Debbie skrifaði:
I think its time for a new winter sweater, and I've been looking for something with a great hood! This is the one! It's just great!
09.06.2009 - 00:43
Silje skrifaði:
Denne var bare helt rå. Bare gamle tanter som ikke liker denne :)
08.06.2009 - 08:46
Andrea skrifaði:
Ein absoluter Traum von einer Jacke! Kuschelig, gemütlich...das könnte ein Lieblingsteil werden :)
07.06.2009 - 22:17
Gunhild skrifaði:
Fin modell, men likte ikke mønsteret. Blir for voldsomt. Fint med hette, men ville valgt enklere mønster og annen farge.
07.06.2009 - 21:55
Yvonne skrifaði:
Snygg, snygg härligt tjock och skön.
07.06.2009 - 19:41
Wendy skrifaði:
Just beautiful!
07.06.2009 - 07:31
C. Petersen skrifaði:
Super Jacke..Wenn ich groß und schlank wäre..bin nur schlanke 1,65m. Stricke lieber den Rolli, Modell 22-256.
06.06.2009 - 19:42
Emma skrifaði:
Den här är helt ljuvlig! Jag ska försöka hitta någon som vill hjälpa mig att sticka den (jag kan bara virka). I så fall tänker jag ha den istället för jacka i höst.
06.06.2009 - 14:57
Betty skrifaði:
Susan: Yes, you are right - I will look much better than the model. Surely will knit this one. Gefällt mir sehr gut!!!
06.06.2009 - 11:34
Susan O'Donnell skrifaði:
No way! Absolutely not! People need to remember that they will not look like the model in this - scary!
06.06.2009 - 05:47
Welcome to the North#welcometothenorthjacket |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð síð peysa úr DROPS Snow með norrænu mynstri og hettu. Stærð S til XXXL.
DROPS 114-29 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá teikningu M.1 og M.2 – Mynstrið er prjónað í sléttprjóni og mynsturteikningin sýnir 1 mynstureiningu af mynstri (M.1b er einungis notað við miðju að aftan í stærð L). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 134-150-166-198 l (meðtaldar eru 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á prjóna nr 7 með litnum rauður Snow. Prjónið (umf 1 = rétta)nú þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l sl,2 l br * endurtakið frá *-* og endið með 2 l sl og 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist ca 12 cm er prjónuð 1 umf slétt frá réttu með 6 l garðaprjón í hvorri hlið JAFNFRAMT er fækkað um 25-29-33-41 l jafnt yfir = 109-121-133-157 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og haldið áfram í sléttprjóni með 6 l garðaprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 23-25-27-29 cm er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: STÆRÐ S/M, XL og XXL/XXXL: Prjónið 6 l garðaprjón (þessar l eru alltaf prjónaðar með litnum rauður), M.1 4-5-6 sinnum, síðan er fyrsta l í M.1 prjónuð einu sinni til viðbótar svo að mynstrið verði eins í báðum hliðum við miðju að framan, endið með 6 l garðaprjón. STÆRÐ L: Prjónið 6 l garðaprjón (þessar l eru alltaf prjónaðar með litnum rauður), M.1 2 sinnum, M.1b 1 sinni (= miðja að aftan); M.1 2 sinnum, prjónið nú fyrstu l í mynstri einu sinni til viðbótar svo að mynstrið verði eins í báðum hliðum við miðju að framan, endið með 6 l garðaprjón. ALLAR STÆRÐIR: Þegar stykkið mælist 61-63-65-67 cm (það eru þá ca 5-6 umf eftir af M.1) prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 25-28-31-37 l (= hægra framstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, 43-49-55-67 l (= bakstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, 25-28-31-37 l (= vinstra framstykki). Hvert stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: =25-28-31-37 l. Haldið áfram þar til M.1 hefur verið prjónað, prjónið nú áfram með litnum rauður. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf frá hlið: Fellið af 2 l 0-1-2-4 sinnum og 1 l 2-2-2-3 sinnum = 23-24-25-26 l. Þegar stykkið mælist 76-79-82-86 cm eru síðustu 8-8-9-9 l við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli. Fellið nú af í byrjun hverrar umf frá miðju að framan: Fellið af 2 l 1 sinni og 1 l 3 sinnum = 10-11-11-12 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 82-85-88-92 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd. BAKSTYKKI: = 43-49-55-67 l. Haldið áfram þar til M.1 hefur verið prjónað, prjónið nú áfram með litnum rauður. JAFNFRAMT er fellt fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið á sama hátt og á framstykki = 39-41-43-45 l eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 80-83-86-90 cm er fellt af miðju 19-19-21-21 l af fyrir hálsmáli og axlir (= 10-11-11-12 l) eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Fellið af þegar stykkið mælist 82-85-88-92 cm. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 32-32-36-36 l á sokkaprjóna nr 7 með litnum rauður Snow. Prjónið stroff = 2 l sl / 2 l br í 7 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 8. Prjónið 1 umf sléttprjón – JAFNFRAMT er fækkað um 8-4-8-4 l jafnt yfir = 24-28-28-32 l. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf. Haldið áfram með M.2, prjónið nú sléttprjón með litnum rauður til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu með 4-4½-3½-3½ cm millibili alls 8-7-8-8 sinnum = 40-42-44-48 l. Þegar stykkið mælist 47-45-43-41 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) fellið af 6 l við miðju undir ermi og stykkið er prjónað fram og til baka. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l 1 sinni, 1 l 2-3-4-6 sinnum, 2 l 1 sinni og 3 l 1 sinni. Fellið af þegar stykkið mælist ca 55 cm í öllum stærðum. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. HETTA: Prjónið upp 50 til 60 l í kringum hálsmálið (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjóna nr 8 með rauðu. Prjónið 1 umf sl frá röngu, prjónið nú 1 umf sl frá réttu JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir að 60-64-68-72 l. Prjónið sléttprjón með 6 l garðaprjón í hvorri hlið þar til hettan mælist ca 32 cm á hæðina, fellið af. Saumið saman hettuna að ofan. Saumið ermar í. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með heklunál nr 8 og litninn natur efst meðfram hægri kanti að framan, í kringum hettuna og niður meðfram vinstri kanti að framan þannig: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 4 ll, 1 st í fyrstu ll (= 1 picot), hoppið yfir 2-2½ cm, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*. TÖLUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan – efsta talan á að vera nákvæmlega þar sem hálsmálið byrjar og síðan á að vera ca 10-12 cm bil á milli talna. Notið picot-lykkjur í hægri kanti að framan sem hnappagat. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #welcometothenorthjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 114-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.