Youngling Jumpsuit#younglingjumpsuit |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Heklaður galli fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er heklað ofan frá og niður með laskalínu og hettu. Stærð 0 – 4 ára.
DROPS Baby 53-8 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar heklað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar heklað er frá röngu. HEKLLEIÐBEININGAR: Til að áferðin verði alveg eins þegar stykkið er heklað í hring, verður að snúa stykkinu eftir hverja umferð þannig að hekluð er til skiptis 1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu – hver umferð endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar áður en stykkinu er snúið, þannig að umferðin festist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: 2 stuðlar heklaðir saman í 1 stuðul þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju og sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum fyrstu 2 lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum (= 3 lykkjur á heklunálinni), bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 stuðull færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er heklað fram og til baka frá miðju að framan og heklað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið heklað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er heklað til loka niður á við fram og til baka þar til opið að framan hefur verið heklað til loka, síðan er stykkið heklað í hring, en fram og til baka, þannig að áferðin verði eins. Stykkið skiptist síðan fyrir skálmar og hvor skálm er hekluð í hring, en fram og til baka. Ermarnar eru heklaðar niður á við í hring, en fram og til baka. Í lokin eru heklaðar upp lykkjur í kringum hálsmál og hekluð er hetta fram og til baka frá miðju að framan. Það eru gerðir 2 dúskar sem eru festir sem skraut í hvora hlið á hettunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Heklið 55-55-59-63-67-71 LOFTLYKKJUR – lesið leiðbeiningar að ofan, með heklunál 3,5 með DROPS Air. Fyrsta umferðin er hekluð frá röngu þannig: Heklið A.1c í 2. loftlykkju frá heklunálinni, heklið A.1b í næstu 8-8-9-10-10-11 loftlykkjur (= hægra framstykki), heklið A.4 í næstu 2 loftlykkjur (= laskalykkjur), heklið A.1b í næstu 8-8-8-8-10-10 loftlykkjur (= ermi), heklið A.4 í næstu 2 loftlykkjur (= laskalykkjur), klárið A.1b í næstu 12-12-14-16-16-18 loftlykkjur (= bakstykki), heklið A.4 í næstu 2 loftlykkjur (= laskalykkjur), heklið A.1b í næstu 8-8-8-8-10-10 loftlykkjur (= ermi), heklið A.4 í næstu 2 loftlykkjur (= laskalykkjur), heklið A.1b í næstu 8-8-9-10-10-11 loftlykkjur og heklið A.1a í síðustu loftlykkju (= vinstra framstykki), snúið stykkinu = 54-54-58-62-66-70 fastalykkjur + 1 loftlykkja í byrjun umferðar. Loftlykkjan í A.4 merkir 4 raglanlínurnar. Setjið 1 merki innan við ystu 6 lykkjurnar við miðju að framan – þetta er gert án þess að hekla lykkjurnar og stykkið verður síðar mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru heklaðir stuðlar fram og til baka jafnframt því sem aukið er út fyrir laskalínu í hverja loftlykkju (= laskalína). Heklið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Heklið A.2a í fyrstu lykkju, * heklið A.2b fram að fyrstu/næstu loftlykkju (= laskalína), heklið næstu umferð í A.4 um þessa loftlykkju (= 1 stuðull + 1 loftlykkja + 1 stuðull) *, heklið frá *-* alls 4 sinnum, heklið A.2b þar til 1 lykkja er eftir í umferð, heklið A.2c í síðustu lykkjuna = 8 stuðlar fleiri (fylgið eftir hvernig síðasti stuðullinn í umferðinni er heklaður til að fá réttan og jafnan kant meðfram miðju að framan). UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið A.2c í fyrstu lykkju, * heklið A.2b fram að fyrstu/næstu loftlykkju (= laskalína), heklið næstu umferð í A.4 um þessa loftlykkju (= 2 stuðlar fleiri) *, heklið frá *-* alls 4 sinnum, heklið A.2b þar til 1 lykkja er eftir á umferð, heklið A.2a í síðustu lykkju = 8 stuðlar fleiri. Heklið UMFERÐ 1 og 2 þar til heklaðar hafa verið alls 10-12-13-14-15-15 umferðir með stuðlum – sjá mynsturteikningu A.5 sem sýnir hvernig á að hekla útauknu lykkjurnar. Í næstu umferð er aðeins heklaður 1 stuðul um loftlykkjuna í hverri raglanlínu (= á milli stuðla í A.4), í stað 1 stuðuls + 1 loftlykkju + 1 stuðul. Nú hafa verið heklaðar alls 11-13-14-15-16-16 umferðir af stuðlum, stykkið mælist ca 10-12-13-14-15-15 cm frá merki og það eru 138-154-166-178-190-194 stuðlar í umferðinni. Skiptið nú berustykkinu í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar, þá verða laskalykkjurnar staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykkið, þ.e.a.s. JAFNFRAMT sem næsta umferð er hekluð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið eins og áður yfir fyrstu 23-25-27-29-31-32 stuðla (= framstykki), heklið 6-6-8-8-8-10 loftlykkjur (= í hlið mitt undir ermi), hoppið yfir næstu 26-30-32-34-36-36 stuðla (= ermi), heklið eins og áður yfir næstu 40-44-48-52-56-58 stuðla (= bakstykki), heklið 6-6-8-8-8-10 loftlykkjur (= í hlið mitt undir ermi), hoppið yfir næstu 26-30-32-34-36-36 stuðla (= ermi) og heklið eins og áður yfir síðustu 23-25-27-29-31-32 stuðla (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan heklað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 98-106-118-126-134-142 stuðlar. Heklið A.2 fram og til baka eins og áður – ATH: Í fyrstu umferð er heklaður 1 stuðull í hverja af 6-6-8-8-8-10 loftlykkjum undir ermum, síðan eru heklaðir stuðlar fram og til baka yfir allar lykkjur. Heklið þar til stykkið mælist ca 26-31-32-35-37-39 cm frá merki við miðju að framan (stykkið mælist ca 29-34-35-38-40-42 cm frá öxl) – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá réttu. Í næstu umferð eru kantlistar að framan heklaðir saman og síðan er stykkið heklað í hring – lesið HEKLLEIÐBEININGAR og heklað eins og útskýrt er hér að neðan. Klippið þráðinn. 6 ystu stuðlarnir í hvorri hlið hafa verið taldir með í kantlista að framan og þessar lykkjur á að hekla saman. Það er gert þannig: Setjið 6 ystu stuðlana frá hægra framstykki ofan á 6 ystu stuðlana frá vinstra framstykki. Byrjið með 1 keðjulykkju í 6. stuðul frá miðju að framan, þ.e. byrjun umferðar er nú rétt á undan kantlista að framan (heklið í gegnum bæði lögin þannig að kantlistar að framan haldist saman) og heklið A.3a í sömu lykkju og keðjulykkjan var hekluð, heklið A.3b í hverja af næstu 6 lykkjum (heklið í gegnum bæði lögin), heklið síðan A.3b umferðina hringinn, endið umferðina með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar = 92-100-112-120-128-136 stuðlar. Snúið stykkinu, munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR og heklið í hring með 1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu til skiptis. Heklið þar til stykkið mælist ca 30-36-38-41-44-47 cm frá merki í hálsmáli og ca 33-39-41-44-47-50 cm frá öxl (ca 4-5-6-6-7-8 cm hafa verið heklað í hring yfir allar lykkjur eftir að kantlistar að framan voru heklaðir saman) – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá réttu. Nú á að skipta stykkinu fyrir skálmar og hvor skálm er hekluð fyrir sig. Klippið þráðinn. SKIPTING FYRIR SKÁLMAR: Setjið 2 merki í stykkið, þetta er gert án þess að hekla og merkin eru sett í stykkið þannig: Teljið 3 stuðla, setjið 1. merkið á undan næstu lykkju (= miðja að framan), teljið 46-50-56-60-64-68 stuðla (= vinstri skálm), setjið 2. merkið fyrir næstu lykkju (= miðja að aftan), það eru 43-47-53-57-61-65 stuðlar eftir í umferð auk 3 lykkja sem hoppað var yfir í byrjun umferðar (= hægri skálm). Hvor skálm er síðan hekluð fyrir sig. HÆGRI SKÁLM: Byrjið frá réttu að aftan á gallanum með 1 keðjulykkju í 3-3-3-4-4-4 stuðul á eftir merki við miðju að aftan, heklið A.3a í þessa lykkju (= í sömu lykkju og keðjulykkjan), heklið A.3b yfir næstu 41-45-51-53-57-61 stuðula, þ.e.a.s. endið þegar 2-2-2-3-3-3 stuðlar eru eftir á undan merki við miðju að framan, endið umferðina með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar = 42-46-52-54-58-62 stuðlar. Heklið A.3 í hring eins og áður með 1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu til skiptis. JAFNFRAMT þegar 1 umferð hefur verið hekluð eftir skiptinguna, setjið 1 merki í 3 loftlykkju í byrjun umferðar (= innan á skálm). Í næstu umferð er fækkað um 1 stuðul hvoru megin við merkið - lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð 3-3-4-4-4-4 sinnum = 36-40-44-46-50-54 stuðlar. Heklið síðan þar til skálmin mælist 15-18-25-33-38-42 cm frá skiptingunni - stillið af að næsta umferð sé hekluð frá röngu. Heklið 1 umferð með fastalykkjum, þ.e.a.s. heklið A.6b í fyrstu lykkju, heklið A.6a hringinn, endið umferðina með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. Klippið frá og festið þráðinn. Brjótið upp neðstu 4-4-5-5-6-6 cm. VINSTRI SKÁLM: Byrjið frá réttu framan á gallanum með 1 keðjulykkju í 3-3-3-4-4-4 stuðul eftir merki við miðju að framan, heklið A.3a í sömu lykkju og keðjulykkjan, heklið A.3b yfir næstu 41-45-51-53-57-61 stuðla, þ.e.a.s. endið þegar 2-2-2-3-3-3 stuðlar eru eftir á undan merki við miðju að aftan, endið umferðina með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar = 42-46-52-54-58-62 stuðlar. Heklið síðan skálmina á sama hátt og hægri skálm. ERMAR: Byrjið í 4-4-5-5-5-6 loftlykkju fyrir miðju undir ermi, heklið 1 keðjulykkju í þessa lykkju, heklið síðan þannig: Heklið A.3a í sömu lykkju og keðjulykkjan, heklið A.3b í hverja lykkju umferðina hringinn, endið umferð með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun umferðar = 32-36-40-42-44-46 stuðlar. Heklið A.3 í hring eins og áður með 1 umferð frá réttu og 1 umferð frá röngu til skiptis. JAFNFRAMT þegar 1 umferð hefur verið hekluð eftir skiptinguna, setjið 1 merki í 3 loftlykkju í byrjun umferðar (= mitt undir ermi). Í næstu umferð er fækkað um 1 stuðul hvoru megin við merkið – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 1-1-3-3-4-4 sinnum = 30-34-34-36-36-38 stuðlar. Heklið síðan þar til ermin mælist 15-17-20-23-28-33 cm frá skiptingunni – stillið af að næsta umferð sé hekluð frá röngu. Heklið 1 umferð með fastalykkjum, þ.e.a.s. heklið A.6b í fyrstu lykkjuna, heklið A.6a umferðina hringinn, endið með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. Klippið frá og festið þráðinn. Brjótið upp neðstu 4-4-5-5-6-6 cm. FRÁGANGUR: Saumið saman op á milli skálma, þ.e.a.s. saumið framstykkið við bakstykkið kant í kant með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Tölurnar eru saumaðar á milli 3. og 4. stuðuls frá ytri kanti fyrir miðju að framan og tölum er hneppt á milli 2 stuðla í hægri kanti að framan. Efsta talan er staðsett ca 1 cm frá uppfitjunarkanti í hálsmáli og neðsta talan er staðsett ca 4-5-5-5-5-6 cm frá þar sem kantlistar voru heklaðir saman. Þær 4-4-4-5-5-5 tölur sem eru eftir eru saumaðar niður jafnt yfir á milli þessa 2 talna. HETTA: Byrjið frá réttu á hægra framstykki og heklið 1 keðjulykkju í fyrstu lykkjuna, heklið A.2a í sömu lykkju, heklið A.2b þar til 1 lykkja er eftir í umferð JAFNFRAMT er aukið út 10-12-12-12-12-12 stuðla jafnt yfir þessa stuðla – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, heklið A.2c í síðustu lykkju = 64-66-70-74-78-82 stuðlar. Heklið A.2 fram og til baka þar til hettan mælist 20-21-23-25-26-27 cm. Klippið þráðinn nógu langan til að sauma hettuna saman og saumið hettuna saman efst – saumið kant í kant í ysta lykkjubogann á ystu lykkjunni þannig að saumurinn verði flatur. DÚSKUR: Gerið 2 dúska ca 5 cm að þvermáli. Saumið 1 dúsk í hvora hlið á hettunni – ca 9-9-10-10-11-11 cm niður frá miðju ofan á hettu í hvorri hlið og ca 6-6-7-7-8-8 cm frá kanti framan á hettu. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #younglingjumpsuit eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 53-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.