Drops Design skrifaði:
Oui Véronique, effectivement, il y avait une erreur, il faut diminuer 1 m end dans chaque section 3 m end pour obtenir le nombre de mailles requises. Modèle corrigé, merci, bon tricot !
08.06.2009 - 15:21Veronique Simard skrifaði:
Il y as surément une erreur dans le nombre de maille a monter , vous dite 124m et apres le cotelée faut rajouter des mailles et le total de mailles sa fait 100m c'est tout au début du commencement du tricot dans dos et devant merci a l'avance
08.06.2009 - 15:13
Jenny skrifaði:
Största storleken, något konstigt med beskrivningen? vid 35 cm avmaskas för halsringning. Men arbetet ska fortsätta till det mäter 40 cm. Det gör att det blir en rak kant på sidorna mot bakstycket, Det blir jättefult när man sedan stickar ihop alla maskorna runt halsen. Det blir stora bulor vid sidan av halsen! Dessutom kan inte maskantalet (88) stämma. För att resåren ska gå jämt ut så måste maskantalet vara 89.
06.03.2009 - 10:45
Wendy skrifaði:
I love this sweater can't wait to try it when translated
24.11.2008 - 20:24
Gurli Andersen skrifaði:
Det er en dejlig trøje, og fine raglanærmer, som er bedst til babyer
23.11.2008 - 17:30
Eli skrifaði:
Denne vil jeg også strikke. Den ser veldig deilig ut.
12.11.2008 - 21:32
Hege skrifaði:
Denne er utrolig praktisk, enkel og fin! Denne vil jeg gjerne strikke!
11.11.2008 - 09:28
Merete skrifaði:
Vil svært gjerne strikke denne, enkel og veldig fin !!
07.11.2008 - 21:55
Bärbel skrifaði:
Dies steht natürlich auch auf meiner Liste ,auch die Farauswahl hat Ihr gut getroffen ,
27.10.2008 - 18:52
Maggie skrifaði:
A nice classic sweater.
26.10.2008 - 13:20
Little Petunia#littlepetuniajacket |
|
|
|
Prjónuð peysa fyrir börn með laskalínu úr DROPS Merino Extra Fine
DROPS Baby 17-4 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um úrtöku fyrir laskalínu): Fækkið lykkjum hvoru megin við öll prjónamerkin Öll úrtaka er gerð frá réttu og fækkað er um 2 lykkjur í hverri úrtöku, þ.e.a.s. 16 lykkjur í hverri umferð. Byrjið 5 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið þannig: Setjið 2 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið. * Takið fyrstu lykkjuna óprjónaða á hjálparprjón (= lykkjur sem eru lengst til hægri á prjóni) eins og prjóna eigi slétt, prjónið fyrstu lykkju af vinstri prjóni slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir *, endurtakið frá *-* einu sinni, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa), setjið 2 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, * prjónið fyrstu lykkju á vinstri prjón og fyrstu lykkju af hjálparprjóni (= lykkjur sem eru lengst til hægri á prjóni) slétt saman*, endurtakið frá *-* einu sinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 124-139-154 (169-184) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið þannig (umferð 1 = rétta): 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*, endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið alls 5 umferðir stroff. Í næstu umferð (= ranga) eru allar 3 lykkjur slétt fækkaðar til 2 lykkjur slétt = 100-112-124 (136-148) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5, prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu. Haldið áfram að prjóna sléttprjón með kantlykkju í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-17-21 (23-25) cm prjónið næstu umferð þannig (frá réttu): 21-24-27 (30-33) lykkjur (= hægra framstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handveg, 42-48-54 (60-66) lykkjur (= bakstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handveg, 21-24-27 (30-33) lykkjur (= vinstra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 40-40-45 (45-50) lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 5 umferðir stroff = 2 lykkjur slétt/3 lykkjur brugðið. Í næstu umferð eru allar 3 lykkjur brugðið fækkað í 2 lykkjur brugðið = 32-32-36 (36-40) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um eina lykkju hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu í 7.-5.-7. (6.-7.) hverri umferð alls 4-6-6 (8-8) sinnum = 40-44-48 (52-56) lykkjur. Þegar stykkið mælist 16-17-21 (24-28) cm fellið af 8 lykkjur mitt undir ermi = 32-36-40 (44-48) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermarnar inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 148-168-188 (208-228) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Haldið áfram í sléttprjón og kantlykkju í garðaprjóni fram og til baka – JAFNFRAMT í 3. umferð er fækkað um 2 lykkjur hvoru megin við öll prjónamerki fyrir laskalínu – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umferð alls 5-6-6 (7-8) sinnum. HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 23-25-28 (32-35) cm fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 5-6-8 (9-10) lykkjur 1 sinni og síðan 1 lykkju 2 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu og affellingu fyrir hálsmáli eru 54-56-72 (74-76) lykkjur eftir á prjóni og stykkið mælist ca 27-29-33 (37-40) cm upp að öxl. Setjið lykkjur á þráð. VASI: Fitjið upp 12-16-16 (20-20) lykkjur á sokkaprjón 3,5. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 4-5-5 (6-7) cm – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir = 16-20-20 (24-24) lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff þar til vasinn mælist 6-7-7 (8-9) cm, fellið af. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Takið upp 56-60-68 (76-84) lykkjur (deilanlegt með 4) á prjóna 3,5 meðfram vinstra framstykki. Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan stroff með 1 lykkju garðaprjón og 2 lykkjur slétt efst og neðst (séð frá réttu). Þegar kantur að framan mælist 2 cm er fellt af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið eins og vinstri kantur að framan, en eftir 1 cm er fellt af fyrir 4-4-4 (5-5) hnappagötum jafnt yfir. Neðsta hnappagatið á að vera ca 1 cm frá neðri kanti og efsta ca 5 cm frá efri kanti (það kemur einnig til með að vera eitt hnappagat í kanti í hálsi). 1 HNAPPAGAT = Prjónið 2 lykkjur saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. ATH: Fallegast er að fella af í brugðnum lykkjum (séð frá réttu) með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Setjið lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 3,5. Takið að auki upp 12 til 18 lykkjur í hvorri hlið framan í hálsmáli (takið einnig upp lykkjur yfir kanta að framan) = ca 78 til 112 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu – JAFNFRAMT í síðustu umferð er lykkjum fækkað jafnt yfir til 72-76-80 (84-88) lykkjur. Prjónið nú stroff með 1 lykkju garðaprjón og 2 lykkjur slétt í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). JAFNFRAMT eftir 1 cm er fellt af fyrir hnappagati yfir hin í kanti að framan. Þegar kantur í hálsi mælist 2 cm er fellt af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum, saumið tölur í og saumið vasana á – þeir eiga að sitja ca 6-6-7 (7-8) cm frá neðri kanti og mitt á milli hliðarsauma og kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlepetuniajacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 12 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 17-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.