Bep skrifaði:
Hebben jullie ook een goed patroon van de capuchon? Verder erg mooi!
18.08.2008 - 14:57
Kim skrifaði:
Terrific sweater coat!
16.08.2008 - 08:38ClassEconomy skrifaði:
Belle alliance entre le look sport, pratique, confortable et passepartout. Mais je note 8 sur 10 parceque les poches ont été oubliées.
07.08.2008 - 15:32
Linda Moore skrifaði:
Unfortunately I can not see the detail of this. The picture is too dark
03.08.2008 - 23:24
Mariette skrifaði:
Perfect - a great coat substitute
30.07.2008 - 19:49
DROPS Design skrifaði:
The pattern is there - just click the link underneath the picture.
14.07.2008 - 22:36Dee skrifaði:
Love it cant wait for the pattern
14.07.2008 - 00:59
Anna skrifaði:
Jätte snygg och kommer att värma i vinter. Skall börja sticka den redan nu.
11.07.2008 - 22:36
Nina skrifaði:
Denne modellen er kjempefin. Skulle gjerne hatt en tilsvarende modell i litt tynnere garntype
30.06.2008 - 23:14
Maja skrifaði:
Verkar vara en skön och praktisk kofta, ska sticka den.
29.06.2008 - 11:20
Wisdom |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með hettu úr DROPS Snow. Stærð S - XXXL.
DROPS 109-8 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. TVÖFALT PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sl yfir sl og br yfir br. UMFERÐ 3: br yfir sl og sl yfir br. UMFERÐ 4. Br yfir br og sl yfir sl. Endurtakið umf 1-4. MYNSTUR: Sjá teikningu M.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af fimmtu kantlykkju að framan. Í næstu umf er fitjuð upp 1 ný l yfir þá l sem felld var af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 37, 44, 50, 57 og 63 cm. STÆRÐ M: 37, 44, 51, 58 og 65 cm. STÆRÐ L: 37, 45, 52, 59 og 67 cm. STÆRÐ XL: 37, 43, 50, 56, 63 og 69 cm. STÆRÐ XXL: 37, 44, 51, 58, 65 og 71 cm. STÆRÐ XXXL: 37, 44, 51, 58, 65 og 73 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 58-62-66-74-78-86 l (meðtalin 1 kantlykkja á báðum hliðum) á prjóna nr 8 með Snow. Prjónið M.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið síðan áfram að prjóna sléttprjón, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm er fellt af í hvorri hlið, endurtakið með 6 cm millibili alls 4 sinnum = 50-54-58-66-70-78 l. Þegar stykkið mælist 35 cm prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – með 1 kantlykkju í hvorri hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 49-50-51-52-53-54 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir 5 síðustu l í hvorri hlið, aðrar l eru prjónaðar eins og áður. Í næstu umf þegar stykkið mælist 51-52-53-54-55-56 cm eru felldar af 3 síðustu l í hvorri hlið fyrir handveg. Haldið áfram að prjóna 2 síðustu l í hvorri hlið í garðaprjóni til loka. Fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf þannig: 2 l 1-2-2-4-4-6 sinnum = 40-40-44-44-48-48 l. Haldið áfram að prjóna tvöfalt perluprjón með 2 l garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm fellið af miðju 12-12-14-14-16-16 l fyrir hálsmáli, hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf er felld af 1 l til viðbótar við hálsmál = 13-13-14-14-15-15 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 35-37-39-43-45-49 l (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 10 kantlykkjur við miðju að framan) á prjóna nr 8 með Snow. Prjónið M.1. Haldið síðan áfram að prjóna sléttprjón með 10 l garðaprjón við miðju að framan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm er fellt af frá hlið á sama hátt og á bakstykki = 31-33-35-39-41-45 l. Þegar stykkið mælist 35 cm eru prjónaðar 8 umf garðaprjón yfir allar l. Prjónið síðan tvöfalt perluprjón með 1 kantlykkju í hlið og 10 kantlykkjum í garðaprjóni fyrir miðju að framan. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 49-50-51-52-53-54 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir 5 síðustu l í hlið, aðrar l eru prjónaðar eins og áður. Í næstu umf þegar stykkið mælist 51-52-53-54-55-56 cm fellið af 3 síðustu l í hlið fyrir handveg. Fellið af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki = 26-26-28-28-30-30 l. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm setjið síðustu 10-10-11-11-12-12 l á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í annarri hverri umf þannig: 2 l 1 sinni og 1 l 1 sinni = 13-13-14-14-15-15 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 70-72-74-76-78-80 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt. Munið eftir HNAPPAGAT! ERMI: Fitjið upp 30-31-31-33-33-33 l á prjóna nr 8 með Snow. Prjónið M.1. Haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið með 6-6-5-4,5-4-3 cm millibili alls 7-7-8-8-9-10 sinnum = 44-45-47-49-51-53 l. Þegar stykkið mælist 49-48-48-45-45-42 cm – ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna hærri ermakúpu og breiðari axla – fellið af 3 l í hvorri hlið fyrir ermakúpu. Fellið síðan af í annarri hverri umf þannig: 2 l 1 sinni, 1 l 1-2-2-5-5-7 sinnum. Fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 55-55-55-56-56-57 cm, að lokum eru felldar af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af, ermin mælist ca 56-56-57-57-57-58 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma og saumið ermar í. Saumið hliðarsauma og ermasauma í eitt innan við kantlykkju. Saumið tölur í. HETTA: Takið upp ca 48 til 56 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði) á prjóna nr 8 með Snow. ATH! Kantlykkjur að framan halda áfram í garðaprjóni til loka. Prjónið 1 umf garðaprjón frá röngu JAFNFRAMT er aukið út um 10 l jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan). Prjónið síðan 4 umf garðaprjón yfir allar l. Eftir þetta er prjónað tvöfalt perluprjón með 10 l garðaprjón í hvorri hlið þar til hettan mælist ca 32-32-32-34-34-34 cm. Fellið af. Brjótið hettuna saman tvöfalda og saumið toppinn saman með lykkjuspori. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 109-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.