Jitka Havlová skrifaði:
Ráda bych se zeptala, zda příze Fabel a Alpaca nekoušou. Děkuji
05.05.2020 - 13:27DROPS Design svaraði:
Milá Jitko, na tuto otázku de facto nelze odpovědět - je to věc tak individuální, že se nedá zobecnit. Chcete-li plést tento svetřík a mít jistotu, že nebude pro dítě dráždivý, nahraďte jednobarevnou přízi na lemy odpovídajícícm odstínem DROPS Baby Merina - to je sílou srovnatelné, ale absolutně nedráždivé i v přímém styku s kůží. Výrobky pak perte opatrně v jemném prostředku na vlnu, nejlépe s lanolinem. Hodně zdaru! Hana
14.05.2020 - 16:40
Thora skrifaði:
Ik zie alleen tekening M1 maar zie niet het patroontje met verschillende kleuren die er in de pijpen zijn verwerkt?
08.01.2017 - 09:00DROPS Design svaraði:
Hoi Thora. Het garen is een printgaren met verschillende kleuren in de draad. Het is dus het garen die de patronen maakt, en niet een kleurpatroontje in het patroon zelf
09.01.2017 - 14:55
Anne Gramsch skrifaði:
Hallo drops-Team, Ich habe diese wunderschöne Jacke nun fast fertig. Die Blenden in glatt rechts (laut Anleitung) rollen sich. Daher habe ich mir das Foto nochmal genau angesehen und dort scheinen sie in kraus rechts gestrickt worden zu sein. Könnt ihr das bitte überprüfen? Vielen Dank für die Anleitung zu dieser genialen Jacke mit mir gestrickten Ärmeln und herzliche Grüße!
15.08.2016 - 01:11DROPS Design svaraði:
Liebe Anne, die Blende ist in der Anleitung nicht als glatt rechts beschrieben: " 7 R. re. stricken" - wenn Sie jede R rechts stricken ergibt das kraus rechts.
15.08.2016 - 08:40
Anne Gramsch skrifaði:
Hallo Drops-Team, wie kommt es, dass die Maschenprobe für diese Jacke im Perlmuster gestrickt werden soll, obwohl das eigentliche Muster Krausrippen sind? Stimmen die Angaben Nadel Nr. 2,5 und 26m auf 10cm Breite in der Maschenprobe? Herzliche Grüße, Anne Gramsch
29.07.2016 - 23:12DROPS Design svaraði:
Liebe Anne, vielen Dank für den Hinweis. Das ist ein Übersetzungsfehler, den wir umgehend beheben werden.
01.08.2016 - 07:58
Barbara Dormann skrifaði:
Wo finde ich das Muster diagramm für die Jacke. m.f.g.
29.01.2015 - 19:58DROPS Design svaraði:
Es gibt kein Musterdiagramm, das Muster ergibt sich allein aus der Wolle, Fabel ist so gefärbt. Die Jacke wird einfach kraus rechts gestrickt.
30.01.2015 - 00:06
VERGNET skrifaði:
Bonjour, les augmentations des manches taille 1 an 18 mois ne correspondent pas au nombre de mailles a avoir soit 81 mailles.Me suis je tromper ? Merci de votre réponse, c'est un très joli modèle. Cordialement, Mme VERGNET
29.10.2013 - 11:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Vergnet, il y avait une erreur dans les augmentations en taille 12/18 mois, on doit augmenter 6 fois 2 m, 5 fois 3 m, 1 fois 4 m et 1 fois 10 m. on obtient ainsi bien les 81 m. Les explications ont été corrigées, merci. Bon tricot!
29.10.2013 - 12:01
DOISY skrifaði:
Un modèle tout simple mais rénové par le tricotage des manches dans la longueur. Très joli résultat
10.11.2008 - 10:38
Merete skrifaði:
Kjempefin jakke til en gutt jeg er tante til :-)
08.11.2008 - 18:59
Mamie Coucou skrifaði:
Bonne idée de faire les manches dans ce sens !tous les modèles originaux sont les bienvenus!
17.10.2008 - 16:34
Little Traveler#littletravelerjacket |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn og sokkar úr DROPS Fabel og Alpaca.
DROPS Baby 16-22 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-7-7 (7-8) lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið þar til 6-7-7 (7-8) lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-6-6 (6-7) lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-6-6 (6-7) lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið. Haldið áfram á sama hátt með því fækka um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 8-10-10 (10-12) lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um sokka): Fækkið lykkjum á undan stroffprjóni þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir stroffprjóni þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um sokka): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Prjónið fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og upp undir ermar, prjónið síðan til loka í 3 hlutum með því að skipta stykkinu upp í hliðum og fitja upp fyrir ermum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 132-144-160 (176-192) lykkjur á hringprjón 2,5 með Fabel. Setjið eitt prjónamerki eftir 33-36-40 (44-48) lykkjur inn frá hvorri hlið (= 66-72-80 (88-96) lykkjur á milli prjónamerkja = bakstykki). Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-17-20 (23-25) cm skiptist stykkið við prjónamerkin í hliðum og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 33-36-40 (44-48) lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermi í lok hverrar umferðar í hlið þannig: 2 lykkjur 4-3-6 (4-5) sinnum, 3 lykkjur 4-4-5 (4-5) sinnum, 4 lykkjur 1-2-1 (4-5) sinnum og síðan 8-11-10 (16-16) lykkjur 1 sinni = 65-73-81 (96-109) lykkjur. Prjónið áfram með garðaprjón þar til stykkið mælist 23-25-28 (32-35) cm. Fækkið nú lykkjum í byrjun á hverri umferð frá hálsi: 6-6-7 (8-8) lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 52-60-67 (81-94) lykkjur eftir á prjóni fyrir öxl/ermi. Fellið laust af þegar stykkið mælist 27-29-33 (37-40) cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 33-36-40 (44-48) lykkjur. Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd. BAKSTYKKI: = 66-72-80 (88-96) lykkjur. Prjónið áfram í garðaprjóni JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir ermum eins og á framstykki = 130-146-162 (192-218) lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 26-28-32 (36-39) cm. Fellið nú af miðju 26-26-28 (30-30) lykkjur fyrir hálsmáli = 52-60-67 (81-94) lykkjur eftir á hvorri öxl/ermi. Fellið laust af þegar stykkið mælist 27-29-33 (37-40) cm. FRÁGANGUR: Saumið axla sauma og sauma yfir ermum kant í kant svo að saumurinn verði ekki þykkur. STROFF: Takið upp 36-42-42 (46-46) lykkjur yst meðfram annarri erminni á prjón 2,5 með litnum turkos Alpaca. Prjónið 5 cm garðaprjón fram og til baka, fellið af. Endurtakið yst meðfram hinni erminni. Saumið sauma undir ermum og niður meðfram stroffi kant í kant svo að saumurinn verði ekki þykkur. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp ca 60-65-72 (84-90) lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram vinstra framstykki með litnum bensínblár Alpaca á prjón 2,5. Prjónið 7 umferðir slétt, fellið af. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið eins og vinstri nema eftir 3 umferðir slétt er fellt af fyrir 4-4-5 (5-5) hnappagötum jafnt yfir – neðsta hnappagatið á að vera ca 2 cm frá neðri kanti og efsta ca 5 cm frá hálsmáli. 1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur og fitjið upp 2 nýjar lykkjur yfir þær sem felldar voru af í næstu umferð. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 70 til 85 cm í kringum hálsmál með litnum bensínblár Alpaca á prjón 2,5. Prjónið slétt fram og til baka – JAFNFRAMT eftir 3 umferðir er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin í kanti að framan. Eftir alls 7 umferðir eru fellt laust af. FRÁGANGUR: Saumið tölur í. Brjótið uppá ermar eftir þörf. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Sokkarnir eru prjónaðir í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 44-48-48 (52-56) lykkjur á sokkaprjóna nr 2,5 með DROPS Fabel. Prjónið stroffprjón = 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur bruðgið í 7-8-9 (10-11) cm. Haldið eftir fyrstu 18-22-22 (22-26) lykkjum á prjóni fyrir hæl (setjið hinar 26-26-26 (30-30) lykkjur á þráð = ofan á fæti). Prjónið sléttprjón yfir hællykkjur í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið prjónamerki. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Takið síðan upp 8-9-10 (11-12) lykkjur sitt hvoru megin við hæl og setjið til baka lykkjur af þræði (= ofan á) fæti á prjóninn = 50-54-56 (62-66) lykkjur. Haldið áfram í stroffprjóni yfir 26-26-26 (30-30) lykkjur ofan á fæti og sléttprjóni yfir þær lykkjur sem eftir eru. JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við stoffprjónslykkjurnar – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 í annarri hverri umferð alls 5-7-6 (7-9) sinnum = 40-40-44 (48-48) lykkjur. Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til sokkurinn mælist 7-8-9 (10-12) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir 3-3-3 (4-4) cm að loka máli). Setjið prjónamerki í hvora hlið á sokknum, þ.e.a.s. að það verða 20-20-22 (24-24) lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjón yfir allar lykkjjur – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 3 sinnum og síðan í hverri umferð 5-5-6 (7-7) sinnum = 8 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Sokkurinn mælist nú ca 10-11-12 (14-16) cm. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littletravelerjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 16-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.