Spring Stroll Top#springstrolltop |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 266-30 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ATH: Ef ekki eru nægilega margar lykkjur til að prjóna uppsláttinn og úrtöku í gatamynstri, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur þar til lykkjum hefur verið fækkað. 2 LYKKJUR MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í LOK UMFERÐAR: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Bönd á öxlum / hlýri á framstykki er saumað við affellingarkantinn á bakstykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 240-260-280-300-340-380-400 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Safran. Fram- og bakstykki er prjónað í hring í MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið þannig: Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar, prjónið A.1 (= 10 lykkjur) alls 24-26-28-30-34-38-40 sinnum hringinn á fram- og bakstykki. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið þar til stykkið mælist 26-28-29-30-31-32-33 cm – síðasta umferðin verður að vera 1. eða 3. umferð í A.1. Í næstu umferð er fellt af fyrir handveg þannig: Byrjið 3-0-0-0-3-0-3 lykkjum á undan byrjun umferðar, fellið af 13-17-17-17-23-27-33 lykkjur (= fyrir miðju undir handvegi), prjónið 107-113-123-133-147-163-167 lykkjur með mynstri eins og áður (= framstykki), fellið af 13-17-17-17-23-27-33 lykkjur (= fyrir miðju undir handvegi), prjónið 107-113-123-133-147-163-167 lykkjur með mynstri (= bakstykki). Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: Prjónið fram og til baka með mynstri eins og áður, prjónið 2 LYKKJUR I-CORD í hvorri hlið – lesið leiðbeiningar að ofan, jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir handveg í hvorri hlið. Fyrst er lykkjum fækkað bæði frá réttu og frá röngu, prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman, prjónið 2 lykkjur i-cord (= 2 lykkjur færri). UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur i-cord (= 2 lykkjur færri). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-1-1-1-2-4-3 sinnum (= 2-2-2-2-4-8-6 umferðir prjónaðar) = 103-109-119-129-139-147-155 lykkjur. Síðan er lykkjum fækkað frá réttu þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur i-cord (= 2 lykkjur færri). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6-7-9-11-12-13-14 sinnum (= 12-14-18-22-24-26-28 umferðir prjónaðar) = 91-95-101-107-115-121-127 lykkjur. Prjónið mynstur fram og til baka eins og áður án þess að fækka lykkjum þar til stykkið mælist 35-37-39-41-43-45-47 cm frá uppfitjunarkanti. Skiptið yfir á hringprjón 2, prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið stroff eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5 sinnum (= 10 umferðir prjónaðar). Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRAMSTYKKI: Prjónið fram og til baka með mynstri eins og áður, prjónið 1 lykkju í sléttprjóni og 2 lykkjur i-cord í hvorri hlið jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir handveg í hvorri hlið. Fyrst er lykkjum fækkað bæði frá réttu og frá röngu, prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 2 lykkjur brugðið saman, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur snúnar brugðið saman, prjónið 2 lykkjur i-cord (= 2 lykkjur færri). UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur i-cord (= 2 lykkjur færri). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-1-1-1-2-4-3 sinnum (= 2-2-2-2-4-8-6 umferðir prjónaðar) = 103-109-119-129-139-147-155 lykkjur. Síðan er lykkjum fækkað einungis frá réttu, prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið mynstur eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna, prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur i-cord (= 2 lykkjur færri). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6-7-9-11-12-13-14 sinnum (= 12-14-18-22-24-26-28 umferðir prjónaðar) = 91-95-101-107-115-121-127 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2, prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið stroff eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 2 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5 sinnum (= 10 umferðir prjónaðar). Í næstu umferð frá röngu er fellt af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) yfir næstu 10-12-12-14-16-16-18 lykkjur, fellið af næstu 65-65-71-73-77-83-85 lykkjur með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (= það eru eftir 13-15-15-17-19-19-21 lykkjur í umferð), prjónið stroff eins og áður yfir næstu 10-12-12-14-16-16-18 lykkjur, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 2 lykkjur i-cord. Ekki klippa þráðinn, snúið og prjónið vinstra band á öxl / hlýra eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA BAND Á ÖXL / HLÝRI: = 13-15-15-17-19-19-21 lykkjur. Prjónið bandið fram og til baka jafnframt því sem lykkjum er fækkað fyrir hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið stroffprjón (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt saman. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið stroffprjóni eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 umferðir prjónaðar) = 9-11-11-13-15-15-17 lykkjur. Prjónið síðan án þess að fækka lykkjum þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið stroffprjón (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið stroffprjón eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur i-cord. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti eða að óskaðri lengd, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRA BAND Á ÖXL / HLÝRI: = 13-15-15-17-19-19-21 lykkjur. Prjónið bandið fram og til baka með byrjun frá réttu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuð lykkjuna (= 1 lykkja færri), prjónið stroffprjón (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið stroffprjón eins og áður þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 umferðir prjónaðar) = 9-11-11-13-15-15-17 lykkjur. Prjónið síðan án þess að fækka lykkjum þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið stroffprjón (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 2 lykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur i-cord, prjónið stroffprjón eins og áður út umferðina. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti eða að óskaðri lengd, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. FRÁGANGUR: Saumið bönd á öxlum / hlýra lykkju á móti lykkju við ystu lykkjur á bakstykki – ca 5 cm á bandi kemur til með að leggjast við bakhlið á stykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springstrolltop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 266-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.