Bieke skrifaði:
Als ik vanaf de markeerdraad tot 18 cm moet breien is dat op dat punt toch nog veel meer dan 4 cm te breien ?
26.12.2011 - 08:59
Abril Rojas skrifaði:
Kan jeg få opskrift til disse flotte strompe? Jeg vil gerne prøve det og send kommentar bagefter.
17.04.2010 - 13:21Claire skrifaði:
Tres beau model et facile a comprendre.
23.02.2010 - 03:31
Inger skrifaði:
Vacker och variation på traditonellt mönster.
24.01.2010 - 11:22
Heike skrifaði:
Ein wunderschönes Muster.
15.01.2010 - 09:39
Marie skrifaði:
Superben j'avais voté pour !Je n'attendsplus, pour les tricoter, que les explications
14.01.2010 - 17:42
Agneta Bylander skrifaði:
Jättefin socka
14.01.2010 - 16:57
Laillamari skrifaði:
Super flot model
14.01.2010 - 11:51
Katrina skrifaði:
Beautiful display of the new yarn. Better than fabel in soft color transitions.
28.12.2009 - 05:40
Lotta skrifaði:
Jättefina och en annorlunda socka.
15.12.2009 - 08:58
Heel Hugger#heelhuggersocks |
|
![]() |
![]() |
Prjónaði sokkar úr DROPS Delight. Stærð 32-43.
DROPS 118-35 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 7-8-8-9 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 7-8-8-9 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 6-7-7-8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 6-7-7-8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við. Haldið áfram alveg eins með því það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 14-16-16-18 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 56-60-64-68 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Delight. Prjónið 2 umferðir slétt, haldið áfram með stroff = 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 4-4-5-5 cm. Haldið síðan áfram með stroff yfir fyrstu 26-30-30-34 lykkjur (2 fyrstu og 2 síðustu lykkjurnar eiga að vera sléttar lykkjur). Aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 20-21-22-23 cm haldið eftir fyrstu 26-30-30-34 lykkjunum á prjóni, aðrar 30-30-34-34 lykkjurnar eru settar á þráð = ofan á fæti. Haldið áfram fram og til baka í stroffprjóni yfir hællykkjur í 4½-5-5½-6 cm. Setjið eitt prjónamerki mitt á hæl – stykkið er nú mælt héðan! Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku eru teknar upp 12-13-14-16 lykkjur hvoru megin við hæl og 30-30-34-34 lykkjur af þræði eru settar aftur til baka á prjóninn = 68-72-78-84 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við 30-30-34-34 lykkjur ofan á fæti. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á undan 30-30-34-34 lykkjum ofan á fæti slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri) og prjónið 2 fyrstu lykkjur á eftir 30-30-34-34 lykkjum ofan á fæti slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 10-10-11-12 sinnum = 48-52-56-60 lykkjur. Haldið áfram að prjóna þar til stykkið mælist 15-18-19-22 cm frá prjónamerki á hæl (= 4-4-5-5 cm að loka máli). Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 24-26-28-30 lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig: Á undan prjónamerki: 2 lykkjur slétt saman. Á eftir prjónamerki: 2 lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 4-4-7-6 sinnum og síðan í hverri umferð 5-6-4-6 sinnum = 12 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #heelhuggersocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 118-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.