Anita Hoffgaard skrifaði:
Der MÅ være en fejl i opskriften. Er det virkeligt rigtigt at der skal tages 20 (osv) masker ind efter ribben, så der kun er 28 (osv) til rundt om håndleddet før udtagningen til tommelfingeren?
26.10.2026 - 17:17DROPS Design svaraði:
Hej Anita, hvis du følger den mindste størrelse, så får du 28/15=15 cm rundt om håndleddet, før du begynder at tage ud og det stemmer helt fint med en Small :)
27.10.2026 - 11:46
Danièle VDP skrifaði:
Bonjour. J'ai réalisé la mitaine droite avec augmentations inclinées à gauche (comme indiqué). Mais pour la mitaine gauche, il faut aussi faire des augmentations à gauche ? Pas à droite ? Merci pour votre aide
02.09.2026 - 17:13
Danièle Vdp skrifaði:
Bonjour, J'ai réalisé la mitaine droite avec augmentations inclinées à gauche (comme indiqué). Je m'interroge pour la mitaine gauche, il faut faire aussi des augmentations à gauche ? Pas à droite ? Merci pour votre aide
02.09.2026 - 17:10DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Vdp, pour la mitaine gauche, on va faire 1 augmentation inclinée à droite - retrouvez le descriptif entier de la mitaine gauche après le pouce droit. Bon tricot!
03.09.2026 - 18:13
Mireille skrifaði:
Bonjour, J'en suis aux augmentations inclinées à gauche dans la mitaine droite. Est-ce que le marqueur reste à la 9ème maille (pour la taille S/M) pour les tours suivant ou faut il remettre le marqueur à la 9ème maille à chaque tour ? Si le marqueur ne suit pas, cad mis au tour suivant la dernière augmentation, je ne vois pas comment repérer cette fameuse 9ème maille. Merci pour votre aide.
10.06.2026 - 23:32DROPS Design svaraði:
Bonjour Mireille, le marqueur doit bien rester au même endroit et suivre l'ouvrage tout du long, ainsi vous pouvez continuer à augmenter après la maille avec un marqueur. Bon tricot!
11.06.2026 - 17:20
Barbedor skrifaði:
J'ai fait la première partie des mitaines en côte. Mais je suis bloquée, je ne comprends pas comment enlever 22 mailles dans la partie en jersey. Est-ce à chaque rang sur 22 rangs ? Ou est sur le premier rang une maille sur deux ? Autres. Merci pour l'éclairage que vous pourrez m'apporter.
03.01.2026 - 18:15DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Barbedor, ces diminutions sont à effectuer au tout premier tour jersey, utilisez la calculatrice que vous trouverez en bas de page à droite pour savoir comment diminuer ces 22 mailles et continuez en rond sur les 28 mailles restantes. Bon tricot!
05.01.2026 - 10:54
Ice Bloom Wrist Warmers#icebloomwristwarmers |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðar handstúkur úr DROPS Lima og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað frá úlnlið og upp í sléttprjóni og stroffprjóni.
DROPS 261-42 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað frá úlnlið og upp. HÆGRI HANDSTÚKA: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 48-52-56 lykkjur á sokkaprjóna nr 3 með 1 þræði DROPS Lima og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroffprjón (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5-6-6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT sem í umferð 1 er fækkað um 20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 28-30-32 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 9-10-10 cm. Setjið eitt merki í 9-11-13 lykkju í umferð. Nú er aukið út á eftir lykkju með merki – lesið AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI. Aukið út Á EFTIR lykkju með merki í annarri hverri umferð alls 9-11-13 sinnum = 37-41-45 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 21-22-23 cm. Setjið fyrstu 9-11-13 lykkjur á þráð fyrir þumalfingur (þ.e.a.s. lykkjur frá byrjun umferðar og fram til og með lykkju með merki í) og fitjið upp 3 nýjar lykkjur í umferð, prjónið síðustu 28-30-32 lykkjur eins og áður = 31-33-35 lykkjur. Prjónið hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 23-25-27 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroffprjón (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – JAFNFRAMT í umferð 1 er aukið út um 3-3-3 lykkjur jafnt yfir = 34-36-38 lykkjur. Prjónið stroffprjón í 2-2-2 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist 25-27-29 cm. HÆGRI ÞUMALFINGUR: Setjið lykkjur 9-11-13 lykkjur af þræði yfir op fyrir þumalfingur á sokkaprjóna 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 3 lykkjum sem fitjaðar voru upp innan í hönd = 12-14-16 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í ca 2-3-3 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. VINSTRI HANDSTÚKA: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 48-52-56 lykkjur á sokkaprjóna nr 3. Prjónið stroffprjón (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5-6-6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT sem í umferð 1 er fækkað um 20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 28-30-32 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 9-10-10 cm. Setjið eitt merki í 6-5-4 lykkju í umferð. Nú er aukið út á undan lykkju með merki – lesið AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI. Aukið út Á UNDAN lykkju með merki í annarri hverri umferð alls 9-11-13 sinnum = 37-41-45 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 21-22-23 cm. Prjónið yfir fyrstu 14-15-16 lykkjur eins og áður (þ.e.a.s. fram að lykkju með merki í, setjið næstu 9-11-13 lykkjur á þráð fyrir þumalfingur, fitjið upp 3 nýjar lykkjur í umferð, prjónið síðustu 14-15-16 lykkjur eins og áður = 31-33-35 lykkjur. Prjónið hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 23-25-27 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroffprjón (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) – JAFNFRAMT í umferð 1 er aukið út um 3-3-3 lykkjur jafnt yfir = 34-36-38 lykkjur. Prjónið stroffprjón í 2-2-2 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist 25-27-29 cm. VINSTRI ÞUMALFINGUR: Prjónið á sama hátt og hægri þumalfingur. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #icebloomwristwarmers eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 261-42
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.