Jane-Antonia skrifaði:
Hallo, ich habe das Modell gerade angefangen. Bildet die ersten Luftmaschenreihe (116 bei Größe XS) den Halsausschnitt? Weil ich habe das Problem, dass dieser nicht über den Kopf passt. Die Maschenprobe 10x10 hat genau zu euren Angaben gepasst und die LM sind gleich goß wie eine fM. Könnt ihr mir hier bitte weiterhelfen?
04.11.2026 - 11:06
Heather skrifaði:
Is the yardage correct at 2,004 metres? That seems very high for a sweater? Is this because it is crochet?
23.10.2026 - 21:22DROPS Design svaraði:
Dear Heather, yes, it's because not only is it a crochet sweater (which will usually require more yarn) but it also alternates between sc (US)/dc(UK) and dc(US)/tr(UK) rows. The sc rows will usually add little height to the pattern, so you will need to work more rows to reach the right length as opposed to other crochet sweaters that only use dc/tr, such as this one. Happy crochetting!
25.10.2026 - 20:10
Misty Coast Sweater#mistycoastsweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Alpaca eða DROPS Nord. Stykkið heklað ofan frá og niður í stuðlum og fastalykkjum með laskalínu. Stærð XS – XXXL.
DROPS 273-37 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 stuðli/fastalykkju. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Munið að mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar heklað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar heklað er frá röngu. HEKLLEIÐBEININGAR: Umferð með stuðlum byrjar með 3 loftlykkjum sem koma í stað 1. stuðul, endið umferðina með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju. Snúið stykkinu. Umferð með fastalykkjum byrjar með 1 loftlykkju sem kemur í stað 1. fastalykkju, endið umferðina með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. Snúið stykkinu. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru heklaðar upp fyrir miðju undir ermi, getur myndast lítið gat í skiptingunni á mill fram- og bakstykkis og erma. Hægt er að loka þessu gati með því að hekla 2 stuðla/fastalykkjur saman í skiptingunni á milli erma og fram- og bakstykkis, heklið 1 stuðul/fastalykkju í síðustu loftlykkju á undan ermalykkjum – bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul/fastalykkju um lykkjuna frá hlið á fram- og bakstykki og dragið síðan þráðinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni, heklið á sama hátt í hinni skiptingunni með því að hekla 1 stuðul/fastalykkju um lykkjuna frá hlið á fram- og bakstykki – bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 stuðul/fastalykkju í fyrstu loftlykkju og dragið síðan þráðinn í gegnum allar lykkjur á heklunálinni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið lykkjum hvoru megin við 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi þannig: Heklið 3 loftlykkjur (koma í stað fyrsta stuðuls), heklið 2 stuðla saman þannig: * Bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina, stingið heklunálinni í gegnum næstu lykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum fyrstu 2 lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* alls 2 sinnum, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið uppsláttinn í gegnum allar 3 lykkjur á heklunálinni (= 1 lykkja færri). Heklið eins og áður þar til 3 stuðlar eru eftir, heklið 2 stuðla saman eins og áður (= 1 lykkja færri) og heklið 1 stuðul í síðustu lykkju. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykkið er heklað í hring frá öxl að aftan. Heklað er ofan frá og niður jafnframt, til skiptis frá réttu og frá röngu, jafnframt sem aukið er út fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið heklað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki og ermar er heklað til loka hvert fyrir sig, heklað er í hring, til skiptis frá réttu og frá röngu. Í lokin er heklaður kantur í hálsmáli í hring. BERUSTYKKI: Notið heklunál 3 og DROPS Alpaca eða DROPS Nord. Heklið 116-120-124-130-136-142-148 LOFTLYKKJUR – lesið leiðbeiningar að ofan og tengið stykkið saman með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Nú á að hekla í hring, en stykkinu er snúið eftir hverja umferð þannig að heklað er til skiptis frá réttu og frá röngu í MYNSTUR þannig: Frá réttu: Heklið A.1 í fyrstu loftlykkju, A.2 í næstu 24-24-24-28-28-28-28 lykkjur (= ermi), A.3 í næstu lykkju (= laskalína), A.2 í næstu 32-34-36-35-38-41-44 lykkjur (= framstykki) og setjið merki til að mæla frá u.þ.b. miðju þessara lykkja, A.3 í næstu lykkju (= laskalína), A.2 í næstu 24-24-24-28-28-28-28 lykkjur (= ermi), A.3 í næstu lykkju (= laskalína), A.2 í næstu 32-34-36-35-38-41-44 lykkjur (= bakstykki), heklið A.4 í fyrstu lykkju í umferð (= sama lykkja og A.1 var hekluð í). Aukið hefur verið út um 4 lykkjur og það eru 120-124-128-134-140-146-152 stuðlar og 4 loftlykkjubogar í umferðinni. Lykkjurnar skiptast á milli loftlykkjuboganna þannig: 26-26-26-30-30-30-30 lykkjur fyrir hvora ermi og 34-36-38-37-40-43-46 lykkjur fyrir framstykki/bakstykki. Snúið stykkinu við þannig að næstu umferð sé hekluð frá röngu, munið að mynsturteikningin er lesin frá vinstri til hægri þegar heklað er frá röngu. Frá röngu: Heklið A.1, heklið A.4, heklið A.2 yfir næstu 32-34-36-35-38-41-44 lykkjurnar (= bakstykki), heklið A.3 (= laskalína), heklið A.2 yfir næstu 24-24-24-28-28-28 lykkjurnar (= ermi), heklið A.3 (= laskalína), heklið A.2 yfir næstu 32-34-36-35-38-41-44 lykkjurnar (= framstykki), heklið A.3 (= laskalína), heklið A.2 yfir næstu 24-24-24-28-28-28 lykkjurnar (= ermi) og endið með A.5. Það hafa verið auknar út 8 lykkjur og það eru = 128-132-136-142-148-154-160 lykkjur og 4 loftlykkjubogar í umferð. Haldið áfram fram og til baka svona. Þegar mynsturteikningin hefur verið hekluð 1 sinni á hæðina (= 6 umferðir) eru 160-164-168-174-180-186-192 lykkjur og 4 loftlykkjubogar í umferðinni. Haldið áfram að hekla og auka út á sama hátt og í síðustu 2 umferðum, aukið út um 8 lykkjur í hverri umferð. Heklið svona þar til heklaðar hafa verið 26-29-31-33-37-40-43 umferðir frá uppfitjunarkanti. Það eru 320-348-368-390-428-458-488 lykkjur og 4 loftlykkjubogar í umferð og stykkið mælist ca 14-15-16-17-19-21-23 cm frá uppfitjunarkanti. Lykkjurnar skiptast þannig á milli loftlykkjuboganna: 76-82-86-94-102-108-114 lykkjur fyrir hvora ermi og 84-92-98-101-112-121-130 lykkjur fyrir framstykki/bakstykki. Heklið síðan eins og áður með til skiptis 1 umferð af fastalykkjum og 1 umferð af stuðlum, en án þess að auka út - JAFNFRAMT í fyrstu umferð er heklað í kringum hvern loftlykkjuboga til að loka götunum þannig: Heklið 2 fastalykkjur eða 2 stuðla í kringum loftlykkjubogann (= hverjum loftlykkjuboga er skipt út fyrir 2 stuðla/fastalykkjur) = 328-356-376-398-436-466-496 lykkjur. Setjið merki á milli þessara 2 lykkja í byrjun umferðar, umferðin byrjar hér. Heklið þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-24-26 cm frá uppfitjunarkanti - endið þannig að næsta umferð sé frá réttu með stuðlum. Skiptið nú berustykkinu í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar kemur laskalínan til með að vera staðsett aðeins inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT því sem næsta umferð er hekluð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Heklið 8-9-8-10-10-12-14 stuðla (= tilheyrir bakstykki), hoppið yfir næstu 64-68-72-78-84-88-90 lykkjur (= ermi), heklið 8-8-10-12-16-18-20 loftlykkjur (= í hlið undir ermi), heklið 100-110-116-121-134-145-158 stuðla (= framstykki), hoppið yfir næstu 64-68-72-78-84-88-90 lykkjur (= ermi), heklið 8-8-10-12-16-18-20 loftlykkjur (= í hlið undir ermi) og heklið 92-101-108-111-124-133-144 stuðla (= afgangur af bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan heklað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 216-236-252-266-300-326-356 lykkjur. Klippið þráðinn. Lesið HEKLLEIÐBEININGAR í útskýringu að ofan. Byrjið frá röngu fyrir miðju í 8-8-10-12-16-18-20 loftlykkjum í hlið undir ermi og heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju/stuðul í umferð. Haldið áfram hringinn til skiptis frá réttu og frá röngu með fastalykkjum/stuðlum eins og áður. Heklið þar til stykkið mælist ca 45-47-49-50-52-54-56 cm frá merki sem var sett fyrir miðju að framan, efst á framstykki – endið eftir umferð með stuðlum. Klippið og festið þráðinn. Peysan mælist 45-47-49-50-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og LEIÐBEININGAR ERMI í útskýringu að ofan. Byrjið frá röngu fyrir miðju í 8-8-10-12-16-18-20 loftlykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi og heklið fastalykkjur/stuðla í hverja lykkju/loftlykkju. Það eru 72-76-82-90-100-106-110 lykkjur í umferð. Heklið fastalykkjur/stuðla eins og áður – JAFNFRAMT þegar heklaðir hafa verið ca 2 cm frá skiptingunni og næsta umferð er umferð með stuðlum er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið um 2 lykkjur í öðrum hverjum cm alls 1-1-2-4-7-7-7 sinnum = 70-74-78-82-86-92-96 lykkjur. Heklið síðan þar til ermin mælist 48-48-47-48-47-45-44 cm frá skiptingunni – endið með umferð með stuðlum. Klippið og festið þráðinn. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið heklunál 3 og DROPS Alpaca eða DROPS Nord. Byrjið frá réttu við laskalínu á milli bakstykkis og ermi. Munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR. Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í stykkið og heklið 1 fastalykkju á milli hverra stuðla frá 1. umferð á berustykki = 116-120-124-130-136-142-148 lykkjur. Klippið þráðinn, dragið þráðinn í gegnum lykkjuna, herðið á þræðinum og festið vel. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mistycoastsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.