Elisabeth skrifaði:
Er de 3 loddrette strekene i diagram A1 rad 3 luftmasker? Første gruppe med staver starter med ring= 3 luftmasker og deretter 5 staver. Det er derfor logisk for meg at de 3 loddrette strekene er luftmasker, slik at gruppene gjennom raden blir til sammen 6 staver, dvs. 3 luftmasker og 5 staver
19.04.2026 - 14:20DROPS Design svaraði:
Hei Elisabeth. Ja, en liten strek = 1 luftmaske. 3 streker = 3 luftmasker. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på dette, vi skal få lagt til forklaringen under Diagram. mvh DROPS Design
20.04.2026 - 12:05
English Rose Bag#englishrosebag |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Hekluð taska úr DROPS Paris. Stykkið er heklað í hring með blómum.
DROPS 265-10 |
||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJUR: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðli. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.11. Gráu svæðin í A.2 til A.11 hafa nú þegar verið hekluð, þau sýna í hvaða lykkjur nýja umferðin er hekluð í. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er fyrst heklað í hring, það eru 2 alveg eins stykki sem verða framhlið og bakhlið á töskunni, þau eru formuð í hring með blómum og hafa kant sem verða hliðar á töskunni. Síðan eru stykkin hekluð saman og það er gert op í toppi á töskunni. Það er heklað handfang sem saumað er fast. Opið á töskunni er lokað með tölu. FRAMHLIÐ: Notið heklunál 4 og litinn Apríkósukrem í DROPS Paris. Lesið LOFTLYKKJUR og MYNSTUR í útskýringu að ofan. Heklið mynsturteikningu A.1 (= umferð 1-3). Eftir síðustu umferð eru 6 blöð í umferð. Heklið mynsturteikningu A.2 (= umferð 4), brjótið 3. umferð í A.1 fram á við þannig að hægt sé að hekla í 2. umferð í A.1. Þegar A.2 hefur verið heklað til loka eru enn 6 blöð í umferð. Heklið mynsturteikningu A.3 (= umferð 5) í 4. umferð. Þegar A.3 hefur verið heklað til loka eru 9 blöð í umferð. Munið að fylgja heklfestunni. Skiptið yfir í litinn Natur og heklið mynsturteikningu A.4 (= umferð 6), brjótið 5. umferð fram á við þannig að hægt sé að hekla í 4. umferð. Þegar A.4 hefur verið heklað til loka eru enn 9 blöð í umferð. Heklið mynsturteikningu A.5 (= umferð 7) í 6. umferð. Þegar A.5 hefur verið heklað til loka eru 12 blöð í umferð. Heklið mynsturteikningu A.6 (= umferð 8), brjótið 7. umferð fram á við þannig að hægt sé að hekla í 6. umferð. Þegar A.6 hefur verið heklað til loka eru enn 12 blöð í umferð. Heklið mynsturteikningu A.7 (= umferð 9) í 8. umferð. Þegar A.7 hefur verið heklað til loka eru 15 blöð í umferð. Heklið mynsturteikningu A.8 (= umferð 10), brjótið 9. umferð fram á við þannig að hægt sé að hekla í 8. umferð. Þegar A.8 hefur verið heklað til loka eru enn 15 blöð í umferð. Heklið mynsturteikningu A.9 (= umferð 11) í 10. umferð. Þegar A.9 hefur verið heklað til loka eru 19 blöð í umferð. Heklið mynsturteikningu A.10 (= umferð 12), brjótið 11. umferð fram á við þannig að hægt sé að hekla í 10. umferð. Þegar A.10 hefur verið heklað til loka eru enn 19 blöð í umferð. Heklið mynsturteikningu A.11 (= umferð 13) í 12. umferð. Þegar A.11 hefur verið heklað til loka eru 22 blöð í umferð. KANTUR: Brjótið fram á við 13. umferð svo hægt sé að hekla í 12. umferð þannig: UMFERÐ 1: Heklið 1 keðjulykkju um fyrsta stuðul á fyrsta blaði, heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 keðjulykkju um síðasta stuðul á fyrsta blaði, * heklið 2 loftlykkjur, 1 keðjulykkja um fyrsta stuðul á næsta blaði, heklið 3 loftlykkjur, heklið 1 keðjulykkju um síðasta stuðul á sama blaði *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 3 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í sama blaði *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 3 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í fyrstu keðjulykkju. Það eru 38 loftlykkjubogar í umferð. UMFERÐ 2: Heklið 1 loftlykkju, * heklið 3 fastalykkjur um fyrsta/næsta loftlykkjuboga, heklið 2 fastalykkjur um næsta loftlykkjuboga *, heklið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrsta loftlykkjuboga. Það eru 95 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 3: Heklið 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. UMFERÐ 4: Heklið 1 loftlykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. BAKHLIÐ: Heklið á sama hátt og framhlið, en þegar hekla á 4. UMFERÐ af KANTI er gert 1 hnappagat þannig: Heklið 1 umferð til viðbótar með fastalykkjum á sama hátt og áður, jafnframt er gert 1 hnappagat þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju þar til 25 fastalykkjur eru eftir í umferð, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 12 lykkjum, heklið 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 fastalykkju, heklið 1 fastalykkju í hverja af næstu 12 fastalykkjum og endið umferð með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Klippið og festið þráðinn. HEKLAÐ SAMAN: Nú á að hekla framhliðina og bakhliðina saman. Setjið merki hvoru megin við 25 fastalykkjur á hvoru stykki, staðsetjið merkin þannig að hnappagatið sem var gert á bakhliðinni sé fyrir miðju í 25 lykkjunum. Þessar 25 lykkjur eiga að vera opið á töskunni. Notið heklunál 4 og litinn Natur, byrjið við merkið sem situr eftir 25 lykkjurnar og heklið stykkin saman þannig: Stingið heklunálinni inn frá réttu og niður í gegnum aftari lykkjubogann á næstu lykkju á öðru stykkinu, stingið síðan heklunálinni inn frá réttu og niður í gegnum aftari lykkjubogann á næstu lykkju á hinu stykkinu, sækið þráðinn og dragið þráðinn í gegnum báðar lykkjurnar á heklunálinni *, heklið frá *-* í hverja fastalykkju fram þar til stykkin hafa verið hekluð saman fram að hinu merkinu. Klippið og festið þráðinn. HANDFANG: Notið heklunál 4 og litinn Natur, heklið 12 loftlykkjur og tengið loftlykkjurnar saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju. Heklið síðan í hring án þess að enda umferðina þannig: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju umferðina hringinn. Heklið svona þar til stykkið mælist ca 60 cm. Klippið og festið þráðinn. Handfangið hefur núna form eins og snúra/lengja, leggið endana á handfanginu flata. Notið litinn Natur og saumið endana að töskunni þannig að þeir sitji hvoru megin við opið á töskunni (= 25 fastalykkjur sem ekki eru heklaðar saman). Leggið handfangið / lengjuna þannig að hún verði tvöföld að þykkt, þ.e.a.s. brjótið saman í miðju á lengdina. Notið litinn Natur og saumið handfangið /lengjuna með smáu spori, byrjið á að sauma ca 5 cm frá enda á handfanginu sem hefur verið saumað niður þar til ca 5 cm eru eftir í gagnstæðri hlið. Klippið og festið þráðinn. FRÁGANGUR: Saumið eina tölu í framhlið á töskunni þannig að talan passi við hnappagatið. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #englishrosebag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 265-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.