laga snið. Byrjið að prjóna frá neðri kanti og upp að hálsmáli. * Prjónið yfir allar l, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 103-108-112-115-119-122 l, snúið við og prjónið til baka. LESIÐ LEIÐBEININGAR! Prjónið 89-94-97-99-103-105 l, snúið við og prjónið til baka. Prjónið 71-75-77-79-81-83 l, snúið við og prjónið til baka *. Endurtakið frá *-* , þ.e.a.s. að 1 mynstureining = 2 umf efst og 8 umf neðst. MÆLING: Allar mælingar eru gerðar þegar stykkið liggur flatt, mikilvægt er að ekki strekkist á stykkinu þegar mælt er. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Vestið er prjónað fram og til baka, þversum. Byrjað er við miðju að framan á vinstra framstykki og endað er við miðju að framan á hægra framstykki. ATH: Myndin á vestinu hefur verið snúið við. VINSTRA FRAMSTYKKI: Allt stykkið er prjónað í garðaprjóni, þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. Fitjið laust upp 115-120-125-129-134-138 l á prjóna nr 3,5 með litnum yfir hafið. Umferð 1 er prjónuð frá réttu (= frá neðri brún og upp að hálsmáli). Prjónið 3 cm yfir allar l (= kantur að framan), endið eftir 1 umf frá röngu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan! Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 23-25-27-30-33-35 cm frá uppfitjunarkanti (mælt neðst þar sem það er breiðast) – LESIÐ MÆLING! Prjónið hliðarstykki þannig: Prjónið 1 cm fram og til baka yfir einungis 64-67-70-72-74-76 l frá neðri kanti. Setjið 1 prjónamerki (= miðja í hlið). Prjónið 1 cm fram og til baka yfir sömu l, setjið síðan þær á þráð (endið eftir 1 umf frá réttu, l eru prjónaðar síðar á bakstykki). Prjónið nú ermi. VINSTRI ERMI: = 51-53-55-57-60-62 l á prjóni. Prjónið fram og til baka með stuttum umferðum á sama stað og áður, þar til ermin mælist ca 30-31-32-33-34-35 cm (neðst þar sem hún er breiðust), endið eftir 1 umf frá röngu. BAKSTYKKI: Prjónið til baka þær 64-67-70-72-74-76 l af þræði inn á prjóninn (frá röngu) = 115-120-125-129-134-138 l. Prjónið síðan stuttar umferðir eins og áður. Þegar stykkið mælist ca 21-23-25-28-31-33 cm frá prjónamerki í hlið (mælt neðst þar sem það er breiðast) setjið 1 nýtt prjónamerki (= miðja að aftan). Haldið áfram með stuttar umferðir þar til stykkið mælist ca 20-22-24-27-30-32 cm frá prjónamerki við miðju að aftan (mælt neðst þar sem það er breiðast). Prjónið nú hliðarstykki þannig: Prjónið 1 cm fram og til baka yfir einungis 64-67-70-72-74-76 l frá neðri kanti. Setjið 1 nýtt prjónamerki (= miðja í hlið). Prjónið 1 cm fram og til baka yfir sömu l (endið eftir 1 umf frá réttu), setjið þær síðan á þráð. Prjónið hægri ermi. HÆGRI ERMI: Prjónið á sama hátt og vinstri ermi. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið til baka þær 64-67-70-72-74-76 l af þræði inn á prjóninn (frá röngu) = 115-120-125-129-134-138 l. Haldið áfram með stuttar umferðir eins og á bakstykki. Þegar prjónaðar hafa verið jafn margar umf og á vinstra framstykki (mínus kantur að framan = 3 cm), prjónið nú kant að framan þannig: Prjónið 1½ cm fram og til baka yfir allar l. Í næstu umf frá réttu er fellt af fyrir hnappagötum þannig (= frá neðri kanti): Prjónið 12 l í öllum stærðum, fellið af næstu 2 l, * prjónið 12-13-14-14-15-15 l, fellið af næstu 2 l *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, prjónið út umf. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir þær l sem fellt var af. Prjónið nú yfir allar l þar til kantur að framan mælist alls 3 cm. Fellið laust af. FRÁGANGUR: Heklið með 2 þráðum í litnum brúnn með heklunál nr 4 þannig: Byrjið neðst á hægra framstykki með 1 fl, * 2 ll, hoppið yfir ca 1 cm og festið með 1 fl *, endurtakið frá *-* upp meðfram hægra framstykki, meðfram kraga, aftan við hnakka og niður meðfram vinstra framstykki, klippið frá og festið enda. Saumið tölur í. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #edencardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 134-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.