Yamunaa skrifaði:
Hi, is this entire piece crocheted with 2 yarns simultaneously? Meaning I will have 2 yarns on my hook?
23.05.2025 - 12:06DROPS Design svaraði:
Dear Yamunaa, correct, you work with 1 strand each colour = 2 strands at the same time as there were just once. Happy crocheting!
23.05.2025 - 13:31
Anne Mette Hermundstad skrifaði:
Forstår at garnet er utgått og at man kan bruke Paris. Hvilket garn bruker man til den hvite delen?
11.10.2022 - 06:58DROPS Design svaraði:
Hei Anne Mette, Da bruker du Paris nr. 16, hvit. God fornøyelse!
12.10.2022 - 07:10
Lisen Hillestad skrifaði:
Goddag! Her skal det arbeides med to tråder. Jeg er nybegynner i hekling og har nok med å holde orden på én tråd. Hvilket enketgarn kan jeg erstatte de to foreslåtte med?
28.03.2021 - 11:21DROPS Design svaraði:
Hei Lisen. Om du ønsker å hekle i ull garn, kan du bruke 3 nøster DROPS Alpaska (150 g) eller DROPS Nepal (150 g). Om du ønsker å hekle i et bomullgarn kan du bruke DROPS Paris (150 g). God Fornøyelse!
07.04.2021 - 13:55
Lara skrifaði:
In alternativa quale altro filato posso adoperare per questo modello?
27.10.2019 - 20:57DROPS Design svaraði:
Buongiorno Lara. Può sostituire il filato Symphony con il Melody. Per il Cotton Viscose può scegliere un filato del gruppo A. Può rivolgersi al suo rivenditore Drops di fiducia per un consiglio più personalizzato. Buon lavoro!
28.10.2019 - 16:11
Jolly Morning |
|
|
|
Hekluð diskamotta og servéttuhringur úr DROPS Cotton Viscose og DROPS Symphony. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-525 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Einungis er heklað í aftari lykkjubogann í öllum umferðum. UMFERÐ 1: 1 stuðull í hverja lykkju – snúið stykkinu með 1 loftlykkju. UMFERÐ 2: 1 fastalykkja í hverja lykkju – snúið stykkinu með 3 loftlykkjur. Endurtakið umferð 1 og 2. PICOTKANTUR: Heklið með 1 þræði DROPS Symphony þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 4 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju (= 1 picot), hoppið yfir ca 1 cm, festið með 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-* , endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- DISKAMOTTA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka. DISKAMOTTA: Heklið 82 lausar loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með 1 þræði í litnum rauður DROPS Cotton Viscose + 1 þræði í litnum vínrauður DROPS Cotton Viscose með heklunál 3,5. Heklið þannig: 1 fastalykkja í 2. loftlykkju frá heklunálinni, * fastalykkja í hverja af næstu 7 loftlykkjum, hoppið yfir 1 loftlykkju *, endurtakið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, heklið 1 fastalykkju í hverja af þessum = 72 fastalykkjur í umferð, endið með 3 loftlykkjur, snúið stykkinu. Haldið áfram með MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan. Munið eftir að fylgja uppgefinni heklfestu. Þegar stykkið mælist ca 28 cm, klippið þráðinn – endið eftir 1 umferð með fastalykkjum. Heklið PICOTKANT í kringum diskamottuna – sjá útskýringu að ofan með 1 þræði DROPS Symphony. ATH: Passið uppá að hornin verði ekki of stíf. ------------------------------------------------------- SERVÉTTUHRINGUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka. SERVÉTTUHRINGUR: Heklið 10 lausar loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með 1 þræði í litnum rauður DROPS Cotton Viscose + 1 þræði í litnum vínrauður DROPS Cotton Viscose með heklunál 3,5. Heklið 1 fastalykkju í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja af næstu 3 loftlykkjum, hoppið yfir 1 loftlykkju og heklið 1 fastalykkju í hverja af síðustu 4 loftlykkjum = 8 fastalykkjur, endið með 3 loftlykkjur, snúið stykkinu. Heklið síðan MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan – þar til stykkið mælist 14 cm, klippið þráðinn og saumið uppfitjunarkantinn við síðustu umferð kant í kant svo saumurinn verði ekki of þykkur. Heklið PICOTKANT í kringum 2 opnu hliðarnar á servéttuhringinn – sjá útskýringu að ofan með 1 þræði DROPS Symphony. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 4 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-525
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.