Corinda skrifaði:
Geweldige muts. Ik heb hem alleen een maatje kleiner gemaakt. Valt best groot
27.01.2014 - 10:51
Kerstin skrifaði:
Hallo, Sind die 8-10(11) cm mit den Ohrenklappen oder ohne den Ohrenklappen gemeint? Manches ist doch etwas missverständlich erklärt. LG Kerstin
08.03.2013 - 22:31DROPS Design svaraði:
Liebe Kerstin, ja diese Angabe hat in der deutschen Übersetzung gefehlt, ich ergänze es gleich: es wird ab der hintern Mitte gemessen, also ohne die Ohrenklappen.
11.03.2013 - 10:18
Allison skrifaði:
Hello, Thank you for the adorable patterns- the dress is gorgeous! I have started making this hat now and am curious if the pattern has been corrected according to the mistakes found by previous posters. Thank you!
10.02.2013 - 18:27
Camilla skrifaði:
Som sagt som de övriga redan påpekat är det fel i mönstret. Sista delen på mössan när den skall minskas när man har virkat 8-10 (11)cm, så skall varje varv minskas med i mitt fall 9 halvst. Detta görs genom att minska antalet halvst innan man virkar ihop två hst dvs Varv 1 6 halvst virka ihop två osv repetera varvet ut. Varv 2 bara halvst. Varv 3 5 halvst virka ihop två repetera varvet ut Varv 4 endast halvst. Varv 5 4 halvst virka ihop två osv i totalt tio varv. Då blir det rätt. :)
25.04.2012 - 14:43DROPS Design svaraði:
Det stämmer, du har en m mindre mellan minskn för varje gång du minskat på ett varv. Vi ska se över så det kan förklaras tydligare, tack för hjälpen.
01.05.2012 - 00:23
Melanie Kargl-kasper skrifaði:
Hallo, muss es unbedingt eine drops-häkelnadel sein oder geht auch eine andere in derselben stärke?? mfg, melanie
15.04.2012 - 21:05DROPS Design svaraði:
Sie können auch eine andere Nadel benutzen. Wichtig ist die Maschenprobe.
18.04.2012 - 10:16Maris Again skrifaði:
EDIT: and in original pattern has the same mistake, but the last-mentioned is correct there.
27.01.2011 - 19:02
Maris skrifaði:
The pattern goes wrong in HAT-part, where decreases start. There should be mentioned, that after every other decrease-row you will have to make one htr less than on last dec-row. (first dec. row 6htr between 2htr tog, second dec. row 5htr between 2htr tog, etc until 2htr between 2htr tog). And then after rounds without dec-s next round is said "next 3 htr tog" but should be "next 2 htr tog".
27.01.2011 - 19:00
Sweet Little Cupcake Hat#sweetlittlecupcakehat |
|
|
|
Hekluð húfa fyrir börn með blúndukanti og gatamynstri úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS Baby 20-19 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR-1: Fyrsta hálfa stuðli í hverri umferð er skipt út fyrir 2 loftlykkjur Hver umferð endar með 1 hálfum stuðli í 2. loftlykkju í byrjun á fyrri umferð. HEKLLEIÐBEININGAR-2: Fyrsta hálfa stuðli í byrjun á hverri umferð er skipt út fyrir 2 loftlykkjur. Hver umferð enda með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju í byrjun á umferð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 hálfan stuðul með því að hekla 2 hálfa stuðla í næst síðasta hálfa stuðul. HÁLFIR STUÐLAR HEKLAÐIR SAMAN: Fækkað er um einn hálfan stuðul með því að hekla 2 hálfa stuðla saman, þ.e.a.s. heklið einn hálfan stuðul en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin (= 3 lykkjur eftir á heklunálinni), heklið 1 hálfan stuðul í næstu lykkju og dragið að lokum þráðinn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni. FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN: Heklið 2 fastalykkjur saman í 1 fastalykkju þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu lykkju, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru eyrnaleppar heklaðir fram og til baka, síðan er húfan hekluð í hring. EYRNALEPPUR: Heklið 5 loftlykkjur með heklunál 4,5 með litnum ljós bleikur. Heklið 1 hálfan stuðul í 3. loftlykkju frá heklunálinni, 1 hálfan stuðul í 2 næstu loftlykkjur = 4 hálfir stuðlar, snúið stykkinu. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-1. Heklið 1 hálfan stuðul JAFNFRAMT er aukið út um 1 hálfan stuðul í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hvorri hlið í hverri umferð alls 6-7 (8) sinnum = 16-18 (20) hálfir stuðlar. Haldið áfram með hálfa stuðla og endið þegar eyrnaleppurinn mælist 6-7 (8) cm. Geymið stykkið og heklið hinn eyrnaleppinn á sama hátt. HÚFA: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR-2! Heklið 7-8 (9) loftlykkjur, heklið hálfa stuðla yfir annan eyrnaleppinn, heklið 18-20 (22) loftlykkjur (= miðja að framan), heklið hálfa stuðla yfir hinn eyrnaleppinn, heklið 7-8 (9) loftlykkjur og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju = 64-72 (80) hálfir stuðlar. Haldið áfram með hálfa stuðla hringinn. Þegar stykkið mælist 8-10 (11) cm frá kanti við miðju að aftan er næsta umferð hekluð með úrtöku þannig: * 1 hálfur stuðull í hvern af fyrstu 6 lykkjum, heklið síðan næstu 2 hálfa stuðla saman – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn (nú hefur fækkað um 8-9-10 hálfa stuðla í umferð). Heklið 1 umferð án úrtöku og síðan næstu umferð þannig: * 1 hálfur stuðull í hverja af fyrstu 5 lykkjum, heklið síðan næstu 2 hálfa stuðla saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð (með 1 hálfum stuðli færri á milli úrtöku í hvert skipti sem lykkjum er fækkað) 3 sinnum til viðbótar = 24-27 (30) hálfir stuðlar í umferð. Heklið 2-2 (3) umferðir án þess að fækka lykkjum. Næsta umferð er hekluð þannig: * 1 hálfur stuðull í fyrstu lykkju, síðan eru næstu 2 hálfu stuðlarnir heklaðir saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 16-18 (20) hálfir stuðlar. Í næstu umferð eru allir hálfu stuðlarnir heklaðir saman 2 og 2 = 8-9 (10) hálfir stuðlar til baka í umferð. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum síðustu lykkjurnar og herðið að, húfan mælist ca 17-19 (21) cm ofan frá topp og niður. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með heklunál 4,5 með litnum natur í kringum opið á húfunni þannig: * 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 lykkju/umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. SNÚRA MEÐ DÚSK: Byrjið á dúsknum: Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 4,5 og litnum natur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. ATH: 1. fastalykkja í byrjun á umferð er skipt út fyrir 1 loftlykkju og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. UMFERÐ 1: Heklið 4 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 4-5: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman – sjá útskýringu að ofan *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 7: Leggið dúskinn flatan og heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju í gegnum bæði lögin = 4 fastalykkjur. UMFERÐ 8: Heklið fastalykkjurnar saman 2 og 2 = 2 fastalykkju. Heklið 22-26 (30) cm með loftlykkjum fyrir snúru og festið með 1 keðjulykkju neðst mitt á öðrum eyrnaleppnum. Endurtakið í hinni hliðinni. KANTUR: Heklið ca 7 umferðir með kanti í kringum húfuna. Byrjið á umferð 2 ofan frá toppi á húfu og heklið 1. umferð þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, hoppið yfir ca 1,5 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn á toppnum á húfunni og endið með keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. Klippið frá og festið enda. Heklið síðan 6 umferðir til viðbótar (eða að óskuðu máli) alveg eins með ca 2-2½ cm á milli hverra umferða. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetlittlecupcakehat eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 20-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.