Brigitte skrifaði:
Betr. angegebene Maschenprobe 28x 38... Fehlerteufelchen ?? Andere Anleitungen , ebenfalls mit Fabel glatt rechts gestrickt und auch mit Ndl. 2,5, geben alle eine Maschenprobe von 26 M x32 Reihen auf 10cm an. Vielleicht kann es jemand prüfen? Vielen Dank! Brigitte
06.03.2026 - 17:08DROPS Design svaraði:
Liebe Brigitte, ja so stimmt es, die Maschenprobe wurde erneuert, hier soll man 28 M x 38 Reihen glattrechts haben, beachten Sie nur, daß die Maschenprobe stimmt, die Nadelgröße anpassen, wenn nötig ist. Viel Spaß beim Stricken!
09.03.2026 - 07:23
Clara skrifaði:
- Is it correct that the first and second increase rounds are not separated by a round without increases? - \"Increase every other round as explained above until 8 increases have been done in total\" -> if I count correctly I will increase 16 sts in total and will have 18+16=34 sts for the heel instead of 38 heelstitches as written? Please clarify
27.02.2026 - 12:01DROPS Design svaraði:
Hi Clara. We will ask the design-team to have a look at this.
27.02.2026 - 14:30
Maria skrifaði:
Är det rätt antal maskor som anges när det är minskat för hälen? Efter hälökningarna har man 38 m slätstickning och minskar först på två varv i var sida och därefter vartannat var 12 gånger. Jag får minskningarna till 28 maskor och då blir det inte 14 kvar under foten,
26.02.2026 - 16:20DROPS Design svaraði:
Hej Maria. Vi ber designavdelningen att se över det. Mvh DROPS Design
27.02.2026 - 14:28
Sunset Tide Socks#sunsettidesocks |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir sokkar fyrir herra í DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í stroffprjóni með demantshæl. Stærð 38 – 46.
DROPS 260-45 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Byrjið 3 lykkjum á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, frá legg og niður að tá. Til að rýma fyrir hælnum eru lykkjur auknar út fyrir hælinn á meðan prjónað er niður á við. Þegar hælinn hefur náð tilgreindri breidd og lengd er lykkjum fækkað fyrir hæl á meðan prjónað er að tá. Útaukningin og úrtakan gefa hælnum tígullaga / demantslaga lögun. Þegar tilgreindu máli fyrir fót hefur verið náð, endið með að prjóna tá. STROFF / LEGGUR: Fitjið upp 64-68-72 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með DROPS Fabel. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) í 17-18-19 cm Munið að fylgja prjónfestunni. Nú er prjónaður hæll og fótur eins og útskýrt er að neðan. HÆLL OG FÓTUR: Nú á að auka út lykkjur fyrir hæl hvoru megin við 18 lykkjur fyrir miðju undir fæti. Hællykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í stroffprjóni eins og áður. Setjið 1 merki á milli fyrstu 2 brugðnu lykkja í umferð – látið þetta merki fylgja með áfram í stykkinu = miðja undir fæti. ÚTAUKNING 1: Prjónið þar til 9 lykkjur eru eftir á undan merki og aukið út 1 lykkju með því að nota vinstri prjóninn til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn, prjónið 18 lykkjur sléttprjón (merkið situr fyrir miðju í þessum lykkjum) notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið út umferðina (að merki = miðja undir fæti). Næsta umferð: Prjónið stroffprjón og sléttprjón, endið þegar 10 lykkjur eru eftir á undan merki – nú á að auka aftur út eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING 2: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn, prjónið 20 lykkjur slétt (merkið situr fyrir miðju í þessum lykkjum) notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið út umferðina (að merki = miðja undir fæti). ÁFRAM ÚTAUKNING: Aukið út í annarri hverri umferð eins og útskýrt er að ofan alls 8 sinnum, það verða 2 lykkjur fleiri í sléttprjóni fyrir miðju undir fæti í hvert skipti sem aukið er út = 80-84-88 lykkjur í umferð og 38-38-38 lykkjur í sléttprjóni fyrir miðju undir fæti (= hællykkjur). Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur í stroffprjóni og sléttprjóni eins og áður, án þess að auka út, endið umferðina fyrir miðju undir fæti. Setjið 1 mæli-merki fyrir miðju í hællykkjurnar í þessa umferð – þetta mælimerki er notað til að mæla lengd fótar frá, þ.e.a.s. þetta merki á ekki að fylgja áfram með í stykkinu. ÚRTAKA 1: Nú á að fækka lykkjum fyrir hæl undir fæti. Næsta umferð: Prjónið sléttprjón og stroffprjón þar til eftir eru 19 lykkjur á undan merki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið 34-34-34 lykkjur slétt (merkið situr fyrir miðju í þessum sléttprjónuðu lykkjum), prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). Prjónið út umferðina (að merki = miðja undir fæti). Næsta umferð: Prjónið stroffprjón og sléttprjón, endið þegar eftir eru 18-18-18 lykkjur á undan merki – nú á að fækka aftur lykkjum eins og útskýrt er að neðan. ÚRTAKA 2: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, prjónið 28-28-28 lykkjur slétt (merkið situr fyrir miðju í þessum lykkjum), prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri). Prjónið út umferðina (að merki = miðja undir fæti). ÁFRAM ÚRTAKA: Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð eins og útskýrt var að ofan alls 12-12-12 sinnum, það verða 2 lykkjur færri í sléttprjóni fyrir miðju undir fæti í hvert skipti sem lykkjum er fækkað = 56-60-64 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni yfir 14-14-14 lykkjur undir fæti og stroffprjóni eins og áður yfir þær lykkjur sem eftir eru. FÓTUR: Prjónið þar til stykkið mælist 17-17½ -20 cm frá mælimerki á hæl, mælt undir fæti. Það eru eftir 5-6-6 cm að loka máli, mátið e.t.v. sokkinn og prjónið að óskaðri lengd áður en lykkjum er fækkað fyrir tá eins og útskýrt er að neðan. TÁ: Prjónið 2 umferðir sléttprjón. Setjið 1 merki í hvora hlið á sokknum þannig að það verða 28-30-32 lykkjur ofan á fæti og undir fæti (= 2 merki). Prjónið sléttprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði merkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 6-8-9 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5-4-4 sinnum = 12 lykkjur. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 22-23½-26 cm frá mæli-merki á hæl, mælt undir fæti. ATH: Sokkurinn er 2-2½-3 cm styttri en fótmálið, þar sem hann teygist við notkun. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunsettidesocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 260-45
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.