Natalia skrifaði:
After heel dec, knit up 10-11-11 sts along each side of heel and slip the 24-24-26 sts from stitch holder back on needle = 54-56-60 sts. What does knit up 10 sts along esch side of the needle mean? Should I increase 20 stitches? I am a bit confused Thank you in advance for your help.
31.07.2021 - 13:13
Cindy skrifaði:
Thank you very much for your quick and helpful answer
20.11.2020 - 16:43
Cindy skrifaði:
Hallo liebes Team, mir wir nicht ersichtlich, warum ich 2 verschiedene Farben benötige.
20.11.2020 - 08:48DROPS Design svaraði:
Liebe Cindy, die Socken werden doppelfädig gestrickt = mit 1 Faden von jeder Farben (1 x Natur + 1 x Sandy dust). Viel Spaß beim stricken!
20.11.2020 - 14:22
Martine skrifaði:
Dank voor uw reactie. Ik bestel altijd online, dus kleuren vergelijken is lastig. Kan ik ook breien met twee draden 821?
04.04.2012 - 17:20DROPS Design svaraði:
Ja, dat kan!
05.04.2012 - 08:52
Martine skrifaði:
Ik wil deze sokken graag maken van de nieuwe kleur 821p. Wat is een mooie effen kleur die daarmee combineert? Of kan ik ze ook maken van twee (of een) draden 821p?
28.03.2012 - 09:45DROPS Design svaraði:
Hoi Martine. De sok wordt gemaakt van 2 draden, dus ik zou het ook zo houden (of ze worden erg los ivm de stekenverhouding). Voor en goede combinatie met de 821 kan je contact opnemen met je DROPS verkooppunt. Zij kunnen je verder begeleiden in het het kiezen van de juiste kleuren/kwaliteitcombinatie. Veel breiplezier.
28.03.2012 - 10:17
Mna skrifaði:
Fine i det garnet.
22.06.2011 - 12:21
Monique skrifaði:
Jolis coloris ; bien montantes et d'allure confortable. Bravo et merci pour tous ces beaux modèles
09.06.2011 - 23:43
Elisabeth skrifaði:
Sokker i garn som dette syntes jeg er superlækre
25.05.2011 - 17:19
Marjo skrifaði:
Photo can't be opened!
19.05.2011 - 23:06
Marie skrifaði:
Pas moyen de voir ce modèle moi qui aime tant les chaussettes en Fabel Dommage
19.05.2011 - 19:46
Foggy#foggysocks |
|
|
|
Prjónaðir sokkar í sléttprjóni með stroffi úr 2 þráðum DROPS Fabel. Stærð 35-43.
DROPS 134-36 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆLÚRTAKA: Hælúrtaka er prjónuð í sléttprjóni þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5-6-6 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 4-5-5 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 4-5-5 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 10-10-12 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 44-48-52 l á sokkaprjóna nr 4 með 1 þræði í hvorum lit. Prjónið 2 umferðir slétt. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með stroff 2 l sl, 2 l br þar til stykkið mælist 6 cm. Setjið prjónamerki í 1. l í byjun umf (= miðja að aftan). Haldið áfram í sléttprjóni. Fækkið nú lykkjum mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð 35/37: Þegar stykkið mælist 11 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki. Stærð 38/40: Þegar stykkið mælist 9 og 16 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki Stærð 41/43: Þegar stykkið mælist 10 og 17 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki = 42-44-48 l. Prjónið þar til stykkið mælist 24-25-26 cm. Haldið eftir fyrstu 9-10-11 l á prjóni, setjið eftirfarandi 24-24-26 l á þráð (= ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 9-10-11 l á prjóni = 18-20-22 l fyrir hæl. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm. Setjið 1 prjónamerki, stykkið er nú mælt héðan. Fækkið nú lykkjum fyrir hæl – sjá HÆLÚRTAKA. Þegar hælúrtöku er lokið eru prjónaðar upp 10-11-11 l hvoru megin við hæl og þær 24-24-26 l af þræði eru settar aftur á prjóninn = 54-56-60 l. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 24-26-28 af þræði. Prjónið nú sléttprjón hringinn JAFNFRAMT sem lykkjum fækkað í hvorri hlið í annarri hverri umf alls 8-8-8 sinnum þannig: Prjónið síðustu 2 lykkjur Á UNDAN fyrra prjónamerki snúnar sléttar saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan), prjónið fyrstu 2 lykkjur Á EFTIR seinna prjónamerki á fæti slétt saman = 38-40-44 l. Prjónið þar til stykkið mælist 18-20-22 cm frá prjónamerki (= 4-4-5 cm að loka máli). Nú er sett 1 prjónamerki í hvora hlið svo að það verða 19-20-22 l ofan á fæti og 19-20-22 l undir fæti. Fækkið nú lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin: Fækkið lykkjum á undan 1 l sl og prjónamerki þannig: 2 l sl saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki og 1 l sl þannig: 2 l snúnar slétt saman. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið í annarri hverri umf alls 5-5-6 sinnum og síðan í hverri umf 2-2-2 sinnum = 10-12-12 l eftir á prjóni. Í næstu umf eru allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #foggysocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 134-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.