Cri skrifaði:
Per il davanti finiti gli aumenti dello scalfo si mette il lavoro in sospeso, ma quindi devono essere finiti anche gli aumenti per lo scollo? Se fosse così in 4cm andrebbero fatti 22 aumenti (TG1/3m) ma sul dietro in 4cm risultano solo 11 aumenti. Bisogna quindi iniziare gli aumenti dello scalfo oltre i 10cm per finire insieme a quelli dello scollo oppure si parte a 10cm e poi si proseguono gli aumenti dello scollo prima di mettere il lavoro in sospeso?
01.11.2026 - 12:50DROPS Design svaraði:
Buonasera Cri, se prosegue con la lettura del modello, viene indicato che gli aumenti per il collo continuano più avanti. Buon lavoro!
01.11.2026 - 21:53
Janet skrifaði:
Warum findet man die Anleitung nicht in Ravelry?
26.10.2026 - 11:05DROPS Design svaraði:
Liebe Janet, dieses Modell wird in Kürze auf Ravelry hinzugefügt. Vielen Dank im Voraus für Ihre Geduld.
27.10.2026 - 08:11
Sabine skrifaði:
Hallo, wann muss ich die mittleren Maschen des Rückenteils/ Halsausschnitt abketten? Das taucht nirgendwo auf Liebe Grüße Sabine
26.10.2026 - 06:54DROPS Design svaraði:
Liebe Sabine, die Maschen für den Halsausschnitt am Rückenteil werden nicht abgekettet da Rückenteil von oben nach unten gestrickt wird, - siehe KURZBESCHREIBUNG DER ARBEIT dh die angeschlagenen Maschen sind hier für die ganze Breite vom Rückenteil: Schulter + Halsausschnitt. Die Maschen für die beide Vorderteile werden dann beidseitig von diesen Maschen aufgefasst. Viel Spaß beim Stricken!
27.10.2026 - 08:08
Christine skrifaði:
In de Nederlandse vertaling staat niet hoeveel wol er nodig is en welke breipennen gebruikt worden. Kan die informatie toegevoegd worden?
12.10.2026 - 17:15DROPS Design svaraði:
Dag Christine,
Oeps, daar was iets niet goed gegaan. De informatie over het garen en de naalden is nu toegevoegd. Misschien is het nodig om de pagina te verversen om de informatie in beeld te krijgen.
13.10.2026 - 16:18
Anne skrifaði:
Increase for the armhole at the back is confusing- ‘increase one stitch on each side of each row from the right side’ 10 times. Should be each side of every right side row? That would mean the increases would be done over 20 rows rather than 10?
07.10.2026 - 18:24DROPS Design svaraði:
Hi Anne, Yes, you are right and the 2 sentences are the same, just worded slightly differently. So the increases are worked over 20 rows (10 increase rows from the right side and 10 rows without increases from the wrong side). Regards, Drops Team.
08.10.2026 - 05:29
Woodland Adventure Vest#woodlandadventurevest |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti fyrir börn úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í garðaprjóni, vafningi og i-cord. Stærð 0 – 4 ára.
DROPS Baby 53-3 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 3 lykkjur (= 2 lykkjur i-cord + 1 lykkja garðaprjón). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Lykkjur eru fitjaðar upp fyrir bakstykki og prjónað er fram og til baka niður að handvegi. Lykkjur eru látnar hvíla á prjóni/þræði á meðan lykkjur eru prjónaðar upp fyrir öxlum á bakstykki. Framstykkin eru prjónuð niður á við, fram og til baka að handvegi með útaukningu fyrir handveg og vafningi. Við handveg eru stykkin sett saman og prjónað er fram og til baka yfir öll stykkin frá miðju að framan. Útaukning fyrir vafning heldur áfram. Það eru prjónuð 4 snúrubönd sem notuð eru til að loka vestinu. Allt vestið er prjónað í sléttprjóni. BAKSTYKKI: Fitjið upp 44-48-52-56-62-68 lykkjur á hringprjón 2,5 með 1 þræði DROPS Alpaca. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka með 2 lykkjur I-CORD í hvorri hlið þar til stykkið mælist 5½-6-7-8-9-10 cm – lesið leiðbeiningar að ofan. Nú byrjar útaukning fyrir handveg – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið út 1 lykkju í hvorri hlið í hverri umferð frá réttu 10-11-12-12-12-12 sinnum = 64-70-76-80-86-92 lykkjur. Eftir alla útaukningu á bakstykkið að mælast 9-10-11-12-13-14 cm frá uppfitjunarkanti. Endið með umferð frá röngu. Látið lykkjurnar hvíla á prjóni/þræði og prjónið framstykkin. Munið að fylgja prjónfestunni. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið upp 1 lykkju í hverja af fyrstu 11-11-13-15-17-20 lykkjum frá hægri hlið á bakstykki (passið uppá að prjónað sé upp frá réttu). Prjónið garðaprjón fram og til baka með 2 lykkjur i-cord í hvorri hlið. Auka á út fyrir v-hálsmáli og handveg, þetta er gert samtímis, lestu því 2 næstu kafla áður en prjónað er áfram. V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 6-6-6-6-7-7 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp byrjar útaukning fyrir v-hálsmáli. Aukið út 1 lykkju í lok hverrar umferðar frá réttu, aukið er út á undan 3 lykkjum – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið út í hverri umferð frá réttu alls 28-33-34-36-38-39 sinnum. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 9½-10-11-12-13-14 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, byrjar útaukning fyrir handveg. ATH! Framstykkið er prjónað 4 cm lengra en bakstykkið niður að handvegi, þannig að það verði hálslíning að aftan. Aukið út 1 lykkju í byrjun hverrar umferðar frá réttu, aukið er út á eftir 3 lykkjum – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið út í hverri umferð frá réttu alls 10-11-12-12-12-12 sinnum. Þegar öll útaukning fyrir handveg hefur verið gerð til loka, geymið lykkjur á þræði/prjóni og prjónið vinstri öxl þannig: VINSTRI ÖXL: Prjónið upp 1 lykkju í hverja af síðustu 11-11-13-15-17-20 lykkjur frá vinstri hlið á bakstykki (passið uppá að prjónað sé upp frá réttu). Prjónið garðaprjón fram og til baka með 2 lykkjur i-cord í hvorri hlið. Aukið á út fyrir v-hálsmáli og handvegi, þetta er gert samtímis, lestu því 2 næstu kafla áður en prjónað er áfram. V-HÁLSMÁL: Þegar stykkið mælist 6-6-6-6-7-7 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp byrjar útaukning fyrir v-hálsmáli. Aukið út 1 lykkju í byrjun hverrar umferðar frá réttu, aukið er út á eftir 3 lykkjum – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið út í hverri umferð frá réttu alls 28-33-34-36-38-39 sinnum. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 9½-10-11-12-13-14 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, byrjar útaukning fyrir handveg. Aukið út 1 lykkju í byrjun hverrar umferðar frá réttu, aukið er út á undan 3 lykkjum – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið út í hverri umferð frá réttu alls 10-11-12-12-12-12 sinnum. Þegar öll útaukning fyrir handveg hefur verið gerð til loka, á að setja stykkin saman. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið yfir lykkjur frá vinstra framstykki (munið eftir útaukningu fyrir v-hálsmáli), fitjið upp 6 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir handvegi), prjónið 64-70-76-80-86-92 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir handvegi), prjónið lykkjur frá hægra bakstykki til baka í umferð (munið eftir útaukningu fyrir v-hálsmáli). FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið síðan í garðaprjóni og 2 lykkjur i-cord í hvorri hlið (að miðju að framan). Munið eftir útaukningu fyrir v-hálsmáli. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka eru 174-192-206-218-232-246 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 23-25-29-32-34-35 cm (mælt frá toppi á öxl þegar vestið liggur flatt). Fellið af með sléttum lykkjum. SNÚRUBAND: Prjónið snúruband með 3 lykkjum á sokkaprjóna 2,5 þannig: Fitjið upp 3 lykkjur og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan þannig: * Færið allar lykkjur yfir á hægri hlið á prjóni án þess að snúa stykkinu, herðið á þræði og prjónið slétt yfir allar lykkjur *, prjónið frá *-* þar til snúrubandið mælist ca 25-35 cm. Klippið og festið þráðinn. Prjónið 3 snúrubönd til viðbótar á sama hátt. Festið 1 snúruband í hvort horn á framstykkjum og 1 snúruband fyrir miðju í 6 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið. Snúruböndin eru notuð til að loka vestinu. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #woodlandadventurevest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 53-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.