Cocoa Dream Bonnet#cocoadreambonnet |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð hetta / húfa fyrir börn úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað í garðaprjóni með eyru, picot-affellingu og i-cord. Stærð fyrirburar – 4 ára.
DROPS Baby 51-1 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir hverja lykkju með merki. Þegar prjónað er í hring, prjónið uppsláttinn snúið brugðið í næstu umferð. Þegar prjónað er fram og til baka, prjónið uppsláttinn snúið slétt í næstu umferð. I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HETTA / HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað frá miðju að aftan og fram. Fyrst er prjónað í hring á sokkaprjóna með útaukningu og síðan er prjónað fram og til baka í garðaprjóni með i-cord í hvorri hlið jafnframt því sem gerð eru göt fyrir snúru í hvorri hlið. Lykkjur eru auknar út og fækkað til að forma eyru, áður en fellt er af með picot-affellingu. Snúra er prjónuð með snúruprjóni og snúran er þrædd upp og niður í gegnum götin í hliðum, snúran er notuð til að hnýta hettuna/húfuna saman. HETTA / HÚFA: Fitjið upp 12-12-12-12-12-14-14 lykkjur með DROPS Alpaca og skiptið lykkjunum á sokkaprjóna 3, skiljið eftir ca 20 cm af uppfitjunarþræði sem er notaður í lokin til að loka gatinu. Setjið 6-6-6-6-6-7-7 merki í stykkið, merkin eru sett í aðra hverja lykkju. Prjónið GARÐAPRJÓN prjónað í hring – lesið leiðbeiningar að ofan, jafnframt því sem aukið er út um 6-6-6-6-6-7-7 lykkjur í annarri hverri umferð þannig: Aukið út í umferð sem prjónuð er slétt alls 7-8-10-11-12-11-12 sinnum – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 54-60-72-78-84-91-98 lykkjur. Eftir alla útaukningu mælist stykkið ca 3-3-4-4½-5-4½-5 cm. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka er stykkið prjónað til loka fram og til baka. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið þannig: 2 lykkjur I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið garðaprjón yfir þær lykkjur sem eru eftir, á eftir síðustu lykkju er tekin upp 1 lykkja í hvora af fyrstu 2 i-cord lykkjum í umferð = 56-62-74-80-86-93-100 lykkjur. Nú er stykkið snúið og prjónað er til loka fram og til baka. Prjónið GARÐAPRJÓN prjónað fram og til baka með 2 lykkjur I-CORD í hvorri hlið – lesið leiðbeiningar að ofan. Jafnframt eru gerð göt fyrir snúru með tveggja cm millibili í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 lykkjur i-cord, 2 umferðir garðaprjón, prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið garðaprjón þar til 5 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 umferðir garðaprjón, 2 lykkjur i-cord. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat, gerið götin að loka máli – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5½-5½-7-7½-8-8½-9 cm frá miðju að aftan, prjónið EYRU eins og útskýrt er að neðan. EYRU: FRÁ RÖNGU: Prjónið 20-22-28-30-33-35-38 lykkjur, setjið 1 merki í næstu lykkju (= eyrna miðjulykkja), prjónið 14-16-16-18-18-21-22 lykkjur (= miðja ofan á höfði), setjið 1 merki í næstu lykkju (= eyrna miðjulykkja), prjónið 20-22-28-30-33-35-38 lykkjur. ÚTAUKNING FYRIR EYRA: FRÁ RÉTTU: Prjónið fram að fyrstu eyrna miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eyrna miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið fram að annarri eyrna miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eyrna miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umferðina. Snúið stykkinu og prjónið til baka, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt frá röngu. Aukið út á sama hátt 1 sinni til viðbótar = 64-70-82-88-94-101-108 lykkjur. ÚTAUKNING EYRA SKREF 1-4: 1-FRÁ RÉTTU: Prjónið fram að fyrstu eyrna miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eyrna miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur. Snúið stykkinu og prjónið 7 lykkjur til baka jafnframt því sem uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt frá röngu (= 2 nýjar lykkjur fyrir eyra). Snúið stykkinu. 2- FRÁ RÉTTU: Prjónið fram að fyrstu eyrna miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eyrna miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið síðan fram að annarri eyrna miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eyrna miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur (= 2 nýjar lykkjur fyrir hvort eyra). Snúið stykkinu og prjónið 7 lykkjur til baka jafnframt því sem uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt frá röngu. Snúið stykkinu. 3-FRÁ RÉTTU: Prjónið frá réttu fram að annarri eyrnamiðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið eyrna miðjulykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið út umferðina (= 2 nýjar lykkjur fyrir annað eyrað). Snúið stykkinu. 4-FRÁ RÖNGU: Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur. Það eru núna 9 lykkjur í hvoru eyra = 72-78-90-96-102-109-116 lykkjur. Prjónið SKREF 1-4 alls 3-3-3-3-3-4-4 sinnum, aukið er út hvoru megin við eyrna miðjulykkju og prjónaðar eru stuttar umferðir yfir fleiri og fleiri lykkjur, eftir alla útaukningu eru 17-17-17-17-17-21-21 lykkjur í hvoru eyra = 88-94-106-112-118-133-140 lykkjur. ÚRTAKA EYRA SKREF 1-3: 1-FRÁ RÉTTU: Prjónið fram þar til eftir eru 8-8-8-8-8-10-10 lykkjur á undan fyrstu eyrna miðjulykkju, prjónið 6-6-6-6-6-8-8 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið eyrna miðjulykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 6-6-6-6-6-8-8 lykkjur (= 2 lykkjur færri í eyra). Snúið stykkinu og prjónið yfir 15-15-15-15-15-19-19 lykkjur frá röngu. Snúið stykkinu. 2-FRÁ RÉTTU: Prjónið 5-5-5-5-5-7-7 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið fyrstu eyrna miðjulykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið þar til eftir eru 8-8-8-8-8-10-10 lykkjur á undan annarri eyrna miðjulykkju, prjónið 6-6-6-6-6-8-8 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið eyrna miðjulykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 6-6-6-6-6-8-8 lykkjur (= 2 lykkjur færri í hvoru eyra). Snúið stykkinu og prjónið yfir 15-15-15-15-15-19-19 lykkjur frá röngu. Snúið stykkinu. 3-FRÁ RÉTTU: Prjónið 5-5-5-5-5-7-7 lykkjur, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið eyrna miðjulykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið út umferðina (= 2 lykkjur færri í eyra). Snúið stykkinu og prjónið 1 umferð til baka frá röngu. Nú eru 13-13-13-13-13-17-17 lykkjur í hvoru eyra = 80-86-98-104-110-125-132 lykkjur. Prjónið SKREF 1-3 alls 3-3-3-3-3-4-4 sinnum, lykkjum er fækkað hvoru megin við lykkju með merki og prjónaðar eru stuttar umferðir yfir færri og færri lykkjur, eftir alla úrtöku eru 5 lykkjur í hvoru eyra = 64-70-82-88-94-101-108 lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni, i-cord og götum fyrir snúru jafnframt því sem næsta umferð er prjónuð frá réttu og prjónað er þannig: ÚRTAKA FYRIR EYRA: FRÁ RÉTTU: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan fyrstu eyrna miðjulykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið eyrna miðjulykkju, 2 lykkjur slétt saman, prjónið fram að 2 lykkjum á undan annarri eyrna miðjulykkju, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið eyrna miðjulykkju, 2 lykkjur slétt saman, prjónið út umferðina (= 4 lykkjur færri). Prjónið svona alls 4 sinnum í hverri umferð frá réttu = 48-54-66-72-78-85-92 lykkjur. FREMRI HLUTI Á HETTU / HÚFU: Prjónið garðaprjón, i-cord og göt þar til stykkið mælist 10-11-12,5-13,5-14-15-16 cm frá miðju að aftan, í síðustu umferð frá röngu er lykkjufjöldinn jafnaður út til 49-53-65-73-77-85-93 lykkjur. PICOT AFFELLING: Fellt er af laust frá réttu: HLUTI-1: Prjónið 1 lykkju slétt, * stingið hægri prjóni inn á milli fyrstu 2 lykkja á vinstri prjóni (þ.e.a.s. á milli lykkja í umferð, ekki í gegnum lykkjurnar), sláið 1 sinni uppá hægri prjóninn, dragið uppsláttinn fram á milli lykkja og setjið uppsláttinn á vinstri prjón *, prjónið frá *-* 2 sinnum til viðbótar (= 3 nýjar lykkjur á vinstri prjóni). Haldið áfram með hluti-2. HLUTI-2: * Prjónið fyrstu lykkjuna á vinstri prjóni slétt, steypið fyrstu lykkjunni á hægri prjóni yfir síðustu lykkjuna sem var prjónuð (= 1 lykkja færri) *, prjónið frá *-* alls 6 sinnum og endurtakið síðan hluti-1 og hluti-2 þar til 1 lykkja er eftir, klippið þráðinn og dragið þráðinn í gegnum síðustu lykkjuna. FRÁGANGUR: Notið uppfitjunarþráðinn og þræðið upp og niður í hverja af uppfitjunarlykkjum, herðið á þræði þannig að gatið fyrir miðju að aftan lokist. Klippið og festið þráðinn. SNÚRA: Prjónið snúru með 4 lykkjum á sokkaprjón 3 þannig: Fitjið upp 4 lykkjur og prjónið 1 umferð slétt. * Færið 4 lykkjurnar fram að hægri hlið á sokkaprjóninum án þess að snúa stykkinu, herðið á þræði og prjónið slétt yfir allar lykkjur *. Prjónið frá *-* þar til snúran mælist 55-60-60-65-65-70-70 cm. Klippið og festið þráðinn. Þræðið snúruna upp og niður í gegnum gataumferðina meðfram hliðum á hettunni/húfunni. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cocoadreambonnet eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 51-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.