Little Sea Man#littleseamanset |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með laskalínu, röndóttar buxur í stroffprjóni og tátiljur úr DROPS Alpaca. Stærð 1 mán - 4 ára.
DROPS Baby 14-29 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan. 1 hnappagat = prjónið 2. og 3. lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 mán: 2, 8, 14 og 20 cm STÆRÐ 6/9 mán: 2, 8, 15 og 21 cm STÆRÐ 12/18 mán: 2, 8, 14, 20 og 26 cm STÆRÐ 2 ára: 2, 9, 16, 23 og 30 cm STÆRÐ 3/4 ára: 2, 10, 18, 26 og 34 cm ATH: Fellið af fyrir síðasta hnappagatinu í kanti í hálsmáli. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um laskalínu): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í hverri skiptingu á milli erma, fram og bakstykkis (byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki): 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. STROFF (á við um buxur): * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*. RENDUR: Prjónið rendur eftir M.1, endurtakið mynsturteikninguna. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um buxur): Takið upp þráðinn frá fyrri umferð og prjónið það slétt eða brugðið eftir því sem passar inn í stroffið – 3 fyrstu lykkjur sem eru auknar út eru prjónaðar slétt, 3 næstu lykkjur eru prjónaðar brugðið o.s.frv. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 132-138-150 (162-168) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með 2 þráðum í litnum ljós turkos. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í GARÐAPRJÓNI - lesið leiðbeiningar að ofan, * 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 3-3-3 (4-4) cm, munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan – í hægri kanti að framan. Prjónið síðan sléttprjón en 5 kantlykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar áfram í garðaprjóni til loka. JAFNFRAMT í 1. umferð á eftir stroffi er lykkjum fækkað jafnt yfir til 118-128-140 (146-158) lykkjur – ekki fækka lykkjum yfir lykkjur í kanti að framan. Setjið eitt prjónamerki 32-34-38 (39-42) lykkjur inn frá hvorri hlið = 54-60-64 (68-74) lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Þegar stykkið mælist 5-5-6 (6-6) cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin í 3.-3.-3. (4.- 5.) hverjum cm alls 5 sinnum = 98-108-120 (126-138) lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 19-20-23 (27-30) cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá röngu – prjónið 3 umferðir slétt yfir allar lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af 6-8-8 (8-10) lykkjur í hvorri hlið fyrir ermi (þ.e.a.s. 3-4-4 (4-5) lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 38-42-46 (50-54) lykkjur á bakstykki og 24-25-29 (30-32) lykkjur efitr á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Ermin er prjónuð í hring. Fitjið upp 30-30-36 (36-36) lykkjur jafnt yfir á sokkaprjón 4,5 með 2 þráðum í litnum ljós turkos. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan stroff með 2 lykkjur slétt/4 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 3-3-3 (4-4) cm. Haldið áfram í sléttprjóni jafnframt sem lykkjufjöldinn er fækkaður til 28-28-30 (30-32) lykkjur í 1. umferð á eftir stroffi. Þegar stykkið mælist 8-6-6 (6-6) cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi með 7-4-3 (3-3½) cm millibili alls 2-4-5 (7-7) sinnum = 32-36-40 (44-46) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-20-21 (26-30) cm prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið, prjónið síðan 1 umferð slétt jafnframt því sem felldar eru af 6-8-8 (8-10) lykkjur fyrir miðju undir ermi = 26-28-32 (36-36) lykkjur eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. AXLASTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 á fram- og bakstykki og setjið ermar inn á sama hringprjón þar sem fellt var af fyrir handvegi = 138-148-168 (182-190) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli erma og fram- og bakstykki (= 4 prjónamerki). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og prjónið 1 umferð slétt frá röngu áður en laskalínan byrjar. LASKALÍNA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við öll prjónamerkin (= 8 lykkjur færri í hverri umferð með úrtöku) – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA að ofan. Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 7-8-8 (9-10) sinnum og síðan í annarri hverri umferð 0-0-2 (2-2) sinnum. HÁLSMÁL: Jafnframt þegar stykkið mælist 25-27-31 (36-40) cm setjið ystu 8-8-10 (10-10) lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan á þráð. Haldið áfram að fækka lykkjum fyrir hálsmáli við miðju að framan í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum. Eftir allar úrtökur fyrir laskalínu og hálsmáli eru 54-56-56 (62-62) lykkjur eftir á prjóni og stykkið mælist ca 30-32-36 (41-45) cm upp að öxl. FRÁGANGUR: Prjónið upp ca 80-96 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þráðum að framan) á hringprjón 4 með 2 þráðum í litnum ljós turkos. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað jafnt yfir til 54-60-60 (66-66) lykkjur. Prjónið nú stroff þannig (umferð 1 = ranga): 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjur í garðaprjóni (frá réttu verða 5 kantlykkjur í garðaprjóni og 2 lykkjur slétt í hvorri hlið við miðju að framan). Eftir 1 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin í kanti að framan. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt laust af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað frá miðju og niður. BUXUR: Fitjið upp 84-96-96 (108-108) lykkjur á hringprjón 4 með 2 þráðum í litnum beige. Prjónið stroff. Eftir 2 cm byrjar randarmynstur – sjá M.1 (byrjið neðst í mynsturteikningu). Þegar stykkið mælist 10-13-14 (15-16) cm aukið út lykkju hvoru megin við 3 lykkjur slétt mitt fram – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING – aukið út í annarri hverri umferð alls 12 sinnum = 108-120-120 (132-132) lykkjur. Eftir alla útaukningu mælist stykkið ca 20-23-24 (25-26) cm. Í næstu umferð eru felldar af 5 lykkjur við miðju að framan og við miðju að aftan og hvor skálm er prjónuð til loka fyrir sig. SKÁLM: Setjið inn lykkjur af annarri skálminni á þráð. Skiptið lykkjum niður frá hinni skálminni á sokkaprjón 4 = 49-55-55 (61-61) lykkjur. Haldið áfram að prjóna í hring – JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 4 lykkjur brugðið innan á skálm í 3 lykkjur brugðið þannig að stroffið gangi jafnt upp = 48-54-54 (60-60) lykkjur. Haldið áfram með stroff og randarmynstur þar til skálmin mælist 18-21-24 (29-34) cm. Skiptið yfir í litinn beige og prjónið 6 cm stroff fyrir uppábrot. Fellið laust af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Setjið hina skálmina á sokkaprjón 4 og prjónið á sama hátt og fyrri skálm. FRÁGANGUR: Saumið saman op á milli skálma. Brjótið uppá 2 efstu cm í miðju saman tvöfalt að röngu og saumið niður. Þræðið teygju í mitti. Neðstu 6 cm á skálm eru brotnir upp. ------------------------------------------------------- TÁTILJUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til ofan frá og niður og saumað saman við miðju að aftan í lokin. TÁTILJA: Fitjið laust upp 14-16-16 (18-18) lykkjur á prjón 4 með 2 þráðum í litnum ljós turkos. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 3-3-3 (4-4) cm, setjið lykkjur á þráð og prjónið annað stykki á sama hátt (= efst á tátilju). Setjið bæði stykkin á sama prjón og prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur = 28-32-32 (36-36) lykkjur - (op mitt í stykki = mitt framan á). Skiptið yfir á prjón 3,5 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 3½-4 -4½ (5-5) cm. Setjið nú ystu 10-11-11 (12-12) lykkjur í hvorri hlið á þráð. Skiptið til baka yfir á prjón 4 og prjónið 4-5-6 (7-8) cm í garðaprjóni yfir 8-10-10 (12-12) lykkjur sem eftir eru mitt framan á. Fækkið síðan um 1 lykkju í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 2 sinnum = 4-6-6 (8-8) lykkjur efst á prjóni, klippið frá. Prjónið nú upp 10-11-13 (15-17) lykkjur hvoru megin við miðju stykki, í viðbót eru lykkjur settar til baka á prjóninn = 44-50-54 (62-66) lykkjur. Prjónið 3-3½-4 (4½-5) cm í garðaprjóni yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT eftir 1½-2-2½ (3-3½) cm er lykkjum fækkað í annarri hverri umferð þannig (til loka): Fækkið um 1 lykkju í byrjun og í lok umferðar, í viðbót er lykkjum fækkað við miðju að framan með því að prjóna saman 2 lykkjur slétt hvoru megin við miðju 2 lykkjur mitt framan á = ca 32-38-42 (50-54) lykkjur eftir á prjóni, fellið laust af. Saumið saum undir fæti og haldið áfram upp meðfram miðju að aftan – saumið í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur. Prjónið aðra tátilju á sama hátt. ------------------------------------------------------- Leikföng: Skálmar og Þumall DROPS Baby 13-34 ------------------------------------------------------- |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littleseamanset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 14-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.