Debbie skrifaði:
Can this be knitted in two pieces front and back
09.04.2026 - 05:39DROPS Design svaraði:
Hi Debbie, In the pattern, the body is worked in the round, then divided at the armholes and the front and back pieces are worked separately, back and forth. However, the body can also be worked in 2 sections if you wish, and the vest sewn together to finish. Regards, Drops Team.
09.04.2026 - 07:30
Jocelyne skrifaði:
Les schémas: y a t il réellement 11 tours entre les croisements torsades A4, A4, A5. Je dois faire le schéma jusqu’en haut et recommencer en bas ce qui fait 11 tours. Merci de votre réponse.
27.02.2026 - 22:27DROPS Design svaraði:
Bonjour Jocelyne, tout à fait. Bon tricot!
02.03.2026 - 07:59
Emanuela skrifaði:
Buonasera...c'è un errore nella descrizione del DAVANTI: dice quando il lavoro misura 44 cm mettere in sospeso le 21 maglie centrali e finire separatamente le spalle. Ma nella spiegazione delle SPALLE dice quando il lavoro misura 43 cm intrecciare 22 maglie..... Quindi 44 o 43 cm? Non capisco....
01.11.2025 - 22:59DROPS Design svaraði:
Buonasera Emanuela, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il paragrafo delle spalle. Buon lavoro!
02.11.2025 - 17:28
Amanda skrifaði:
Is diagram a.4 supposed to be 17 stitches across or am i doing math wrong? 8 stitch cable + purl 1+ 8 stitch cable = 17
24.10.2025 - 01:05DROPS Design svaraði:
Hi Amanda, Yes, you are right. A.4 is 17 stitches in width. Regards, Drops Team.
24.10.2025 - 05:46
Vanilla Meringue Vest#vanillameringueslipover |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónað vesti úr DROPS Alaska eða DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, perluprjóni og köntum í stroffprjóni. Stærð XS - XXXL.
DROPS 264-29 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka, fram og til baka. Í lokin eru prjónaðar upp lykkjur í kringum hálsmál og í kringum handveg og prjónaður er kantur í hálsmáli og í handvegi. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 190-202-220-236-256-278-294 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Alaska eða DROPS Big Merino. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 til 3 ½ cm. Prjónið síðan mynstur og lykkjufjöldinn er jafnaður út – fyrsta umferð er prjónuð þannig: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið A.1 yfir fyrstu 19-23-27-31-37-41-45 lykkjur, jafnframt því sem fækkað er um 3-3-3-3-5-5-5 lykkjur jafnt yfir (= A.1 er síðar prjónað yfir 16-20-24-28-32-36-40 lykkjur), prjónið A.2, prjónið A.3 jafnframt er aukið út um 1 lykkju þannig að 8 lykkjur í kaðli koma yfir 7 lykkjur frá stroffi, prjónið A.2, prjónið A.4 jafnframt því sem aukið er út um 2 lykkjur þannig að 8 lykkjur í hverjum kaðli koma yfir 7 lykkjur frá stroffi, prjónið A.2, prjónið A.5 (prjónið yfir 7 lykkjur frá stroffi og aukið út 1 lykkju), A.2, prjónið A.6 yfir síðustu 106-114-128-140-154-172-184 lykkjur og fækkið um 9-9-11-11-13-15-15 lykkjur jafnt yfir (= A.6 er síðar prjónað yfir 97-105-117-129-141-157-169 lykkjur) = 182-194-210-226-242-262-278 lykkjur í umferð. Fyrstu 101-109-117-125-133-141-149 lykkjur = framstykki, síðustu 81-85-93-101-109-121-129 lykkjur = bakstykki. Haldið áfram með mynstur uppá við. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið þar til stykkið mælist 30-31-32-33-34-35-36 cm frá uppfitjunarkanti – stillið af að næsta umferð sé umferð í oddatölu í mynstri (þá kemur snúningur í köðlum til með að vera frá réttu þegar prjónað er síðar fram og til baka). Nú eru lykkjur felldar af fyrir handveg og stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki. SKIPTING VIÐ HANDVEG Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og umferðin er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 3 lykkjur í umferð fyrir handveg, prjónið 95-103-111-119-127-135-143 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið 75-79-87-95-103-115-123 lykkjur eins og áður, fellið af síðustu 3 lykkjur fyrir handveg. Klippið þráðinn. Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka. BAKSTYKKI: = 75-79-87-95-103-115-123 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður fram og til baka. Í hvorri hlið eru lykkjur felldar af fyrir handveg í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-3-3-4-5-6 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkja 1-1-2-4-4-6-7 sinnum í hvorri hlið = 65-69-71-75-79-83-85 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti, fellið af miðju 23-23-25-25-27-29-29 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ÖXL: Haldið áfram með mynstur eins og áður og fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð. Fellið af 1 lykkju 1 sinni = 20-22-22-24-25-26-27 lykkjur eftir fyrir öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62-64 cm. FRAMSTYKKI: = 95-103-111-119-127-135-143 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður fram og til baka. Í hvorri hlið eru lykkjur felldar af fyrir handveg í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-3-3-4-5-6 sinnum í hvorri hlið og 1 lykkju 1-1-2-4-4-6-7 sinnum í hvorri hlið = 85-93-95-99-103-103-105 lykkjur. Þegar stykkið mælist 44-46-48-49-51-53-55 cm frá uppfitjunarkanti, setjið miðju 21-25-25-25-27-27-27 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. ÖXL: Haldið áfram með mynstur eins og áður (þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í kaðal eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur) og fellið af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð. Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 22-24-25-27-28-28-29 lykkjur eftir fyrir öxl. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61-63 cm fækkið um 2-2-3-3-3-2-2 lykkjur jafnt yfir lykkjurnar = 20-22-22-24-25-26-27 lykkjur fyrir öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62-64 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasaumana. KANTUR HANDVEGUR: Prjónið upp ca 84-88-92-96-100-104-108 lykkjur í kringum handveg með hringprjón 4 með DROPS Alaska/ DROPS Big Merino. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 til 3 ½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 78 til 98 lykkjur í kringum hálsmál (lykkjufjöldinn verður að vera í oddatölu), notið hringprjón 4 og DROPS Alaska/ DROPS Big Merino. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Haldið svona áfram með stroff þar til stroffið mælist 3 til 3 ½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #vanillameringueslipover eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 264-29
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.