Myriam skrifaði:
Bonsoir, j'ai un problème avec le montage, j'ai cousu le col, maintenant j'ai une grande ouverture sur le dos du chien, je ne comprends pas où mettre le velcro, ce modèle se ferme-t-il sur le dos? Y a-t-il un schéma d'explication? Merci beaucoup de votre aide, je n'arrive pas à finir ce montage
21.12.2012 - 18:57DROPS Design svaraði:
Bonsoir Myriam, on tricote une bordure le long du côté droit et une autre le long du côté gauche (sous le ventre) et on coud le velcro sur chaque côté pour fermer. Bon tricot !
21.12.2012 - 21:51
Kathy skrifaði:
Love the pattern
05.11.2012 - 03:32
Etemi skrifaði:
Ich habe eine Frage zu dem Abschnitt "der mittlere Teil",der letzte Satz:-(...)48 M auf der Nadel. 2 R.stricken und gleichzeitig auf der 1.R gleich verteilt auf 46M abketten.- Ich verstehe diesen Satz nicht.Wie soll man 2 Reihen stricken und gleichzeitig abketten;und wieso nur 46,was ist mit den restlichen 2.Vielen Dank für Ihre Antwort.
01.09.2012 - 13:27DROPS Design svaraði:
Es wird AUF 46 M abgenommen, nicht 46 M abnehmen. Sicher hat Sie das Wort "abketten" Irritiert, es war unklar übersetzt und ich habe es nun korrigiert.
03.09.2012 - 14:39
Will skrifaði:
Ik heb het vestje tot en met de col klaar. Klopt het dat mijn beide sluitbiezen straks boven op de rug van het hondje komen? En moet de achterkant niet ook afgewerkt worden met een biesje? Graag uw opheldering hierover. Alvast bedankt Will
07.06.2012 - 11:08DROPS Design svaraði:
Het biesje voor de achterkant staat aan het eind van het patroon: Boordsteek aan de onderkant. Zo te zien komen de sluitbiezen inderdaad op de rug van het hondje.
07.06.2012 - 16:09
Drops Design France skrifaði:
Bonjour Sylvie, le col se tricote sur les mailles mises en attente du côté gauche + du côté droit + du milieu. Les bordures des pattes avant se tricotent autour des trous formés par les 3 parties tricotées séparément. Bon tricot !
20.01.2012 - 13:18
Sylvie skrifaði:
Bonjour, j'ai un souciavec se modele pour chien, quand j'ai fini de tricoter les 2 cotés et le milieu, je suis passé aux cotes pour faire le col, il n'y a pas comme sur le dessin apres les emmanchures le dessous du cou avant le col. Que doit-je faire. Merci. Sylvie
20.01.2012 - 11:52
Drops Design France skrifaði:
Bonjour Hélène, le dos est plus long que les côtés (devants) car on augmente dès le début 7 fois de chaque côté pour former les côtés. Le velcro se coud ensuite sur les bandes de chaque côté = sur le ventre.
05.12.2011 - 08:50Hélène Grandbois skrifaði:
Le gilet terminé, le dessous devrait être plus court, et il ne l'est pas et vous dites de coudre le dessus une fois terminé et ensuite de tricoter des bandes pour fermer avec des velcro. merci
03.12.2011 - 17:22
Dorte skrifaði:
Hallo Frau Klare, Bitte mich direkt emailen, und ich werde Ihnen eine Übersetzung rückmailen. Ich bin Dänin, wohne aber in Deutschland. Sollte es um andere Modelle auch gehen, helfe ich gern. OK? Viele Grüsse Dorte
09.11.2006 - 21:18
Kerstin Klare skrifaði:
Sehr geehrte Damen und Herren, ich verstehe die Anleitung nicht ganz richtig. Fängt der Hundepullover mit dem Rückenteil oder mit dem Halsteil an? Wenn der Pullover am Rücken beginnt, wann muss ich dann mit dem Armloch beginnen? Danke für Ihre Hilfe!
09.11.2006 - 11:44
BFF's Jumper |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð hundapeysa / peysa fyrir hund úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað frá skotti að hálsi í sléttprjóni með röndum og opi á bakstykki. Stærð XS-L.
DROPS Extra 0-84 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í lok umferðar frá réttu þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, þannig að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 2½ cm. Eftir það er fellt af fyrir 4-5-6-7 næstu hnappagötum með ca 5-4½-5-5 cm milli hverra hnappagata. RENDUR: * 6 umferðir með litnum dökk bleikur, 2 umferðir með litnum dökk blár *, prjónið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka frá skotti og upp, með opi á bakstykki. Fram- og bakstykkið skiptist í 3 stykki, stykkin eru prjónuð fram og til baka þannig að það verði op fyrir framfætur. Eftir það eru stykkin sett saman og berustykkið er prjónað fram og til baka að hálsmáli. Hálsmálið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir op fyrir framfætur sem prjónað er í hring á sokkaprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 78-98-118-126 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum dökk bleikur. Prjónið stroffprjón þannig, fyrsta umferð er frá röngu: 6 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroffprjón (2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 6 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – lesið HNAPPAGAT í útskýringu að ofan. Prjónið þar til stroffprjón mælist 3 cm. Setjið eitt prjónamerki mitt í stykkið, stykkið er nú mælt héðan. Nú á að prjóna fram og til baka í hvorri hlið á stykki svo að peysan fái betra form og passi betur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 6 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir og prjónið 6 kantlykkjur í garðaprjóni. Snúið stykkinu. Vinstri hlið: UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 6 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið 5-6-7-8 lykkjur brugðið, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir og prjónið 6 kantlykkjur í garðaprjóni, snúið stykkinu. Endurtakið umferð 2 og 3 áfram, en í hverri umferð frá röngu er prjónað yfir 5-6-7-8 lykkjur fleiri þar til í síðasta skipti er prjónað yfir 36-42-49-54 lykkjur frá röngu. Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu. Snúið stykkinu. Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur frá röngu eins og áður (sléttprjón með 6 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið). Hægri hlið: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 6 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið 5-6-7-8 lykkjur slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 6 kantlykkjur í garðaprjóni, snúið stykkinu. Endurtakið umferð 1 og 2 áfram, en í hverri umferð frá réttu, prjónið yfir 5-6-7-8 lykkjur fleiri þar til í síðasta skipti er prjónað yfir 36-42-49-54 lykkjur frá réttu. Snúið og prjónið til baka frá röngu. Nú er prjónað yfir allar lykkjur, haldið áfram í sléttprjóni með 6 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður og RENDUR – lesið útskýringu að ofan, munið eftir – HNAPPAGAT. Prjónið þar til stykkið mælist ca 5-8-11-13 cm mælt frá prjónamerki sem situr mitt í stykki – stillið af eftir 2 umferð með litnum dökk blár. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 31-37-45-47 lykkjur eins og áður (hægri hlið, bakstykki), fellið af 2 lykkjur fyrir opi fyrir framfót, prjónið 12-20-24-28 lykkjur eins og áður (miðjustykki, magastykki), fellið af 2 lykkjur fyrir op fyrir framfót, prjónið 31-37-45-47 lykkjur eins og áður (vinstri hlið, bakstykki). Nú er stykkið prjónað fram og til baka í stykkjum hvert fyrir sig og héðan er nú stykkið mælt. VINSTRI HLIÐ (bakstykki): Haldið áfram í sléttprjóni, garðaprjóni og röndum og fellið af 1 lykkju fyrir opi fyrir framfót í 2. hverri umferð alls 5-6-7-8 sinnum = 26-31-38-39 lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 6-8-10-12 cm frá skiptingu eru lykkjur settar á þráð eða á hjálparprjón. HÆGRI HLIÐ (bakstykki): Prjónið á sama hátt og vinstri hlið – stillið af að rendurnar passi við vinstri hlið. MIÐJUSTYKKI (magastykki): = 12-20-24-28 lykkjur. Prjónið rendur þar til miðjustykkið mælist ca 9-11-13-15 cm frá skiptingu - stillið af að rendurnar passi við vinstri og hægri hlið. Miðjustykkið er aðeins lengra en hægri og vinstri hlið til að fá meira pláss yfir brjóstið. Nú eru allar lykkjur settar til baka á sama prjón = 64-82-100-106 lykkjur. Berustykkið er nú mælt héðan. BERUSTYKKI: Haldið áfram með rendur, sléttprjón og garðaprjón þar til berustykkið mælist 4-6-8-10 cm frá þar sem stykkið var sett saman. Notið litinn dökk bleikur og byrjið frá réttu. Fellið af fyrstu 6 kantlykkjurnar, prjónið sléttprjón jafnframt því sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 56-76-96-112 lykkjur. HÁLSMÁL: Nú er stykkið prjónað í hring frá réttu í litnum dökk bleikur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið hringinn í stroffprjóni (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3-4-6-9 cm. Fellið af aðeins laus með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 25-33-41-50 cm mælt meðfram bakstykki. FRAMFÓTUR: Notið sokkaprjóna 3,5 og litinn dökk bleikur. Prjónið upp ca 40-52-60-68 lykkjur í kringum op fyrir framfót (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4) og prjónið hringinn í stroffprjóni (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í ca 2-4-6-8 cm cm. Fellið af. Endurtakið í kringum hitt opið fyrir framfót á sama hátt. FRÁGANGUR: Þær 6 kantlykkjur sem felldar voru af í annarri hliðinni eru saumaðar niður að innanverðu við hinar kantlykkjurnar þannig að þær skarast. Saumið tölur í. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-84
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.